Úrskurðir tollgæslustjóra

Úrskurður nr. 12/2013

Höfnun beiðni um niðurfellingu aðflutningsgjalda af gjöf

21.11.2013

Í dag var hjá embætti Tollstjóra kveðinn upp svofelldur

Ú R S K U R Ð U R

I. Kæra

Með bréfi, sem móttekið var þann 17. október 2013, hefur K, kært til úrskurðar skv. 117. gr. tollalaga nr. 88/2005 ákvörðun Tollstjóra, dags. 7. október 2013, um höfnun beiðni um niðurfellingu aðflutningsgjalda á póstsendingu nr. P 150 30 09 3 IS B28 3326.

Kærandi fer fram á leiðréttingu álagðra gjalda.

II. Málsmeðferð

Þann 30. september 2013 barst hingað til lands sending nr. P 150 30 09 3 IS B28 3326, sem innihélt fjóra kuldagalla. Þann 4. október sama ár sendi kærandi Tollstjóra tölvupóst þar sem fram kom að umrædd sending innihéldi kuldagalla fyrir börn hans og væru afmælisgjafir frá ættingjum þeirra í Svíþjóð. Þann 7. október tilkynnti Tollstjóri kæranda að beiðni um gjafafríðindi væri hafnað að hluta til, en fallist var á að tveir gallana gætu talist vera afmælisgjafir. Því var hafnað að hinir tveir gallarnir gætu fengið tollfríðinda meðferð sem gjafir þar sem börnin áttu afmæli í júní og því of langt liðið frá afmæli þeirra þegar sendingin barst hingað til lands.

Kæra vegna ofangreindrar ákvörðunar Tollstjóra barst embættinu þann 17. október 2013.

III. Meginröksemdir kæranda

Kærandi kveður að systkini sín, sem búsett eru í Svíþjóð, hafi ákveðið að gefa börnum hans afmælisgjafir sem myndu nýtast vel og því sent umræddan pakka sem innihélt kuldaföt fyrir veturinn. Kærandi á fjögur börn á aldrinum 4 – 7 ára. Gjafirnar voru allar sameinaðar í eina sendingu, þar sem um er að ræða eins gjafir handa öllum börnunum. Þá tekur kærandi fram að tvö barnanna eigi afmæli í júní og ekki hafi verið tímabært að kaupa eða senda kuldagalla að sumarlagi.

Kærandi kveðst hafa verið krafinn um toll af vörunum þegar sendingin kom til landsins, þó svo að hann hafi skýrt frá því að um afmælisgjafir væri að ræða og verðmæti þeirra hafi verið undir leyfilegu hámarki. Kærandi telur sig uppfylla þau skilyrði sem sett eru fyrir gjafafríðindum skv. 32. gr. reglugerðar nr. 630/2008 um ýmis tollfríðindi, þar sem hver gjöf er undir hámarks fjárhæðinni 13.500 kr., hann sé búinn að sýna fram á að um gjöf sé að ræða til fjögurra barna, sendingin sé frá systkinum kæranda og hann hafi skýrt vel frá því hvers vegna allir kuldagallarnir komu saman í einum og sama pakkanum sem hafi verið af hagkvæmnisástæðum. Um sé að ræða kuldagalla fyrir veturinn og það sé ástæða þess að sendingin hafi komið á þessum tíma árs. Kærandi telur að ekkert komi fram í áðurgreindu ákvæði reglugerðar nr. 630/2008 um hvenær afmælisgjöf skuli berast til landsins.

Kærandi fer fram á niðurfellingu aðflutningsgjalda vegna ofangreindrar sendingar.

IV. Niðurstöður

Meginregla tollalaga nr. 88/2005 er sú að almenn tollskylda hvílir á hverjum þeim sem flytur inn vöru til landsins til endursölu, afhendingar án endurgjalds eða eigin nota eða verður ábyrgur fyrir greiðslu tolla samkvæmt tollalögum, sbr. 3. gr. laganna. Undantekning frá meginreglunni er m.a. að finna í 1. mgr. 6. gr. laganna. Allar undantekningar ber að túlka þröngt og verður því að gera ríkar kröfur um að skilyrðum fyrir undantekningu á almennri tollskyldu séu fyrir hendi.

Gjafir sem sendar eru til landsins eru tollfrjálsar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, það er að segja að um sé að ræða gjafir sem aðilar búsettir erlendis senda hingað til lands eða hafa með sér frá útlöndum af sérstöku tilefni, þó ekki í atvinnuskyni, enda sé verðmæti gjafarinnar ekki meira en 13.500 kr. Sé verðmæti gjafar meira en 13.500 kr. skal gjöf þó einungis tollskyld að því marki sem hún er umfram þá fjárhæð að verðmæti, sbr. 8. tl. 1. mgr. 6. gr. tollalaga.

Í reglugerð nr. 630/2008 um ýmis tollfríðindi er ofangreint ákvæði tollalaga nánar útfært, sbr. reglugerðarheimild í 2. mgr. 6. gr. tollalaga. Í 32. gr. reglugerðarinnar kemur fram að með gjöfum af sérstöku tilefni skv. a-lið 8. tl. 1. mgr. 6. gr. tollalaga, sem undanþegnar eru aðflutningsgjöldum, sé átt við tækifærisgjafir sem aðilar búsettir erlendis senda til landsins eða hafa meðferðis frá útlöndum vegna tilefna sem tengjast einkalífinu, svo sem vegna jóla, afmælis eða fermingar, enda sé verðmæti þeirra að hámarki kr. 13.500 miðað við smásöluverð á innkaupsstað.

Ágreiningur stendur um hvort umrædd sending innihaldi afmælisgjafir og falli þar með undir gjafaákvæði a-liðar 8. tl. 1. mgr. 6. gr. tollalaga, eða beri almenna tollskyldu, sbr. 3. gr. laganna.

Kærandi heldur því fram að um sé að ræða afmælisgjafir handa fjórum börnum sínum. Samkvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá eiga tvö börn kæranda afmæli í júní, eitt í nóvember og annað í desember, en gjafirnar bárust hingað til lands þann 30. september sl. Þegar lagt er mat á það hvort í raun sé um að ræða afmælisgjafir í sendingu sem þessari er meðal annars horft til þess hvort sérstakt tilefni til að senda gjöf sé fyrir hendi, sbr. a-lið 8. tl. 1. mgr. 6. gr. tollalaga og 32. gr. reglugerðar 630/2008 um ýmis tollfríðindi. Þegar mat er lagt á það hvort gjöf sé send af sérstöku tilefni er litið til þess hvort gjafasending berst í kringum það tilefni sem sendandi tiltekur. Ekki er kveðið á um það í tollalögum eða reglugerð nr. 630/2008, hvenær gjöf skuli berast til landsins til að geta talist afmælisgjöf. Embætti Tollstjóra hefur þó litið svo á að til að sending geti talist vera afmælisgjöf verði hún að berast í kringum afmælisdag viðtakanda. Ella væri mun meiri erfiðleikum háð að meta hvort sending innihaldi raunverulega afmælisgjöf. Telja verður að eðli málsins samkvæmt séu gjafir almennt sendar nálægt dagsetningu tilefnis. Berist sending ekki í kringum tilefni er því litið svo á að hún sé ekki í nægum tengslum við það tilefni sem sendandi tiltekur og uppfylli þar af leiðandi ekki skilyrði áðurnefndra ákvæða tollalaga og reglugerðar um ýmis tollfríðindi um að vera gjöf af sérstöku tilefni. Þessi túlkun samræmist því markmiði laganna að gjafir þurfi að vera af sérstöku tilefni.Tekið er mið af aðstæðum hverju sinni, en ekki er gerð krafa um að gjöf komi nákvæmlega á afmælisdegi viðtakanda. Út frá sanngirnissjónarmiðum er til dæmis í einstaka tilvikum gefinn rýmri tímarammi þegar sendingar koma lengra frá og sendingartíminn er þar af leiðandi lengri. Sending sú sem um ræðir í þessu máli kom frá Svíþjóð, en ekki getur talist að sendingartími þaðan teljist svo langur að gefa beri lengri tímafrest. Þegar litið er til þess hversu langur tími líður á milli afmælisdaga hluta barna kæranda og komudags sendingarinnar þá er ekki hægt að fallast á með kæranda að allar vörurnar falli undir gjafafríðindi tollalaga. Tæpir fjórir mánuðir voru liðnir frá afmæli þeirra tveggja barna kæranda sem eiga afmæli í júní þegar sendingin barst. Þá munu um tveir og hálfur mánuðir líða frá því að sendingin barst og þar til barn kæranda á afmæli í desember. Er því ekki hægt að fallast á að þrír kuldagallar í umræddri sendingu geti talist vera afmælisgjafir í skilningi a-liðar 8. tl. 1. mgr. 6. gr. tollalaga, sbr. 32. gr. reglugerðar nr. 680/2008.

Hin kærða ákvörðun Tollstjóra dags. 7. október sl. er vissum annmörkum háð. Með ákvörðun Tollstjóra í málinu var fallist á að tveir kuldagallana gætu talist afmælisgjafir í skilningi tollalaga. Hins vegar er ljóst að mistök áttu sér stað við afgreiðslu málsins, þar sem einungis einn gallana hefði réttilega átt að vera afgreiddur sem gjöf sbr. það sem að ofan er rakið, þ.e. sá galli sem tilheyrir því barni kæranda sem á afmæli í nóvember. Hinn gallinn hefði með réttu ekki átt að hljóta sömu fríðindameðferð þar sem afmælisdagur þess barns er um miðjan desember og því mun líða of langur tími á milli afmælisdagsins og móttökudags sendingar til landsins, eða um tveir og hálfur mánuðir. Um er að ræða mistök af hálfu Tollstjóra við afgreiðslu málsins sem kærandi verður ekki látinn bera hallan af, verður hin kærða ákvörðun því staðfest.

Með vísan til alls ofangreinds teljast skilyrði til frekari niðurfellingar aðflutningsgjalda af vörum í sendingu nr. P 150 30 09 3 IS B28 3326, skv. a-lið 8.tl. 1. mgr. 6. gr. tollalaga, sbr.

32. gr. reglugerðar nr. 680/2008, ekki uppfyllt. Ákvörðun um höfnun á niðurfellingu aðflutningsgjalda er því staðfest og ber kæranda að greiða aðflutningsgjöld af tveimur kuldagöllum af fjórum.

ÚRSKURÐARORÐ

Embætti Tollstjóra úrskurðar skv. 117. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, að ákvörðun Tollstjóra um höfnun beiðni um frekari niðurfellingu aðflutningsgjalda vegna gjafa er staðfest.

Kæruréttur

Úrskurðinum er heimilt að skjóta til Ríkistollanefndar, Skúlagötu 57, Reykjavík, innan 60 daga frá póstlagningardegi bréfs þessa, sbr. 1. mgr. 118. gr. tollalaga.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum