Auglýsingar

Skattskrár og virðisaukaskattsskrá vegna tekjuársins 2018 lagðar fram

27.9.2021

Skattskrár vegna álagningar á einstaklinga og lögaðila á árinu 2019 og virðisaukaskattsskrá vegna tekjuársins 2018 eru lagðar fram í dag, mánudaginn 27. september 2021.

Skrár yfir álagða skatta á tekjur einstaklinga og lögaðila á árinu 2019 vegna tekjuársins 2018 ásamt virðisaukaskattsskrá eru til sýnis dagana 27. september til 11. október 2021 að báðum dögum meðtöldum á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur en í Reykjavík í Tollhúsinu Tryggvagötu 19.

Auglýsing þessi er birt, skv. 2. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og 46. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum