Úrskurðir tollgæslustjóra

Úrskurður nr. 7/2008

Ákvörðun tollverðs bifreiðar af gerðinni Jeep Grand Cherokee, árg. 2005

22.1.2008

Í dag var hjá Tollstjóranum í Reykjavík (TSR) kveðinn upp svofelldur

Ú R S K U R Ð U R

I. Kæra

Með bréfi, dags. 12. nóv. 2007., hefur L, f.h. A, kært skv. 117. gr. tollalaga nr. 88/2005 þá ákvörðun TSR frá 17. ágúst 2007 að tollverð ofangreindrar bifreiðar verði ekki byggt á reikningi. Bifreiðin, sem er af gerðinni Jeep Grand Cherokee, árg. 2005, með fast númer X, var flutt til landsins í sendingu nr. M HES 29 05 7 NL VLI S126 og tollafgreidd 23. ágúst 2007.

Kærandi krefst þess að tollverð bifreiðarinnar verði ákvarðað á grundvelli kaupverðs skv. reikningi.

II. Málsmeðferð

Aðflutningsskýrslu vegna bifreiðarinnar, dags. 31. maí 2007, fylgdi ljósrit af reikningi frá 19. apríl 2007. Þar kemur fram að innflytjandi keypti bifreiðina af O á USD 10.100, en nefndur Ísleifur er í stjórn innflytjanda skv. fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra.

Meðal tollskjala var bandarískt skráningarskírteini sem sýndi „tjónaskráningu“ („salvage title“) og uppboðsreikningur frá C í Bandaríkjunum vegna sölu bifreiðarinnar á uppboði 2. mars 2007 á USD 8.055, með kostnaði.

TSR krafði innflytjanda um frekari staðfestingu á reikningsverðinu með bréfi, dags. 15. ágúst 2007, enda væri reikningsverðið, skv. upplýsingum embættisins, mun lægra en markaðsverð sambærilegra ökutækja i Bandaríkjunum. Að öðrum kosti gæti til þess komið að reikningnum yrði hafnað sem grundvelli tollverðs, sbr. 56. gr. reglugerðar nr. 1100/2006, um vörslu og tollmeðferð vöru.

Í tölvuskeytum O til TSR 11. og 12. júlí og 14. ágúst 2007 er m.a. fjallað um þýðingu „tjónaskráningar“ („salvagetitle“) í Bandaríkjunum og um verklag tryggingarfélaga við áætlun viðgerðarkostnaðar þegar tjónaðar bifreiðar eru seldar á uppboði.

Með bréfi TSR, dags. 17. ágúst 2007, var innflytjanda tilkynnt um að reikningnum hefði verið hafnað sem grundvelli tollverðs og, með skírskotun til Red Book, að fob-verð bifreiðarinnar hefði verið ákveðið USD 23.700.

III. Meginröksemdir kæranda

Kærandi heldur því fram að tollyfirvöld hafi sönnunarbyrðina fyrir því að reikningur sé rangur ef þau hafna honum sem grundvelli tollverðs. Þá segir að rökstuðningi fyrir hinni kærðu ákvörðun sé ábótavant og í því sambandi er m.a. vísað til 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Jafnframt segir að svo virðist sem hin kærða ákvörðun hafi ekki lagastoð. Borgararnir eigi að fá að njóta vafa sem kunni að vera uppi um að skilyrðum til að hafna reikningi sé fullnægt, enda um að ræða mjög íþyngjandi ákvörðun. Ekki hafi verið tekið tillit til fyrirliggjandi gagna í málinu, m.a. hvað varðar tjón á bifreiðinni. Meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga hafi ekki verið gætt; ákvörðunin sé ólögmæt og ógildanleg og þess er krafist að tollverðið verði byggt á reikningnum.

IV. Niðurstöður

Fyrst skal þess getið að skoðunargerð var ekki gerð af hálfu tollgæslunnar við tollafgreiðslu bifreiðarinnar eins og bar að gera skv. fyrirmælum Ríkistollstjóraembættisins, sem enn eru í gildi, og varða tollafgreiðslu innfluttra notaðra ökutækja. Ef þeim fyrirmælum er ekki fylgt, getur verið örðugra en ella að meta sönnunargildi málsgagna og staðhæfinga í kærumáli sem þessu.

Tollstjóri getur hafnað reikningi sem grundvelli tollverðs ef réttmæt ástæða er til að véfengja trúverðugleika hans, sbr. 56. gr. og 3. mgr. 64. gr. fyrrnefndrar reglugerðar. Byggja ákvæðin á 2. mgr. 16. gr tollalaga. Getur það t.d. verið vísbending um ótrúverðugleika reikningsverðs ef það er verulega lægra en markaðsverð sambærilegrar vöru í viðskiptalandinu. Í tengslum við mat á því hvort réttmæt ástæða sé til að hafna reikningi, verða tollyfirvöld að gera hæfilegar og eðlilegar kröfur til sönnunarfærslu innflytjanda. Ber og að gæta þess að innflytjandi á að njóta þess við ákvörðun tollverðs ef hann hefur gert góð kaup.

Í 17. gr. alþjóðlegs samnings um tollverð frá 1979, sem er fyrirmynd tollverðsreglna í fjöl- mörgum löndum, m.a. hér á landi, segir: „Engin ákvæði þessa samnings skal skilja þannig að réttur tollyfirvalda verði takmarkaður eða véfengdur til að staðreyna sannleiksgildi eða áreiðanleika hvers konar yfirlýsingar, skjals eða skýrslu sem lagt hefur verið fram vegna ákvörðunar tollverðs.“ (Samningur um framkvæmd VII. gr. hins almenna samnings um tolla og viðskipti (GATT) fylgdi frumvarpi því sem varð að tollalögum nr. 55/1987.)

Tollframkvæmd byggir á svonefndri „deklarasjónsreglu“, sbr. 22. gr. tollalaga og grunngildi sem m.a. búa að baki 17., 18., 20., 21, 27. og 34. gr. laganna, en hún felur m.a. í sér að inn- og útflytjendum ber, að eigin frumkvæði, að gera tollyfirvöldum grein fyrir viðkomandi vörum og á þann hátt og með þeim upplýsingum og gögnum sem áskilið er lögum samkvæmt, auk þess, eftir því sem við getur átt, að sýna fram á að fullnægt sé skilyrðum öðrum sem um tollafgreiðslu gilda, t.d. hvað varðar innflutningsleyfi eða upprunasönnun vegna fríverslunar. Upplýsingar um verðmæti vöru og annað sem máli skiptir við ákvörðun tollverðs, eru meðal atriða sem aðilar þurfa að standa tollyfirvöldum skil á.

Þegar innflytjanda var gefinn kostur á að njóta andmælaréttar með bréfi, dags. 15. ágúst 2007, hefði eðli máls samkvæmt og vegna fyrirmæla 56. gr. reglugerðar nr. 1100/2006 verið rétt að tiltaka ákveðinn og hæfilegan frest til andmæla. Ákvörðun í málinu var tilkynnt tveimur dögum síðar, 17. ágúst 2007, án þess að séð verði af málsgögnum að innflytjandi hafi nýtt andmæla- réttinn, sbr. þó fyrrnefnd tölvuskeyti O.

Umrædd bifreið mun hafa verið seld á netuppboði hjá C í Bandaríkjunum 2. mars 2007 á USD 8.055, með kostnaði. Þá var hún með „tjónaskráningu“ („salvage title“). Sala á uppboði lýtur nokkuð öðrum lögmálum en almenn sala og getur haft áhrif á söluverðið, sem nefnd skráningin, enda takmarkar hún nokkuð möguleika eiganda á ráðstöfun bifreiðarinnar í Bandaríkjunum. Til er reikningur vegna viðgerðar á bifreiðinni frá 17. apríl 2002 að upphæð USD 1.630,16.

Hið umdeilda reikningsverð X, USD 10.100, er 59,76% undir viðmiðunarverði Red Book, USD 25.100, að teknu tilliti til aksturs. (Í hinni kærðu ákvörðun var miðað við USD 23.700 í Red Book, en það virðist sem viðmiðunarverðið hefði átt að vera USD 23.800, en hafi átt að hækka í 25.100, að teknu tilliti til aksturs.)

Í hinni kærðu ákvörðun var fob-verð X ákveðið með skírskotun til Red Book, en það rit nota tollyfirvöld til viðmiðunar við mat á trúverðugleika reikninga vegna notaðra bifreiða sem fluttar eru inn frá Bandaríkjunum í samræmi við 64. gr. reglugerðar nr. 1100/2006. Tollverðið hefði átt að ákvarða skv. reiknireglu 66. gr. reglugerðarinnar, þar eð reikningi var hafnað og ekki talið unnt að beita 57.-61. gr. reglugerðarinnar, og e.t.v. hefði verið athugandi hvort skilyrði væru til að lækka tollverðið skv. 67. gr.

Að öllu athuguðu verða forsendur ekki taldar nægjanlega traustar til að hafna hinum umdeilda reikningi sem grundvelli tollverðs X, enda eru fyrirliggjandi upplýsingar og gögn í þessu kærumáli þess eðlis að þau geta skýrt hið lága kaupverð bifreiðarinnar. Tollverðið skal því byggt á reikningnum og ákvarðað í samræmi við meginregluna um viðskiptaverð vöru, sbr. 1. mgr. 14. gr. tollalaga og 2. mgr. 52. gr. reglugerðar nr. 1100/2006.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Hin kærða ákvörðun er úr gildi felld.

Tollverð X skal ákvarða á grundvelli reiknings.

Kæruréttur

Úrskurðinum er heimilt að skjóta til Ríkistollanefndar, Skúlagötu 57, Reykjavík, innan 60 daga frá póstlagningardegi bréfs þessa, sbr. 1. mgr. 118. gr. tollalaga.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum