Úrskurðir tollgæslustjóra

Úrskurður nr. 18/2010

Álagning vörugjalds á leigubifreið

6.9.2010

Í dag var hjá embætti Tollstjóra kveðinn upp svofelldur

Ú R S K U R Ð U R

I. Kæra

Með bréfi, dags. 23. febrúar 2010, hefur A, kært skv. 117. gr. tollalaga nr. 88/2005, sbr. 27. gr. laga um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti, o.fl. nr. 29/1993, ákvörðun Tollstjóra um álagningu 45% vörugjalds á leigubifreiðina K og innheimtu mismunar á fjárhæð vörugjalds sem greitt var við tollafgreiðslu og fulls vörugjalds auk virðisaukaskatts af því.

Kærandi krefst þess að ákvörðunin verði afturkölluð.

II. Málsmeðferð

Þann 5. september 2007 sótti kærandi, sem stundar leigubifreiðaakstur, um lækkun vörugjalds í 13% af leigubifreiðinni K samkvæmt 4. tölul. 2. mgr. 5. gr. laga nr. 29/1993 um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. Sama dag undirritaði kærandi yfirlýsingu þar sem hann skuldbatt sig til að hlíta þeim skilyrðum sem sett eru um nýtingu bifreiðarinnar, m.a. um lágmarkstekjur af leigubifreiðaakstri, og skyldu til að senda tollstjóra staðfest endurrit af skattskýrslu, sbr. 15. gr. reglugerðar nr. 331/2000 um vörugjald af ökutækjum. Í yfirlýsingunni er jafnframt kveðið á um skyldu kæranda til greiðslu ógreidds vörugjalds, verði brotið gegn fyrrgreindum skilyrðum, sbr. 2. mgr. 21. gr. reglugerðarinnar. Tollstjórinn í Reykjavík annaðist framkvæmd lækkunarinnar þann 7. september 2007.

Með bréfi dags. 23. september 2009 fór embætti tollstjóra þess á leit að staðfestu endurriti af skattskýrslu næsta heila almanaksárs eftir að eftirgjöf var veitt yrði skilað inn og veitti til þess 15 daga frest. Embættinu hafði ekki borist skattskýrsla innan frestsins og tók því ákvörðun um álagningu 45% vörugjalds á bifreiðina og innheimtu á mismun á lækkuðu og fullu vörugjaldi, kr. 679.770.- og virðisaukaskatti af mismuninum, kr. 166.544.- alls kr. 846.314. Kæranda var tilkynnt ákvörðunin með bréfi dags. 18. febrúar 2010. Með bréfi sem barst embættinu 25. febrúar 2010 óskaði kærandi eftir að Tollstjóri afturkallaði innheimtu vörugjaldsins og var litið á erindið sem kæru. Með bréfi, dags. 1. júní 2010 fór embætti tollstjóra fram á að lagt yrði fram skattframtal 2010 fyrir tekjuárið 2009. Þessi beiðni var ítrekuð með bréfi dags. 5. ágúst 2010. Afriti skattframtals 2010 fyrir tekjuárið 2009 var skilað af J, með tölvupósti, dags. 27. ágúst 2010.

III. Meginröksemdir kæranda

Kærandi telur sig uppfylla skilyrði um lágmarkstekjur og heldur því fram að starfsmaður Tollstjóra hafi veitt honum þær upplýsingar að hann þyrfti að uppfylla skilyrði fyrir upphæð reiknaðs endurgjalds í staðgreiðslu, sbr. 3. tölul. 2. mgr. 15. gr. reglugerðar nr. 331/2000, í 12 mánuði af næstu 24 mánuðum frá eftirgjöf vörugjalds. Hann hafi reiknað sér endurgjald að upphæð kr. 157.100,- kr. á mánuði frá júní 2008 til og með ágúst 2009 eða alls 15 mánuði. Hann sé auk þess í fullu starfi við leigubifreiðaakstur.

IV. Niðurstöður

Í 1. gr. laga nr. 29/1993 um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. er kveðið á um að greiða skuli í ríkissjóð vörugjald af ökutækjum sem skráningarskyld eru skv. umferðarlögum nr. 50/1987. Samkvæmt 3. gr. laganna skal vörugjald lagt á fólksbifreiðar og önnur vélknúin ökutæki, sem ekki eru sérstaklega tilgreind í 4. gr., eftir gjaldflokkum miðað við sprengirými aflvélar, mælt í rúmsentímetrum. Í flokk I falla ökutæki með 2.000 rúmsentímetra sprengirými eða minna og leggst á þau 30% vörugjald. Í flokk II falla ökutæki með yfir 2.000 rúmsentímetra sprengirými og leggst 45% vörugjald á þau. Bifreiðin K fellur í flokk II og leggst því 45% vörugjald á slíkar bifreiðar að öllu jöfnu.

Á leigubifreiðar til fólksflutninga leggst lægra vörugjald samkvæmt 4. tölul. 2. mgr. 5. gr. laganna. Á ökutæki í flokki I leggst 10% vörugjald, en á ökutæki í flokki II leggst 13% vörugjald.Við tollafgreiðslu bifreiðarinnar K var lagt á hana 13% vörugjald þar sem hún er leigubifreið. Um er að ræða undanþágu frá skattskyldu sem bundin er ákveðnum skilyrðum. Kveðið er á um frekari skilyrði lækkunar í reglugerð nr. 331/2000 um vörugjald af ökutækjum í samræmi við heimild í 3. mgr. 5. gr. laga nr. 29/1993.

Álagning lægra vörugjalds á leigubifreiðar er m.a. háð því skilyrði að rétthafi lækkunar vörugjalds hafi í tekjur að lágmarki 70% af reiknuðu endurgjaldi í staðgreiðslu eins og það er ákvarðað af ráðherra árlega, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, næsta heila almanaksár eftir að eftirgjöf var veitt, sbr. 3. tölul. 2. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar. Miðað er við flokk E4 í reglum nr. 3/2008 um reiknað endurgjald á tekjuárinu 2008. Undir flokk E fellur ýmis starfsemi einyrkja, ófaglærðra og vélstjórnenda. Fyrir tekjuárið 2008 skulu tekjur að lágmarksupphæð kr. 2.664.000.- taldar fram í tekjur í flokki E4. Rétthafi lækkunarinnar skal því reikna sér til tekna ekki lægra endurgjald en kr. 1.864.800.- vegna aksturs leigubifreiðar fyrir tekjuárið 2008. Sama lágmarksupphæð gildir fyrir tekjuárið 2009.

Í fyrrgreindum ákvæðum er skýlaust tekið fram að skilyrði undanþágu sé að viðkomandi undanþáguþegi skuli hafa ákveðnar lágmarkstekjur af akstri leigubifreiðar næsta heila almanaksár eftir að eftirgjöf er veitt. Áður hafði skilyrðið verið að skila bæri skattframtölum næstu tveggja almanaksára eftir að eftirgjöf var veitt. Um er að ræða breytingu skv. reglugerð nr. 416/2007 um breytingu á reglugerð nr. 331/2000, sem birt var í maí 2007 og tók gildi þann 1. júlí 2007. Fyrir mistök var kærandi látinn skrifa undir yfirlýsingu á eldra eyðublaði, sem tiltók það skilyrði sem fallið var úr gildi þegar yfirlýsing var undirrituð þann 5. september 2007. Þar af leiðandi var sú ákvörðun tekin að heimila kæranda að skila einnig inn skattframtali 2010 fyrir tekjuárið 2009.

Samkvæmt framlögðu skattframtali 2009 fyrir tekjuárið 2008 reiknaði kærandi sér kr. 1.604.700.- í endurgjald. Sú upphæð er kr. 260.100.- eða u.þ.b. 14% undir því lágmarki sem kveðið er á um og nægir því ekki til að uppfylla skilyrði 3. tölul. 2. mgr. 15. gr. reglugerðar nr. 331/2000. Fyrir tekjuárið 2009 reiknaði kærandi sér kr. 1.363.200.- í endurgjald af leigubifreiðaakstri skv. skattframtali 2010 fyrir tekjuárið 2009. Sú upphæð er kr. 501.600.- eða u.þ.b. 27% undir fyrrgreindum lágmarkstekjum og uppfyllir því ekki skilyrði 3. tölul. 2. mgr. 15. gr. reglugerðar nr. 331/2000.

Eins og fram hefur komið er það fortakslaust skilyrði undanþágu að viðkomandi skuli hafa ákveðnar lágmarkstekjur af akstri leigubifreiðar næsta heila almanaksár eftir að eftirgjöf er veitt. Þar af leiðandi er ekki hægt að fallast á það með kæranda að hann hafi uppfyllt skilyrði um lágmarkstekjur, þrátt fyrir að hann hafi á tímabilinu júní 2008 til ágúst 2009 reiknað sér kr. 157.100.- í endurgjald á mánuði, sem á tólf mánaða tímabili hefði þýtt tekjur að fjárhæð kr. 1.885.200.-. Í fyrsta lagi uppfyllir tímabilið sem tekjurnar eru taldar fram á ekki skilyrði 3. tölul. 2. mgr. 15. gr. reglugerðar nr. 331/2000 þar sem ekki er um almanaksár að ræða. Í öðru lagi er sú heildartala sem kærandi taldi fram í reiknað endurgjald fyrir tekjuárið 2008 tæplega 14% undir þeirri lágmarksupphæð sem telja ber fram. Telja verður að um misskilning hafi verið að ræða varðandi þær upplýsingar sem kærandi segist hafa fengið hjá starfsmanni embættisins varðandi það tímabil sem framtaldar tekjur þurfa að vera í ákveðinni upphæð til að uppfylla skilyrði fyrir lækkun vörugjalds, enda skýrt kveðið á um að tímabilið skuli vera innan eins almanaks- og þar með tekjuárs. Þar fyrir utan hefur kærandi ekki lagt fram nein gögn til stuðnings þeirrar fullyrðingar. Með vísan til þess sem fram kemur að ofan hefur kærandi ekki uppfyllt skilyrði 3. tölul. 2. mgr. 15. gr. reglugerðar nr. 331/2000 um lágmarkstekjur af akstri leigubifreiða.

Samkvæmt 3. mgr. 15. gr. reglugerðar nr. 331/2000 gilda ákvæði 20. gr. reglugerðarinnar um greiðslu fulls vörugjalds og lögveð, ef brotið er gegn skilyrðum fyrir lækkun vörugjalds af leigubifreiðum. Í 20. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um að brjóti aðili sem nýtur lækkunar vörugjalds gegn skilyrðum sem sett eru um nýtingu ökutækis o.fl. skuli hann greiða ógreitt vörugjald, þ.e. mismun á fjárhæð vörugjalds sem greitt var og þeirri fjárhæð sem borið hefði að greiða ef ekki hefði komið til lækkunar eða niðurfellingar. Þar að auki ber að greiða virðisaukaskatt af vangreiddu vörugjaldi samkvæmt 34. gr. virðisaukaskattslaga nr. 50/1988. Ákvörðun Tollstjóra um innheimtu ógreidds vörugjalds er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Embætti Tollstjóra úrskurðar skv. 117. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, að ákvörðun Tollstjóra um álagningu 45% vörugjalds á leigubifreiðina K og innheimtu mismunar á fjárhæð vörugjalds sem greitt var við tollafgreiðslu og fulls vörugjalds auk virðisaukaskatts af því, dags. 18. febrúar 2010, er staðfest.

Kæruréttur

Úrskurðinum er heimilt að skjóta til Ríkistollanefndar, Skúlagötu 57, Reykjavík, innan 60 daga frá póstlagningardegi bréfs þessa, sbr. 1. mgr. 118. gr. tollalaga.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum