Auglýsingar
Skattskrár og virðisaukaskattsskrá vegna tekjuársins 2021
Skattskrár yfir álagða skatta á tekjur einstaklinga og lögaðila á árinu 2022 vegna tekna ársins 2021 ásamt virðisaukaskattsskrá þess árs eru til sýnis dagana 16. mars til 30. mars 2023, að báðum dögum meðtöldum.
Skrárnar er hægt að nálgast á almennum starfsstöðvum
Skattsins utan Reykjavíkur en í Reykjavík í Tollhúsinu Tryggvagötu 19.
Óheimilt er að eiga við skrárnar, taka afrit með rafrænum hætti eða ljós- eða hreyfimyndir.
Vinsamlegast gætið að persónulegum sóttvörnum við skoðun skránna og notið handspritt.