Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir og frysting fjármuna

Tilkynningarskyldir aðilar skv. lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (peningaþvættislaga) bera sérstakar skyldur við frystingu fjármuna. Sú skylda er til komin á grundvelli laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna. Alþjóðlegra þvingunaraðgerðir miða að því að hindra eða takmarka tilgreind ríki, hópa, einstaklinga eða lögaðila til að viðhalda friði og öryggi og/eða til að tryggja virðingu fyrir mannréttindum og mannfrelsi. Markmið laga um frystingu fjármuna er að hindra fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu og fjármögnun gereyðingarvopna. Í þeim tilgangi er mælt fyrir um frystingu fjármuna og efnahagslegs auðs (hér eftir „fjármuna“) í samræmi við tilteknar þvingunaraðgerðir sem ákveðnar eru af öryggisráði Sameinuðu þjóðanna á grundvelli 41. gr. sáttmála Sameinuðu þjóðanna, af alþjóðastofnunum eða af ríkjahópum.

Fyrirlestur um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir, markmið þeirra og birtingarmynd, skyldur tilkynningarskyldra aðila og eftirlit ríkisskattstjóra *


( myndband opnast á youtube )

* Athugið! Fyrirlesturinn var tekinn upp í gildistíð laga nr. 64/2019. Núna er mælt fyrir um skyldur tilkynningarskyldra aðila að gera ráðstafanir vegna könnunar á því hvort viðskiptamenn sæti alþjóðlegum þvingunaraðgerðum og frystingar fjármuna í lögum nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna.

Hvaða aðilar bera þessa ábyrgð og sæta eftirliti ríkisskattstjóra?

Aðilar sem falla undir gildissvið peningaþvættislaga. Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með aðilum sem falla undir l.-s.-liði 1. mgr. 2. gr. peningaþvættislaga.

Þeir aðilar eru eftirfarandi:

  • Endurskoðunarfyrirtæki, endurskoðendur, skattráðgjafar og aðilar sem færa bókhald eða sinna bókhaldsþjónustu fyrir þriðja aðila gegn endurgjaldi.
  • Lögmannsstofur, lögmenn og aðrir sérfræðingar í eftirfarandi tilvikum:
  1. þegar þeir sjá um eða koma fram fyrir hönd umbjóðanda síns í hvers kyns fjármála- eða fasteignaviðskiptum,
  2. þegar þeir aðstoða við skipulagningu eða framkvæmd viðskipta fyrir umbjóðanda sinn hvað varðar kaup og sölu fasteigna eða fyrirtækja,
  3. þegar þeir sjá um umsýslu peninga, verðbréfa eða annarra eigna umbjóðanda síns,
  4. þegar þeir opna eða hafa umsjón með banka-, spari- eða verðbréfareikningum,
  5. þegar þeir koma að öflun, skipulagningu eða umsjón með framlögum til að stofna, reka eða stýra fyrirtækjum,
  6. þegar þeir aðstoða við stofnun, rekstur eða stjórnun fyrirtækja, fjárvörslusjóða eða annarra sambærilegra aðila.
  • Fasteignasölur, bifreiðaumboð, fasteigna-, fyrirtækja-, skipa- og bifreiðasalar og fasteignafélög, hvort sem starfsemi snýst m beina leigu eða sölu þessara félaga á fasteignum.
  • Leigumiðlarar þegar mánaðarlegar leigugreiðslur nema 10.000 evrum eða meira.*
  • Listmunasalar eða listmunamiðlarar, þar á meðal listmunagallerí og uppboðshús, þegar um er að ræða viðskipti að fjárhæð 10.000 evrur eða meira.*
  • Skartgripa- og gullsalar, þegar um er að ræða viðskipti í einni greiðslu eða fleiri sem virðast tengjast hver annarri , að fjárhæð 10.000 evrur eða meira. *
  • Aðilar á sviði fjárvörslu og fyrirtækjaþjónustu**
  • Aðilar sem í atvinnuskyni eiga viðskipti sem greitt er fyrir með reiðufé að fjárhæð 10.000 evrur eða meira.*
  • *Miðað við opinbert viðmiðunargengi eins og það er skráð hverju sinni.
    **Aðilar sem eru á sviði fjárvörslu og fyrirtækjaþjónustu veita eftirfarandi þjónustu gegn gjaldi:

  1. aðstoðar við stofnun fyrirtækja eða annarra lögaðila,
  2. gegnir eða útvegar annan aðila til að gegna stöðu forstjóra eða framkvæmdastjóra fyrirtækis, stöðu meðeiganda í félagi eða sambærilegri stöðu hjá annarri tegund lögaðila,
  3. útvegar lögheimili eða annað skráð heimilisfang sem á svipaðan hátt er notað til að hafa samband við fyrirtækið eða aðra tengda þjónustu,
  4. starfar sem eða útvegar annan einstakling til að starfa sem fjárvörsluaðili sjóðs eða annars sambærilegs aðila,
  5. starfar sem eða fær annan einstakling til að starfa sem tilnefndur hluthafi fyrir annan aðila en fyrirtæki sem skráð er á skipulegum markaði.

Hver er skylda tilkynningarskyldra aðila varðandi alþjóðlegar þvingunaraðgerðir?

  • Viðhafa eftirlit með því hvort viðskiptamenn þeirra séu á listum yfir alþjóðlegar þvingunaraðgerðir(hér eftir „listar“).
  • Fyrir upphaf viðvarandi viðskiptasambands.
  • Með reglubundnum hætti á líftíma viðskiptasambandsins.
  • Fræðsla til starfsmanna.
  • Frysta fjármuni reynist viðskiptamaður á alþjóðlegum þvingunarlista.
  • Tilkynna eigendum fjármuna, utanríkisráðuneytinu og ríkisskattstjóra um frystingu fjármuna.

Eftirlit með því hvort að viðskiptamenn séu á listum yfir alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Uppfærðir listar

Við eftirlit með því hvort viðskiptamaður er skráður á lista, skal gæta þess að notast sé við nýjustu útgáfu lista Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandsins.

Listar yfir alþjóðlegar þvingunarráðstafanir

Listar yfir alþjóðlegar þvingunarráðstafanir er að finna á eftirfarandi vefsíðum:

Listi Sameinuðu þjóðanna

Listi Stjórnarráðs Íslands

Listi Evrópusambandsins

Mælt er með því að tilkynningarskyldir aðilar skrái sig rafrænt hjá stjórnarráðinu til að fá tilkynningar um nýjustu uppfærslur. Ábyrgð á því að tryggja að listinn sé uppfærður og innihaldi réttar upplýsingar hvílir ávallt hjá tilkynningarskylda aðilanum. Skráning fer fram á áskriftarvef stjórnarráðsins. Er þá valinn flokkurinn „Þvingunaraðgerðir – breytingar á landalista“ undir fyrirsögninni „Annað“.

Uppfletting á viðskiptamönnum – Skráð ríki, einstaklingar, lögaðilar og hópar/samtök

Tilkynningarskyldur aðili skal kanna hvort viðskiptamaður sé skráður á lista áður en til viðskiptasambands er stofnað. Allir viðskiptamenn skulu kannaðir með reglubundnum hætti á líftíma viðskiptasambandsins.

Ef það kemur jákvæð svörun viðskiptamanns við lista er tilkynningarskyldum aðilum skylt að grípa til viðeigandi og réttmætra ráðstafana til að staðfesta að viðskiptamaðurinn sé í reynd sá aðili sem kemur upp á listanum.

Staðfesting upplýsinga

Ef ástæða er til að ætla að viðskiptamaðurinn sé á lista en það liggja ekki fyrir trúverðugar upplýsingar eða gögn til að staðfesta jákvæða svörun, er mælt með því að hinn tilkynningarskyldi aðili hafi samband við utanríkisráðuneytið og afli frekari gagna til að staðfesta fyrirliggjandi grun.

Viðskiptamaður er skráður á lista: Frysting fjármuna

Skylda að frysta fjármuni

Komi í ljós að viðskiptamaður er skráður á lista, er tilkynningarskyldum aðila skylt að frysta fjármuni eða aðrar efnahagslegar eignir viðkomandi aðila hvort sem það eignarhald er til komið með beinum eða óbeinum hætti.

Markmið frystingar fjármuna er að koma í veg fyrir hvers konar fjármagnsflutning, svo sem afhendingu fjármuna, úttektir, millifærslur, eignarskráningu sem og önnur viðskipti og hindra þannig að aðilar á listum yfir þvingunaraðgerðir fái greiðslur í hendur eða geti nýtt fjármuni með öðrum hætti.

Fjármunir og efnahagslegur auður

Fjármunir:

Hvers kyns eignir og ágóði, þ.m.t.:

• Reiðufé, ávísanir, peningakröfur, víxlar, póstávísanir og aðrir greiðslugerningar.

• Hvers konar inneignir hjá aðilum, inneignir á reikningum, skuldir og fjárskuldbindingar.

• Skráðir og óskráðir fjármálagerningar og skuldagerningar sem verslað er með í og/eða utan kauphallar, þ.m.t. hlutabréf og hlutir, skírteini fyrir verðbréfum, skuldabréf, lán, ábyrgðir, skuldaviðurkenningar og afleiðusamningar.

• Vextir, arðgreiðslur eða aðrar tekjur eða verðmæti sem rekja má til eða myndast af eignum.

• Lánsviðskipti, réttur til skuldajöfnunar, tryggingar, áfangatryggingar eða aðrar slíkar fjárskuldbindingar.

• Ábyrgðir, farmbréf og reikningar.

• Skjöl sem færa sönnur á hlutdeild í fjármunum.

• Hvers konar gerningar til að fjármagna útflutning.

Efnahagslegur auður:

Hvers kyns eignir, efnislegar jafnt sem óefnislegar, færanlegar eða ófæranlegar, sem eru ekki fjármunir en unnt er að nota til að afla fjármuna, vöru eða þjónustu.

Hvaða fjármuni skal frysta?

Ef að viðskiptamaður sem reynist vera á alþjóðlegum þvingunarlista á hlut í fjárhagslegum eignum skal frystingin taka til eignarinnar í heild sinni. Sem dæmi má nefna að ef að viðskiptamaðurinn á 50% eða meira í félagi ber að frysta allar eignir félagsins.

Ef að fjármunir eru í vörslu þriðja aðila skal frystingin einnig ná til þeirra fjármuna.

Þar sem að skylt er að frysta fjármuni sem viðskiptamaður á með beinum eða óbeinum hætti (hefur yfirráð yfir tilteknum eignum) þarf hinn tilkynningarskyldi aðili að framkvæma rannsókn og afla gagna til að finna eignir viðskiptamannsins. Slík rannsókn felur m.a. í sér eftirfarandi:

Kanna beint og óbeint eignarhald

Meta skal hvort að félag er í eigu eða lýtur stjórn/yfirráða viðskiptamanns sem er skráður á lista. Hér skal m.a. líta til eftirfarandi atriða:

a. Bein eignarráð viðskiptamanns sem skráður er á lista:

· Þegar viðskiptamaðurinn á meira en 50% í félagi.

b. Óbein eignarráð/yfirráð viðskiptamanns sem skráður er á lista þegar við á. Slík könnun getur m.a. falið í sér eftirfarandi:

· Þegar viðskiptamaðurinn á a.m.k. meirihluta hlutafjár eða ræður a.m.k. meirihluta atkvæða í félagi.

· Þegar viðskiptamaðurinn er framkvæmdastjóri eða stjórnarmaður félags.

· Þegar viðskiptamaður hefur önnur yfirráð yfir félagi en getið er hér að ofan;

- hefur rétt til að tilnefna eða setja af meirihluta stjórnar félags,
- getur gert samninga við aðra, s.s. hluthafa og/eða félagið sjálft um að hann fari einn eða með hluthöfum með a.m.k. meirihluta atkvæðisréttar í félaginu eða
- samþykktir félagsins kveða á um slíkan rétt

Tilkynna um frystingu fjármuna

Tilkynningarskyldum aðilum er skylt að tilkynna eigendum fjármuna, utanríkisráðuneytinu og ríkisskattstjóra um frystingu fjármuna.

Í tilkynningarskyldunni felst að veita skal þar til bærum stjórnvöldum, án tafar allar upplýsingar sem myndu greiða fyrir því að unnt sé að framfylgja þeim þvingunaraðgerðum sem gilda hér á landi.

Tilkynningar um frystingu fjármuna og aðrar upplýsingar sem tengjast framkvæmd laga um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir og frystingu fjármuna skulu, eftir því sem við á, sendar til:

· Utanríkisráðuneytisins á netfangið postur@mfa.is

· Ríkisskattstjóra á netfangið pt@skatturinn.is

Vanræksla á að uppfylla skyldur samkvæmt lögum um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir eða lögum um frystingu fjármuna getur varðað viðurlögum, m.a. í formi dagsekta eða stjórnvaldssekta.

Ítarefni

Skammstafanir

Lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 (pþl.)
Financial action task force (FATF)
Tilkynningarskyldir aðilar (TA)
Skrifstofa fjármálagreiningar lögreglu (SFL)
Ríkisskattstjóri (RSK)
Fjármálaeftirlitið (FME)
Ríkislögreglustjóri (RLS)

Fræðsluefni fyrir tilkynningarskylda aðila

l. liður 1. mgr. 2. gr. pþl. Endurskoðendur, skattaráðgjafar og aðilar sem færa bókhald eða sinna bókhaldsþjónustu.

m. liður 1. mgr. 2. gr. pþl. Lögmenn, í vissum tilvikum. http://www.fatf-gafi.org/media/fatf/documents/reports/ML%20and%20TF%20vulnerabilities%20legal%20professionals.pdf

https://www.fatf-gafi.org/en/publications/Fatfrecommendations/Rba-legal-professionals.html

https://www.lawsociety.org.uk/support-services/documents/iba-aml-typologies-report/

https://www.anti-moneylaundering.org

n. og o. liðir 1. mgr. 2. gr. pþl. Fasteigna- fyrirtækja- og skipasalar og jafnframt leigumiðlarar

http://www.fatf-gafi.org/media/fatf/documents/reports/ML%20and%20TF%20through%20the%20Real%20Estate%20Sector.pdf

p. liður 1. mgr. 2. gr. pþl. Listmunasalar, listmunamiðlarar, gallerí og uppboðshús

q. liður 1. mgr. 2. gr. pþl. Aðilar á sviði fjárvörslu og fyrirtækjaþjónustu

r. liður 1. mgr. 2. gr. pþl. Einstaklingar og lögaðilar sem í atvinnuskyni eiga viðskipti í reiðufé yfir 10.000 evrur.

Eðalmálmar:  https://www.fatf-gafi.org/en/publications/Methodsandtrends/Ml-tf-risks-and-vulnerabilities-gold.html

Eðalsteinar: https://www.fatf-gafi.org/en/publications/Methodsandtrends/Ml-tf-through-trade-in-diamonds.html

s. liður 1. mgr. 2. gr. pþl. Happdrætti og fjársafnanir

https://www.fatf-gafi.org/en/publications/Methodsandtrends/Vulnerabilitiesofcasinosandgamingsector.html

Fyrirlestur starfsmanna Skattsins um peningaþvætti 28. maí 2019 (Opnast á youtube.com)

Fyrirlestur um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir, markmið þeirra og birtingarmynd, skyldur tilkynningarskyldra aðila og eftirlit ríkisskattstjóra (Opnast á youtube.com)

Almennt efni um peningaþvætti

Lög 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Lög 68/2023 um um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna

Tilmæli FATF - International standards on combating money laundering and the financing of terrorism & proliferation

Skýrsla FATF - Money laundering/terrorist financing risks and vulnerabilities associated with gold

Skýrsla ríkislögreglustjóra um áhættumat vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka

 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum