Úrskurðir tollgæslustjóra

Úrskurður nr. 5/2003.

Aðflutningsgjöld af bifreið af gerðinni Jeep Grand Cherokee Limited árg. 2001.

28.8.2003

Embætti tollstjórans í Reykjavík hefur móttekið bréf innflytjanda, dags. 8. júlí sl., þar sem kærð er sú ákvörðun embættisins að hafna við tollafgreiðslu, vörureikningi sem lagður var fram vegna tollafgreiðslu á bifreið sem flutt var til landsins frá Kanada fyrr á árinu. Sendingarnúmer: Y.

Umrædd bifreið er af gerðinni Jeep Grand Cherokee Limited árgerð 2001. Íslenskt skráningarnúmer er X. Innkaupsverð samkvæmt framlögðum vörureikningi er CDN. 21.000,00.

Samkvæmt 8. gr. tollalaga nr. 55/1987, með síðari breytingum, sbr. og 2. gr. reglugerðar nr. 374/1995, um tollverð og tollverðsákvörðun, er tollverð innfluttrar vöru hið svokallaða viðskiptaverð hennar, þ.e. það verð sem raunverulega er greitt fyrir vöruna. Í IV. kafla reglugerðarinnar er síðan mælt fyrir um hvernig tollverð vöru skuli ákveðið þegar viðskiptaverð verður af einhverjum ástæðum ekki lagt til grundvallar, sbr. 10-15. gr. reglugerðarinnar. Í V. kafla reglugerðarinnar er að finna sérákvæði vegna innflutnings ökutækja. Í 17. gr. kemur fram að við tollafgreiðslu ökutækis skuli tollstjóri bera viðskiptaverð þess eins og það kemur fram í aðflutningsskýrslu eða fylgiskjölum saman við viðmiðunarverð ökutækis af sömu tegund, undirtegund og árgerð í því landi sem ökutækið var keypt.

Embættið lét fara fram skoðun á ástandi bifreiðarinnar. Sú skoðun leiddi ekki í ljós nein merki tjóns eða annarra annmarka og er sérstaklega tekið fram á verkbeiðni um vöruskoðun að umrædd bifreið líti mjög vel út, svo vitnað sé orðrétt í verkbeiðni. Einnig kemur fram að engir lausir aukahlutir fylgi með bifreiðinni.

Í 18. gr. reglugerðar nr. 374/1995 er kveðið á um, að gefi eftirlit tollstjóra skv. 17. gr. réttmæta ástæðu til að draga í efa sannleiksgildi aðflutningsskýrslu eða fylgiskjala skuli tollstjóri krefja innflytjanda um nánari skýringar eða gögn til sönnunar því að viðskiptaverðið sé réttilega tilgreint í gögnum þessum. Var það gert með bréfi tollstjóra dags 3. júní 2003.

Embættinu barst svar dags. 4. júní 2003 við framangreindu bréfi, þar sem innflytjandi gaf m.a. þær skýringar á lágu viðskiptaverði bifreiðarinnar að bifreiðin hefði verið til sölu á eBay uppboðsvefnum en ekki selst og hafi því verið á hagstæðara innkaupsverði frá seljanda. Einnig kom fram að honum hefðu boðist góð kjör vegna magnviðskipta innflytjanda við seljanda bifreiðarinnar. Ekki eru heimildir í tollalögum né reglugerðum tengdum þeim fyrir tollstjóraembættið að taka tillit til framangreindra þátta. Ekki var talið að mati embættisins að rök innflytjanda nægðu til að skýra hið lága viðskiptaverð bifreiðarinnar og var innflytjanda því tilkynnt með bréfi dags. 4. júní 2003, að vörureikningi hefði verið hafnað og tollverð bifreiðarinnar ákvarðað, samkvæmt 20. gr. reglugerðar um tollverð og tollverðsákvörðun nr. 374/1995, ISK. 1.881.895,00.

Í bréfi innflytjanda dags. 8. júlí 2003 leggur innflytjandi fram frekari skýringar á lágu viðskiptaverði bifreiðarinnar s.s. að bifreiðin sé nýskráð í Kanada 19. október 2000 og hafi því verið afskrifuð í 32 mánuði þegar undirritaður keypti hana. Við útreikning embættisins á markaðsverði bifreiðarinnar var hún afskrifuð frá október 2000 til maí 2003 og er sú afskrift tollstjóraembættisins upp á 38%.

Með bréfi dags. 8. júlí 2003, kærir innflytjandi til úrskurðar, ákvörðun embættisins um að hafna við tollafgreiðslu, reikningsverði bifreiðarinnar.

Samkvæmt 5. kafla reglugerðar nr. 374/1995 skal við innflutning bera innkaupsverð ökutækja saman við viðskiptaverð sambærilegra ökutækja í viðskiptalandinu. Þegar miðað er við að verðmæti bifreiðarinnar samkvæmt aðflutningsskýrslu, þ.e. CDN. 20.000, við verðsamanburð skv. 17. gr. reglugerðar nr. 374/1995, þá er munurinn á verði samkvæmt aðflutningsskýrslu og viðmiðunarverði sem er CDN. 29.475,00 skv. The Red Book, um 28%.

Með hliðsjón af ástandi bifreiðarinnar, verulegu fráviki á reikningsverði og markaðsverði bifreiðarinnar samkvæmt upplýsingum sem embættið hefur aflað sér, telur embættið, að fram komnar skýringar innflytjanda á lágu verði hennar réttlæti ekki umræddan mun á viðmiðunarverði og verði samkvæmt reikningi seljanda. Verður því framlagður vörureikningur ekki lagður til grundvallar tollverðsákvörðun, sbr. 8. gr. reglugerðar nr. 374/1995 sem og ákvæða IV. og V. kafla sömu reglugerðar.

ÚRSKURÐUR:

Embætti tollstjórans í Reykjavík úrskurðar samkvæmt 100. gr. tollalaga nr. 55/1987 að með vísan til þess sem að framan er rakið og á grundvelli reiknireglu 21. gr. reglugerðar nr. 374/1995, að tollverð bifreiðarinnar Grand Cherokee Limited, árg. 2001, með skráningarnúmerið X, skuli vera ISK. 1.881.895,00.

Úrskurðurinn er kæranlegur til ríkistollanefndar, Skúlagötu 57, 101 Reykjavík og er kærufrestur 60 dagar frá póstlagningardegi bréfs þessa, sbr. 1. mgr. 101. gr. tollalaga nr. 55/1987, með síðari breytingum.

Reykjavík 28. ágúst 2003.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum