Auglýsingar

Skattskrár og virðisaukaskattsskrá vegna tekjuársins 2019 lagðar fram

18.10.2021

Skattskrár vegna álagningar á einstaklinga og lögaðila á árinu 2020 og virðisaukaskattsskrá vegna tekjuársins 2019 eru lagðar fram í dag, mánudaginn 18. október 2021.

Skrár yfir álagða skatta á tekjur einstaklinga og lögaðila á árinu 2020 vegna tekjuársins 2019 ásamt virðisaukaskattsskrá eru til sýnis dagana 18. október til 1. nóvember 2021 að báðum dögum meðtöldum á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur en í Reykjavík í Tollhúsinu Tryggvagötu 19.

Auglýsing þessi er birt, skv. 2. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og 46. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum