Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra nr. 2/2012

25.7.2012

Um álagningu opinberra gjalda á einstaklinga árið 2012

Álagningu opinberra gjalda á árinu 2012, sem og ákvörðun vaxtaniðurgreiðslu, vaxta- og barnabóta, er lokið vegna þeirra einstaklinga, sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Álagningar– og innheimtuseðlar viðkomandi einstaklinga eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra; www.rsk.is og www.skattur.is.

Álagningarskrár, sem sýna álagða skatta á gjaldendur í hverju sveitarfélagi, liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum fyrir hvert sveitarfélag dagana 25. júlí til 8. ágúst 2012 að báðum dögum meðtöldum.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur föstudaginn 24. ágúst 2012.

Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. ofangreindra laga.

Sérstök athygli er vakin á því að sá hluti barna– og vaxtabóta ásamt öðrum inneignum samkvæmt álagningar- og innheimtuseðli 2012, sem greiða skal út að lokinni álagningu, verður greiddur á gjalddaga, sem er 1. ágúst n.k. Innheimta eftirstöðva opinberra gjalda hefst á sama gjalddaga.

Reykjavík 25. júlí 2012

Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum