Úrskurðir tollgæslustjóra

Úrskurður nr. 13/2013

Höfnun beiðni um niðurfellingu aðflutningsgjalda af gjöf

28.11.2013

Í dag var hjá embætti Tollstjóra kveðinn upp svofelldur

Ú R S K U R Ð U R

I. Kæra

Með tölvupósti dags. 29. október 2013, hefur P, kært til úrskurðar skv. 117. gr. tollalaga nr. 88/2005, ákvörðun Tollstjóra dags. 29. október 2013, um höfnun beiðni um niðurfellingu aðflutningsgjalda á póstsendingu nr. P 150 25 10 3 IS R31 9131.

Kærandi fer fram á leiðréttingu álagðra gjalda.

II. Málsmeðferð

Þann 25. október 2013 barst hingað til lands sending nr. P 150 25 10 3 IS R31 9131, sem innihélt fótboltaskó ásamt 10 sterlingspundum í peningum. Kærandi sótti sendinguna þann 29. október 2013 og greiddi tilskilin gjöld.

Með tölvupósti dags. 29. október 2013 kvartaði kærandi yfir afgreiðslu málsins og óskaði eftir endurgreiðslu aðflutningsgjalda af ofangreindri sendingu. Embætti Tollstjóra leit á erindið sem stjórnsýslukæru, sbr. 117. gr. tollalaga nr. 88/2005.

III. Meginröksemdir kæranda

Kærandi kveður að um sé að ræða síðbúna afmælisgjöf handa yngri syni sínum, sem eigi afmæli í júní, frá bróður hans sem búsettur sé í London. Um sé að ræða takkaskó. Ástæða þess að gjöfin berist svona seint sé sú að í sumar hafi sonur hans verið búinn að eignast aðra takkaskó og því hafi verið ákveðið að hann skildi eiga gjöfina inni þar til hann vantaði nýja skó. Nú í október hafi hann vantað nýja takkaskó og því hafi afmælisgjöfin verið send á þeim tímapunkti.

Kærandi kveður að þegar sendingin hafi verið leyst út hafi aðflutningsgjöld að fjárhæð 4.422 kr. verið innheimt, þar sem tollverðir hafi hafnað því að um afmælisgjöf væri að ræða.

Kærandi fer fram á endurgreiðslu álagðra gjalda.

IV. Niðurstöður

Meginregla tollalaga nr. 88/2005 er sú að almenn tollskylda hvílir á hverjum þeim sem flytur inn vöru til landsins til endursölu, afhendingar án endurgjalds eða eigin nota eða verður ábyrgur fyrir greiðslu tolla samkvæmt tollalögum, sbr. 3. gr. laganna. Undantekningu frá þessari meginreglu er m.a. að finna í 1. mgr. 6. gr. laganna. Allar undantekningar ber að túlka þröngt og verður því að gera ríkar kröfur um að skilyrði fyrir undanþágu frá almennri tollskyldu séu fyrir hendi.

Gjafir sem sendar eru til landsins eru tollfrjálsar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, það er að segja að um sé að ræða gjafir sem aðilar búsettir erlendis senda hingað til lands eða hafa með sér frá útlöndum af sérstöku tilefni, þó ekki í atvinnuskyni, enda sé verðmæti gjafarinnar ekki meira en 13.500 kr. Sé verðmæti gjafar meira en 13.500 kr. skal gjöf þó einungis tollskyld að því marki sem hún er umfram þá fjárhæð að verðmæti, sbr. 8. tl. 1. mgr. 6. gr. tollalaga.

Í reglugerð nr. 630/2008 um ýmis tollfríðindi er ofangreint ákvæði tollalaga nánar útfært, sbr. reglugerðarheimild í 2. mgr. 6. gr. tollalaga. Í 32. gr. reglugerðarinnar kemur fram að með gjöfum af sérstöku tilefni skv. a-lið 8. tl. 1. mgr. 6. gr. tollalaga, sem undanþegnar eru aðflutningsgjöldum, sé átt við tækifærisgjafir sem aðilar búsettir erlendis senda til landsins eða hafa meðferðis frá útlöndum vegna tilefna sem tengjast einkalífinu, svo sem vegna jóla, afmælis eða fermingar, enda sé verðmæti þeirra að hámarki kr. 13.500 miðað við smásöluverð á innkaupsstað.

Ágreiningur stendur um hvort umrædd sending innihaldi afmælisgjöf og falli þar með undir gjafaákvæði a-liðar 8. tl. 1. mgr. 6. gr. tollalaga, eða beri almenna tollskyldu, sbr. 3. gr. laganna.

Kærandi heldur því fram að um sé að ræða afmælisgjöf handa syni sínum. Samkvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá á sonur kæranda afmæli í júní, en sendingin barst hingað til lands þann 25. október sl. Þegar lagt er mat á það hvort í raun sé um að ræða afmælisgjöf í sendingu sem þessari er meðal annars horft til þess hvort sérstakt tilefni til að senda gjöf sé fyrir hendi, sbr. a-lið 8. tl. 1. mgr. 6. gr. tollalaga og 32. gr. reglugerðar 630/2008 um ýmis tollfríðindi. Þegar mat er lagt á það hvort gjöf sé send af sérstöku tilefni er litið til þess hvort gjafasending berst í kringum það tilefni sem sendandi tiltekur. Ekki er kveðið á um það í tollalögum eða reglugerð nr. 630/2008, hvenær gjöf skuli berast til landsins til að geta talist afmælisgjöf. Embætti Tollstjóra hefur þó litið svo á að til að sending geti talist vera afmælisgjöf verði hún að berast í kringum afmælisdag viðtakanda. Ella væri mun meiri erfiðleikum háð að meta hvort sending innihaldi raunverulega afmælisgjöf. Telja verður að eðli málsins samkvæmt séu gjafir almennt sendar nálægt dagsetningu tilefnis. Berist sending ekki í kringum tilefni er því litið svo á að hún sé ekki í nægum tengslum við það tilefni sem sendandi tiltekur og uppfylli þar af leiðandi ekki skilyrði áðurnefndra ákvæða tollalaga og reglugerðar um ýmis tollfríðindi um að vera gjöf af sérstöku tilefni. Þessi túlkun samræmist því markmiði laganna að gjafir þurfi að vera af sérstöku tilefni.Tekið er mið af aðstæðum hverju sinni, en ekki er gerð krafa um að gjöf komi nákvæmlega á afmælisdegi viðtakanda. Út frá sanngirnissjónarmiðum er til dæmis í einstaka tilvikum gefinn rýmri tímarammi þegar sendingar koma lengra frá og sendingartíminn er þar af leiðandi lengri. Sending sú sem um ræðir í þessu máli kom frá Bretlandi, en ekki getur talist að sendingartími þaðan teljist svo langur að gefa beri lengri tímafrest. Þegar litið er til þess hversu langur tími líður á milli afmælisdags sonar kæranda og komudags sendingarinnar þá er ekki hægt að fallast á með kæranda að sendingin falli undir gjafafríðindi tollalaga. Rúmir fjórir mánuðir voru liðnir frá afmæli hans þegar sendingin barst. Er því ekki hægt að fallast á innihald umræddrar sendingar geti talist vera afmælisgjöf í skilningi a-liðar 8. tl. 1. mgr. 6. gr. tollalaga, sbr. 32. gr. reglugerðar nr. 680/2008.

Með vísan til alls ofangreinds teljast skilyrði til niðurfellingar aðflutningsgjalda af vöru í sendingu nr. P 150 25 10 3 IS R31 9131, skv. a-lið 8.tl. 1. mgr. 6. gr. tollalaga, sbr. 32. gr. reglugerðar nr. 680/2008, ekki uppfyllt. Ákvörðun um höfnun á niðurfellingu aðflutningsgjalda er því staðfest og ber kæranda að greiða aðflutningsgjöld af sendingunni.

ÚRSKURÐARORÐ

Embætti Tollstjóra úrskurðar skv. 117. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, að ákvörðun Tollstjóra um höfnun beiðni um niðurfellingu aðflutningsgjalda vegna gjafar er staðfest.

Kæruréttur

Úrskurðinum er heimilt að skjóta til Ríkistollanefndar, Bríetartúni 7, 105 Reykjavík, innan 60 daga frá póstlagningardegi bréfs þessa, sbr. 1. mgr. 118. gr. tollalaga.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum