Áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki frá júní 2026
Að þessu sinni bætast annars vegar Bosnía og Hersegóvína og hins vegar Írak við listann.
Listi yfir áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki sýnir annars vegar ríki sem koma fram í yfirlýsingu Financial Action Task Force (FATF) frá 19. júní um ríki undir sérstöku eftirliti og hins vegar ríki sem Evrópusambandið hefur tilgreint sem áhættusöm þriðju lönd, sbr. reglugerð nr. 1221/2025, um breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 105/2020.
Í yfirlýsingu FATF frá því í júní kemur fram að ríki skuli grípa til sérstakra fyrirbyggjandi varúðarráðstafana gagnvart Norður-Kóreu og Íran, enda steðji viðvarandi ógn að hinum alþjóðlega fjármálamarkaði vegna aðgerðarleysis ríkjanna í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þá skuli ríki gæta aukinnar árvekni í viðskiptum við aðila frá Mjanmar.
Í samræmi við 6. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka skulu tilkynningarskyldir aðilar gefa aðilum frá eftirfarandi ríkjum sérstakan gaum, m.t.t. aukinnar hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og framkvæma aukna áreiðanleikakönnun í samræmi við 13. og 14. gr. laga nr. 140/2018.
Þau ríki sem eru talin áhættusöm, ósamvinnuþýð eða með annmarka í framangreindum skilningi eru eftirfarandi:
- Afganistan
- Alsír
- Alþýðulýðveldið Kórea
- Angóla
- Bosnía og Hersegóvína
- Bólivía
- Bresku Jómfrúaeyjar
- Búlgaría
- Búrkína Fasó
- Fílabeinsströndin
- Haítí
- Írak
- Íran
- Jemen
- Kamerún
- Kenía
- Kúveit
- Laos
- Líbanon
- Lýðstjórnarlýðveldið Kongó
- Malí
- Mjanmar/Búrma
- Mónakó
- Mósambík
- Namibía
- Nepal
- Nígería
- Papúa Nýja-Gínea
- Suður Afríka
- Suður-Súdan
- Sýrland
- Tansanía
- Trinidad og Tóbagó
- Vanúatú
- Venesúela
- Víetnam
