Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra nr. 2/2011

25.7.2011

Um álagningu opinberra gjalda á einstaklinga árið 2011


Álagningu opinberra gjalda á árinu 2011, sem og ákvörðun vaxtaniðurgreiðslu, vaxta- og barnabóta, er lokið vegna þeirra einstaklinga, sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Álagningar– og innheimtuseðlar viðkomandi einstaklinga eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra; www.rsk.is og www.skattur.is.

Álagningarskrár, sem sýna álagða skatta á gjaldendur í hverju sveitarfélagi liggja frammi á skattstofum eða á sérstaklega auglýstum stöðum fyrir hvert sveitarfélag dagana 25. júlí til 8. ágúst 2011 að báðum dögum meðtöldum.

Framlagning álagningarskrár er samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 98. gr. framangreindra laga.

Álagning gjalda á lögaðila fer fram síðar og verður auglýst sérstaklega.

Kærur vegna allra álagðra gjalda einstaklinga 2011 þurfa að hafa borist ríkisskattstjóra eigi síðar en miðvikudaginn 24. ágúst 2011.

Reykjavík 25. júlí 2011

Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum