Úrskurðir tollgæslustjóra

Úrskurður 6/2017

Tollflokkun þriggja bifreiða af gerðinni Ford Transit

24.10.2017

Reifun

Kærð var ákvörðun Tollstjóra um tollflokkun þriggja bifreiða af gerðinni Ford Transit. Var um að ræða endurupptaka úrskurðar Tollstjóra nr. 8/2016 eftir að yfirskattanefnd hefði fellt fyrri úrskurð Tollstjóra úr gildi og vísað málinu aftur til Tollstjóra til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

Niðurstaða Tollstjóra var að umþrætt ökutæki myndu flokkast sem ökutæki aðallega gerð til mannflutninga og voru þau tollflokkuð í tollskrárnúmer 8703.3240.


Í dag var hjá embætti Tollstjóra kveðinn upp svofelldur

Ú R S K U R Ð U R

I. Kæra

Með úrskurði yfirskattanefndar nr. 32/2017, dags. 8. febrúar 2017, var úrskurður Tollstjóra nr. 8/2016. dags. 26. september 2016, felldur úr gildi og málinu vísað til Tollstjóra til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

II. Málsmeðferð

Þann 26. júlí 2016 flutti kærandi inn bifreið að gerðinni Ford Transit á sendingarnúmerinu B. Þar að auki flutti hann inn tvær bifreiðar sömu gerðar þann 2. ágúst á sendingarnúmerunum C og D.

Bifreiðarnar voru flokkaðar annars vegar í tollskrárnúmer 8703.3234 og hins vegar í tollskrárnúmer 8704.2199 á tollskýrslum. Starfsmaður Tollstjóra gerði athugasemd við skýrslurnar vegna rangra tollskrárnúmera en hann taldi rétt númer vera 8703.3240. Var tollskrárnúmerunum þá breytt á skýrslunum og voru gjöld álögð og skuldfærð samkvæmt því.

Kærandi gerði breytingar á bifreiðunum og sendi í kjölfarið tvær tollskýrslur af þremur aftur til Tollstjóra til leiðréttingar þar sem óskað var eftir breytingum á tollskrárnúmerum til lækkunar vörugjalda með tilliti til þeirra breytinga sem gerðar höfðu verið. Því var hafnað af Tollstjóra þann 22. ágúst 2016.

Tollafgreiðsla bifreiðanna var kærð með tölvupósti þann 25. ágúst 2016. Þann 26. september 2016 staðfesti Tollstjóri ákvörðun sína um höfnun á leiðréttingu vegna tollafgreiðslu á tveimur Ford Transit bifreiðum með úrskurði Tollstjóra nr. 8/2016.

Með bréfi dags. 17. nóvember 2017, var úrskurður Tollstjóra nr. 8/2016 kærður til yfirskattanefndar. Í kæru kom fram að fyrirtaka fyrri kæru kæranda til Tollstjóra hafi verið misskilin. Í raun hafi andlag kæru verið tollflokkun bifreiðanna en ekki höfnun á leiðréttingu eftir breytingu bifreiðanna. Í umsögn sinni til yfirskattanefndar féllst Tollstjóri á að ekki hafi verið vikið efnislega að tollflokkun bifreiðanna. Með úrskurði yfirskattanefndar nr. 32/2017, var úrskurður Tollstjóra nr. 8/2016 felldur úr gildi og málinu vísað til Tollstjóra til nýrrar meðferðar og afgreiðslu. Í kjölfar nýrrar meðferðar málsins var haft samband við kæranda sem heimilaði vöruskoðun á bifreiðunum og skoðuðu starfsmenn Tollstjóra eina af þeim þremur bifreiðum sem eru andlag kæru þann 1. mars 2017, að viðstöddum forsvarsmanni kæranda, en eru bifreiðarnar eins að öllu leyti að sögn forsvarsmanns kæranda sem og upplýsingum í ökutækjaskrá. Haft var samband við forsvarsmann kæranda með tölvupósti þann 3. apríl 2017 og bárust frekari röksemdir frá honum samdægurs.

III. Meginröksemdir kæranda

Kærandi setur fram þá kröfu að bifreiðarnar skuli vera tollflokkaðar í tollflokk nr. 8704.2199. Kröfu sinni til stuðnings bendir kærandi á að í framleiðsluvottorði frá Ford umboðinu í Þýskalandi, útflutningspappírum og farmskýrslu komi fram að bifreiðarnar séu í tollflokk nr. 8704-2199 og því til stuðnings sé lýsing á hvað teljist vera sendibifreið skv. ökutækjaflokki N1 sbr. undirlið 01.13. í 1. gr. reglugerðar nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja, sbr. 2 .tl. 1. gr. reglugerðar 349/2007. Óheimilt sé að flokka bifreiðarnar undir annað en sendibíla sökum þess að þeir séu gluggalausir í afturrými, ásamt því að lokaða vörurýmið sé mun stærra en farþegahluti bifreiðarinnar.

Ásamt þessu tekur kærandi fram að fluttir hafi verið inn sambærilegir bílar sem hafi verið tollafgreiddir í tollflokk nr. 8704.2199 á sínum tíma. Þessu til stuðnings kveður kærandi að bifreið með fastanúmerið E hafi verið tollafgreidd árið 2007 í tollflokk 8704.2199.

Kærandi tekur einnig fram að embætti Tollstjóra hafi ekki óskað eftir gögnum frá framleiðanda eða flutningsskýrslu, hvorki við tollafgreiðslu né við málsmeðferð hins kærða úrskurðar.

IV. Niðurstöður

Ágreiningur í máli þessu snýr að tollflokkun þriggja samskonar bifreiða af gerðinni Ford Transit, sem hafa fastanúmerin F, G og H. Kærandi gerir þá kröfu að bifreiðirnar skuli vera tollflokkaðar í tollflokk nr. 8704.2199 en ekki tollflokk nr. 8703.3240 sem þær voru tollafgreiddar í þann 8. ágúst 2016.

Þegar grundvöllur fyrir álagningu vörugjalds er skoðaður er nauðsynlegt að líta til laga nr. 29/1993 um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. Samkvæmt 1. gr. laganna ber að greiða vörugjald af ökutækjum sem skráningaskyld eru samkvæmt umferðarlögum nr. 50/1987 og nær gjaldskyldan til allra ökutækja nýrra sem notaðra sem flutt eru til landsins, sbr. 1. mgr. 2. gr. laganna. Álagning vörugjalda á ökutæki fer að meginreglu eftir 3. gr. laganna þar sem hún er miðuð við skráða losun koltvísýrings. Í 4. og 5. gr. laganna er að finna undantekningar frá þessari meginreglu sem kveða almennt á um lægra vörugjald en þyrfti að greiða félli ökutæki undir 3. gr. laganna. Af tollskrá má lesa að ökutæki sem flokkast í tollskrárnúmer 8703.3230 falla undir meginregluna í 3. gr. laga nr. 29/1993 en ökutæki sem flokkast í tollskrárnúmer 8704.2199 falla aftur á móti undir undanþáguákvæði 4. gr. laganna. Kærandi vísar ekki til ofangreindra laga í kæru sinni, en bifreiðar í tollskrárnúmeri 8704.2199 geta bæði fallið undir g-lið 2. tölul. 1. mgr. 4. gr. laganna og h-lið sama ákvæðis. Tollstjóri leiðir líkum að því að átt sé við g-lið 2. tölul. 1. mgr. laganna.

Bifreiðarnar eru þannig útbúnar að þær geta flutt einn ökumann og sex farþega. Einnig er í bifreiðunum rúmt vöruflutningarými sem er sambyggt stýrishúsinu en aðskilið með varanlegu skilrúmi fyrir aftan fjögurra manna sætisröð sem er fyrir aftan ökumann og tvö sæti eru við hlið ökumanns. Farþegarými er um 240 cm langt, vöruflutningarými er um 307 cm langt og um 374 cm á milli öxla, samkvæmt skoðun starfsmanna Tollstjóra. Þá er burðargeta bifreiðanna 920 kg, samkvæmt upplýsingum úr ökutækjaskrá. Tollstjóri telur ljóst að bifreiðarnar eru ætlaðar til að ferja bæði farþega og varning. Bifreiðirnar gætu til að mynda hentað til að flytja vinnuhópa ásamt verkfærum og farangri þeirra til vinnu.

Þegar tollflokka á umræddar bifreiðar koma til skoðunar tveir vöruliðir, þ.e. nr. 8703 sem fólksflutningabifreiðar falla undir, og nr. 8704, þar sem vöruflutningabifreiðar flokkast. Kærandi fer fram á að bifreiðarnar séu tollflokkaðar sem sendibifreiðar í vörulið 8704, nánar tiltekið í tollskrárnúmer 8704.2199 sem skilgreint er sem ökutæki til vöruflutninga, með vörurými.

Í skýringabókum Alþjóðatollastofnunarinnar er að finna fimm atriði sem gefa til kynna hvort bifreið sé sendibifreið eða bifreið aðallega gerð til mannflutninga í vörulið 8703. Þau atriði sem benda til þess að ökutækið eigi að flokka í vörulið 8703, sem fólksflutningabifreið, eru eftirfarandi;

  • Í fyrsta lagi verður að vera fyrir hendi, í aftara rými fyrir aftan bílstjóra, varanleg sæti fyrir farþega eða varanlegir festipunktar fyrir slík sæti og öryggisbelti. Sætin mega vera losanleg.
  • Í öðru lagi er nefnt að gluggar verða að vera á báðum hliðum ökutækisins í aftara rými.
  • Í þriðja lagi eru nefndar hurðir með gluggum í aftara rými.
  • Í fjórða lagi er nefndur skortur á varanlegu skilrúmi milli svæðisins fyrir ökumann og aftara rýmis.
  • Í fimmta lagi er nefnd tilvist þæginda, búnaður og innra byrði (innréttinga) sem eru oft í farþegarýmum.

Umræddar bifreiðar uppfylla fjögur af þessum fimm atriðum. Þannig eru sæti fyrir fjóra farþega fyrir aftan bílstjórasætisröðina. Gluggar eru á hliðum bifreiðanna, það er rennihurð með gluggum á hlið bifreiðanna og það er ekki skilrúm sem skilur að bílstjórasætisröðina frá restinni af rýminu.

Hinn vöruliðurinn sem til skoðunar kom er vöruliður 8704 fyrir ökutæki til vöruflutninga. Í skýringabókum Alþjóðatollastofnunarinnar er einnig að finna fimm atriði sem benda til þess að ökutækið eigi að flokka í þann vörulið. Þeim svipar mjög til áðurnefndra atriða fyrir vörulið 8703 en með öfugum formerkjum. Þau eru eftirfarandi:

· Í farangursrými mega vera einfaldir bekkir sem yfirleitt eru samanfellanlegir svo hægt sé að nýta rýmið til fulls sem farangursrými. Í rýminu má hins vegar ekki vera öryggisbúnaður eða festingar sem leyfa öryggisbúnað eins og öryggisbelti.

  • Klefi fyrir ökumann og farþega á að vera aðskilinn palli (fyrir pallbifreiðar).
  • Ekki mega vera gluggar í hliðum farangursrýmis. Hurðir mega vera til staðar en þær verða að vera án glugga.
  • Varanlegt skilrúm skal vera á milli ökumanns og farþega fram í bifreiðinni annars vegar og á milli farangursrýmis.
  • Ekki mega vera til staðar þægindi, búnaður eða innréttingar í farangursrými sem oft eru í tengslum við og má finna í farþegarýmum.

Þrátt fyrir að vörurými bifreiðanna er meira um sig en farþegarýmið þá er ljóst að bifreiðarnar sem um ræðir í þessu máli uppfylla ekkert af þessum 5 atriðum skýringabóka Alþjóðatollastofnunarinnar og geta því ekki flokkast í vörulið 8704. Því ber að flokka bifreiðarnar sem ökutæki aðallega gert til mannflutninga í vörulið 8703.

Kærandi bendir á að í framleiðsluvottorði frá Ford umboðinu í Þýskalandi, útflutningspappírum og farmskýrslu komi fram að bifreiðarnar séu í tollflokk nr. 8704-2199 og því til stuðnings sé lýsing á hvað teljist vera sendibifreið skv. ökutækjaflokki N1 sbr. undirlið 01.13. 1. gr. reglugerðar nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja, sbr. 2 .tl. 1. gr. reglugerðar 349/2007. Í því sambandi þykir rétt að benda á að Tollstjóri er bundinn af tollalögum og tollskrá hvað varðar tollflokkun, sbr. 1. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 20. gr. tollalaga nr. 88/2005. Hljóta því samskonar vörur samskonar tollflokkun. Ökutækjaflokkun í reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004 eða skráning Samgöngustofu hefur ekki úrslitaþýðingu við tollflokkun enda byggist slíkt skráning ekki á tollskrá.

Kærandi heldur því fram að aðrar sambærilegar bifreiðar hafi verið tollafgreiddur í tollflokk nr. 8704.2199. Vísar kærandi í því sambandi til ákveðinnar bifreiðar sem kærandi telur að sé sambærileg bifreiðum kæranda og tollafgreidd var í tollflokk nr. 8704.2199. Tollstjóri vill í þessu sambandi taka fram að hafi röng framkvæmd verið viðhöfð í sambærilegum málum þá réttlæti það ekki áframhaldandi ranga framkvæmd.

Auk ofangreinds er tekið fram að við tollafgreiðslu skal vara tollflokkuð og þ.a.l. tollafgreidd í því ástandi sem hún er í við innflutning, en ekki er að finna heimild í tollalögum til aðvinnslu vöru eftir tollafgreiðslu og leiðréttingar á tollafgreiðslu í samræmi við þá aðvinnslu. Í 1. mgr. 9. gr. laga um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. nr. 29/1993 er fjallað um breytingar á ökutækjum sem verða til þess að ökutæki flokkast í hærri gjaldflokk. Í ákvæðinu segir að ef ökutæki, sem skráð hefur verið samkvæmt umferðarlögum, sé breytt þannig að það flokkist í hærri gjaldflokk en við upphaflega skráningu skuli skráður eigandi þess greiða viðbótarvörugjald ef breytingin á sér stað innan fimm ára frá upphaflegum skráningardegi. Ekki er hins vegar að finna heimild í áðurgreindum lögum eða í reglugerð nr. 331/2000 um vörugjald af ökutækjum, til að endurgreiða mismun á vörugjaldi eftir aðvinnslu bifreiðar.

Af ofangreindu er ljóst að löggjafinn taldi sérstaka ástæðu til að kveða á um breytingu á vörugjaldi til hækkunar ef ökutæki skipta um gjaldflokk eftir breytingu. Tollstjóri telur sér ekki heimilt að lögjafna frá ákvæðinu á þann hátt að sama gildi um breytingu sem verður til þess að ökutæki falli í lægri gjaldflokk.

Að öllu ofangreindu virtu er niðurstaða embættis Tollstjóra að bifreiðarnar F, G og H flokkist sem ökutæki aðallega gert til mannflutninga í vörulið 8703, nánar tiltekið 8703.3240.

ÚRSKURÐARORÐ

Embætti Tollstjóra úrskurðar skv. 117. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, að bifreiðarnar F, G og H af gerðinni Ford Transit flokkast í tollskrárnúmer 8703.3240.

Kæruréttur

Úrskurðinum er heimilt að skjóta til yfirskattanefndar, Borgartúni 21, 105 Reykjavík, innan þriggja mánaða frá póstlagningardegi bréfs þessa, sbr. 118. gr. tollalaga nr. 88/2005 og 1. mgr. 5. gr. laga nr. 30/1992, um yfirskattanefnd.


Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum