Úrskurðir tollgæslustjóra

Úrskurður nr. 12/2011

Höfnun viðtöku EUR 1 skírteinis sem lagt var fram eftir tollmeðferð sendingar

5.7.2011

Í dag var hjá Tollstjóra kveðinn upp svofelldur

Ú R S K U R Ð U R

I. Kæra

Með bréfi, dags. 7. júní 2011, hefur S. farið þess á leit við embætti Tollstjóra að álagning aðflutningsgjalda vegna sendingar með sendingarnúmer E SEL 16 05 1 NL RTM V853 verði endurskoðuð með tilliti til EUR 1 upprunasönnunar sem lögð var fram eftir tollmeðferð sendingarinnar. Um er að ræða kæru í skilningi 117. gr. tollalaga nr. 88/2005. Kærandi krefst þess að ákvörðun Tollstjóra verði tekin til endurskoðunar.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Varan barst til landsins þann 16. maí 2011 með sendingu með sendingarnúmer E SEL 16 05 1 NL RTM V853 frá Hollandi. Um var að ræða ýmis konar barnafatnað og fylgihluti. Við SMT-tollafgreiðslu þann 18. maí sama ár lá ekki fyrir EUR 1 flutningsskírteini. Þar sem ekki lágu fyrir nauðsynleg gögn um uppruna vörunnar og þar sem ekkert í meðfylgjandi reikningum og öðrum gögnum benti til þess að um upprunavöru væri að ræða voru lögð á hana aðflutningsgjöld að fullu. Þann 27. maí 2011 barst tollayfirvöldum EUR 1 skírteini fyrir vörunni, útgefið 10. maí sama ár. Tollstjóri hafnaði beiðni innflytjanda um leiðréttingu 31. maí 2011 þar sem varan hafði þegar verið tollafgreidd og afhent og þar með væri ómögulegt að framkvæma vöruskoðun líkt og nauðsynlegt er í slíkum tilfellum.

III. Meginröksemdir kæranda

Kærandi ber því við að mistök af hálfu starfsmanns flutningsmiðlara hafi valdið því að EUR 1 flutningsskírteini var ekki lagt fram við tollafgreiðslu sendingarinnar. Upprunasönnunin hefði fylgt með sendingunni að utan en hún hefði hins vegar farið fram hjá starfsmanni flutningsmiðlarans. Strax og upp komst um mistökin hafi upprunasönnun verið útveguð og hún lögð inn hjá Tollstjóra.

IV. Niðurstöður

Í 28. gr. tollalaga nr. 88/2005 eru talin upp þau skjöl sem liggja skulu til grundvallar aðflutningsskýrslu. Í fjórða tölulið greinarinnar er sérstaklega áréttað að upprunasannanir skuli fylgja með í þeim tilvikum þegar sett er fram krafa um fríðindameðferð innfluttrar vöru. Samkvæmt 1. mgr. 32. gr. tollalaga ber innflytjandi ábyrgð á því að aðflutningsskýrsla og þær upplýsingar sem koma þar fram séu réttar. Meginreglan er því sú að innflytjandi beri hallann af rangri skýrslugjöf og að nauðsynlegar upplýsingar um uppruna vöru komi fram.

Telji innflytjandi sig vanta einhver þau gögn sem 28. gr. tollalaga tekur til eða að gögn þau sem viðkomandi hafi undir höndum séu ekki fullnægjandi getur hann samkvæmt 36. gr. tollalaga farið fram á að Tollstjóri heimili bráðabirgðatollafgreiðslu vöru gegn því að hann greiði allan kostnað af tollskoðun og setji fram fjártryggingu.

Þegar aðflutningsskýrsla vegna ofangreindrar sendingar barst til Tollstjóra kom þar ekkert fram sem bent gat til þess að um upprunavöru væri að ræða og engin upprunasönnun fylgdi með skýrslunni. Hvorki meðfylgjandi reikningar né önnur gögn bentu sérstaklega til þess að um upprunavöru væri að ræða né gáfu tilefni til þess að það væri kannað sérstaklega. 

Þegar möguleikar á leiðréttingu eftir tollmeðferð, samkvæmt 116. gr. tollalaga, eru metnir verður að taka mið af því hvort þörf sé vöruskoðunar til að staðreyna réttmæti leiðréttingar og hvort að unnt sé að koma henni við. Vöruskoðun getur verið nauðsynleg til þess að staðreyna að um upprunavöru sé að ræða en svo var ástatt var í máli þessu. Sendingin sem mál þetta varðar var tollafgreidd 18. maí 2011 en EUR 1 upprunaskírteini ásamt beiðni um endurskoðun aðflutningsgjalda barst embætti Tollstjóra ekki fyrr en 27. maí sama ár. Tollstjóra var þannig ekki unnt að staðreyna með vöruskoðun hvort að leiðrétting aðflutningsgjalda ætti rétt á sér, enda var búið að tollafgreiða sendinguna og kærandi hafði þegar fengið hana afhenta.

Af framansögðu er ljóst að ekki er hægt að taka beiðni kæranda um endurskoðun aðflutningsgjalda til greina hvað varðar þá sendingu sem mál þetta snýst um.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Embætti Tollstjóra úrskurðar skv. 117. gr. tollalaga nr. 88/2005, með vísan til þess sem að framan er rakið, að ákvörðun um álagningu aðflutningsgjalda á vöru sem barst til landsins í sendingu með sendingarnúmer E SEL 16 05 1 NL RTM V853, dags. 18. maí 2011, skuli standa óröskuð.

Kæruréttur

Úrskurðinum er heimilt að skjóta til ríkistollanefndar, Skúlagötu 57, Reykjavík, innan 60 daga frá póstlagningardegi bréfs þessa, sbr. 1. mgr. 118. gr. tollalaga.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum