Tilkynningar og yfirlýsingar FATF

Yfirlýsing FATF vegna ósamvinnuþýðra ríkja frá febrúar 2026

18.2.2026

Ríkisskattstjóri hefur uppfært lista yfir ríki sem teljast áhættusöm, ósamvinnuþýð eða með annmarka á aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

List yfir áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki sýnir annars vegar ríki sem koma fram í yfirlýsingu Financial Action Task Force (FATF) frá 13. febrúar um ríki undir sérstöku eftirliti og hins vegar ríki sem Evrópusambandið hefur tilgreint sem áhættusöm þriðju lönd, sbr. reglugerð nr. 1221/2025, um breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 105/2020.

Í yfirlýsingu FATF frá því í febrúar kemur fram að ríki skuli grípa til sérstakra fyrirbyggjandi varúðarráðstafana gagnvart Norður-Kóreu og Íran, enda steðji viðvarandi ógn að hinum alþjóðlega fjármálamarkaði vegna aðgerðarleysis ríkjanna í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þá skuli ríki gæta aukinnar árvekni í viðskiptum við aðila frá Mjanmar.

Í samræmi við 6. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka skulu tilkynningarskyldir aðilar gefa aðilum frá eftirfarandi ríkjum sérstakan gaum, m.t.t. aukinnar hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og framkvæma aukna áreiðanleikakönnun í samræmi við 13. og 14. gr. laga nr. 140/2018.

Þau ríki sem eru talin áhættusöm, ósamvinnuþýð eða með annmarka í framangreindum skilningi eru eftirfarandi:

  • Afganistan
  • Alsír
  • Alþýðulýðveldið Kórea
  • Angóla
  • Bólivía
  • Bresku Jómfrúaeyjar
  • Búlgaría
  • Búrkína Fasó
  • Fílabeinsströndin
  • Haítí
  • Íran
  • Jemen
  • Kamerún
  • Kenía
  • Kúveit
  • Laos
  • Líbanon
  • Lýðstjórnarlýðveldið Kongó
  • Malí
  • Mjanmar/Búrma
  • Mónakó
  • Mósambík
  • Namibía
  • Nepal
  • Nígería
  • Papúa Nýja-Gínea
  • Suður Afríka
  • Suður-Súdan
  • Sýrland
  • Tansanía
  • Trinidad og Tóbagó
  • Vanúatú
  • Venesúela
  • Víetnam
Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum