Tilkynningar og yfirlýsingar FATF

Áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki skv. FATF

18.3.2019

Í yfirlýsingu FATF kemur fram að ríki, sem eru aðilar að FATF, skuli grípa til sérstakra fyrirbyggjandi varúðarráðstafana gagnvart Norður-Kóreu, enda steðji viðvarandi ógn að hinum alþjóðlega fjármálamarkaði vegna aðgerðarleysis ríkisins gagnvart aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þá er því beint til ríkjanna að beitt verði aukinni áreiðanleikakönnun í samræmi við áhættu gagnvart einstaklingum og lögaðilum frá Íran.

Í kjölfar nefnds fundar FATF var einnig gefin út skýrsla um úrbætur í málefnum tengdum aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka á alþjóðlegum vettvangi. Í skýrslunni er að finna lista yfir ríki sem nýverið hafa lýst yfir vilja til að framfylgja aðgerðaáætlun, sem unnin hefur verið í samstarfi við FATF, til að taka á þeim annmörkum sem eru til staðar á þessu sviði.

Þau ríki sem eru talin með alvarlega annmarka eru eftirfarandi:

  • Bahamaeyjar
  • Botsvana
  • Eþíópía
  • Gana
  • Jemen
  • Kambódía
  • Pakistan
  • Serbía
  • Sri Lanka
  • Sýrland
  • Trinidad og Tóbagó
  • Túnis

Tilkynningarskyldir aðilar skulu gefa aðilum frá nefndum ríkjum sérstakan gaum, m.t.t. aukinnar hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og framkvæma aukna áreiðanleikakönnun í samræmi við 13. og 14. gr. laga nr. 140/2018.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum