Úrskurðir tollgæslustjóra

Úrskurður nr. 6/2011

Höfnun umsóknar um endurgreiðslu vörugjalds vegna breytingar bifreiðar til nýtingar metangass

3.5.2011

Í dag var hjá Tollstjóra kveðinn upp svofelldur

Ú R S K U R Ð U R

I. Kæra

Með bréfi, dags. 28. febrúar 2011, hefur K kært til úrskurðar skv. 117. gr. tollalaga nr. 88/2005, sbr. 27. gr. laga nr. 29/1993 um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., ákvörðun Tollstjóra, dags. 14. febrúar 2011, um höfnun umsóknar um endurgreiðslu vörugjalds af bifreiðinni X vegna breytingar til nýtingar metangass sem orkugjafa. Breytingin var gerð þann 13. desember 2010. Kærandi krefst þess að vörugjald að upphæð kr. 106.000.- verði endurgreitt í samræmi við umsókn þar um.

II. Málsmeðferð

Bifreiðin X af gerðinni Ford Escape árgerð 2004 var flutt inn ný frá S árið 2004 og nýskráð á Íslandi þann 25. júní 2004. Kærandi keypti bifreiðina þann 10. október 2007. Þann 13. desember 2010 var bifreiðinni breytt þannig að settur var í hana búnaður sem gerir henni kleift að nýta bæði metangas og bensín sem orkugjafa. Með umsókn dags. 7. febrúar 2011 sótti kærandi um endurgreiðslu vörugjalds vegna breytingarinnar sem gerð hafði verið að upphæð kr. 106.000.- Með bréfi dags. 14. febrúar 2011 hafnaði embætti Tollstjóra umsókn kæranda um endurgreiðslu. Þessari ákvörðun mótmælti kærandi með kæru, dags. 28. febrúar 2011.

III. Meginröksemdir kæranda


Kærandi telur skilyrði fyrir endurgreiðslu vera uppfyllt, þar sem bifreiðin sé framleidd árið 2004 en breytingin gerð fyrir lok árs 2010. Bifreiðin hafi þar með verið yngri en 6 ára miðað við framleiðsluár.

IV. Niðurstaða

Greiða skal í ríkissjóð vörugjald af ökutækjum sem skráningarskyld eru skv. umferðarlögum nr. 50/1987 o.fl. samkvæmt 1. gr. laga nr. 29/1993 um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. Gjaldskyldan nær til allra skráningarskyldra ökutækja, nýrra sem notaðra, sem flutt eru til landsins eða eru framleidd, unnið að eða sett saman hér á landi, sbr. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 29/1993. Vörugjald af innfluttri vöru skal skv. 22. gr. innheimt við tollafgreiðslu, sbr. þó greiðslufrest skv. 23. gr. laganna.

Með lögum nr. 165/2010 var m.a. sett nýtt ákvæði nr. XIII til bráðabirgða í lögum nr. 29/1993. Ákvæðið tók gildi 1. janúar 2011. Fyrrgreint ákvæði veitir Tollstjóra heimild til að endurgreiða vörugjald af ökutækjum sem hefur verið breytt þannig að ökutækið nýtir metan í stað bensíns eða dísilolíu og hefur verið skráð sem slíkt hjá Umferðarstofu, sbr. 1. mgr. ákvæðisins. Í 2. mgr. ákvæðisins er kveðið á um að fjárhæð endurgreiðslu vörugjalds skv. 1. mgr. skuli vera 20% af kostnaði við breytinguna samkvæmt reikningi breytingaverkstæðis en þó ekki hærri en 100.000 kr. Auk þess skal vörugjald því aðeins endurgreitt að ökutæki sé yngra en sex ára við breytingu, miðað við framleiðsluár, og útbúið að lágmarki 78 lítra metangeymi.

Endurgreiðsla vörugjalds er því einvörðungu heimil ef bifreiðin uppfyllir ofangreind skilyrði. Bifreiðin hefur verið skráð með nýtingu bensíns og metangas hjá Umferðarstofu og við breytingu voru settir í hana tveir metangaskútar sem alls taka 106 lítra af metangasi, sbr. upplýsingar frá Umferðarstofu. Þá er það er skilyrði að ökutæki sé yngra en sex ára við breytingu, miðað við framleiðsluár. Bifreiðin var forskráð hjá Umferðarstofu þann 25. maí 2004 og nýskráð þann 25. júní 2004. Innflutningsástand bifreiðarinnar var samkvæmt skráningu nýtt, svo rétt er að miða framleiðsluár við árið 2004, þar sem ekki liggja fyrir gögn sem benda til annars. Það þýðir að bifreiðin var orðin sex ára þegar breyting var gerð á henni í desember 2010, en skilyrði er eins og fram hefur komið að ofan, að bifreiðin sé yngri en sex ára þegar breyting er gerð. Skilyrði fyrir endurgreiðslu vörugjalds eru því ekki uppfyllt. Engin heimild er til staðar til að fallast á umsókn kæranda um endurgreiðslu skv. XIII. ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 29/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Embætti Tollstjóra úrskurðar skv. 117. gr. tollalaga nr. 88/2005, sbr. 27. gr. laga nr. 29/1993 um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. með vísan til þess sem rakið er hér að framan að ákvörðun um höfnun umsóknar um endurgreiðslu vörugjalds af ökutækinu X vegna breytingar til nýtingar metangass, dags. 14. febrúar 2011, er staðfest.

Kæruréttur

Úrskurðinum er heimilt að skjóta til Ríkistollanefndar, Skúlagötu 57, Reykjavík, innan 60 daga frá póstlagningardegi bréfs þessa, sbr. 1. mgr. 118. gr. tollalaga.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum