Úrskurðir tollgæslustjóra

Úrskurður nr. 8/2010

Synjun Tollstjóra um endurgreiðslu vörugjalds og virðisaukaskatts af vélknúnu ökutæki sem flutt hefur verið úr landi

30.6.2010

Í dag var hjá embætti Tollstjóra kveðinn upp svofelldur

Ú R S K U R Ð U R

I. Kæra

Með bréfi, dags. 16. febrúar 2010, hefur A, f.h. B, kært skv. 117. gr. tollalaga nr. 88/2005 synjun Tollstjóra um endurgreiðslu vörugjalds og virðisaukaskatts af ökutæki með fastnúmer X sem flutt var úr landi þann 23. september 2009 með sendingu nr. U NOR 23 09 9 IS SEY T001.

Kærandi krefst þess að ofangreind ákvörðun um synjun endurgreiðslu verði afturkölluð.

II. Málsmeðferð

Kærandi sótti hjá embætti Tollstjóra um endurgreiðslu vörugjalds og virðisaukaskatts af bifreiðinni OG-365, sem er af gerðinni Ford Mustang, árgerð 2005, á þar til gerðu eyðublaði þann 18. september 2009. Bifreiðin var flutt úr landi þann 23. september 2009 með sendingu nr. U NOR 23 09 9 IS SEY T001. Með bréfi Tollstjóra, dags. 7. janúar 2010 var kæranda tilkynnt um höfnun umsóknar um endurgreiðslu vörugjalds og virðisaukaskatts, byggt á því að bifreiðin hafi ekki verið afskráð fyrir 31. desember 2009 og skilyrði fyrir endurgreiðslu því ekki til staðar. Bifreiðin var afskráð hjá Umferðarstofu þann 15. febrúar 2009. Ákvörðun Tollstjóra um höfnun umsóknar um endurgreiðslu vörugjalds og virðisaukaskatts af bifreiðinni IL-M10 var kærð með bréfi, dags. 16. febrúar 2010. Umboð til kæru, dags. 26. febrúar 2010 barst embættinu þann 1. mars 2010.

III. Meginröksemdir kæranda

Kærandi byggir kröfu sína um endurgreiðslu á því að skilyrði fyrir endurgreiðslu vörugjalda og virðisaukaskatts hafi verið uppfyllt og að hann hafi í september 2009 ekki fengið upplýsingar um að gjöld yrðu aðeins endurgreidd, ef bifreiðin yrði seld fyrir áramótin 2009/2010.

IV. Niðurstöður

Með lögum nr. 140/2008 bættust ný ákvæði til bráðabirgða við lög um vörugjald af bifreiðum nr. 29/1993 og lög um virðisaukaskatt nr. 50/1988. Ákvæðin tóku gildi þann 15. desember 2008. Samkvæmt þeim er heimilt að endurgreiða vörugjald og virðisaukaskatt af vélknúnum ökutækjum sem flutt eru úr landi. Heimild til endurgreiðslu gjaldanna gilti til og með 31. desember 2009 og annaðist Tollstjórinn í Reykjavík, nú Tollstjóri, endurgreiðsluna. Í reglugerð nr. 1144/2008 um endurgreiðslu vörugjalds og virðisaukaskatts af ökutækjum sem flutt eru úr landi er að finna nánari útfærslu á bráðabirgðaákvæðunum. Ágreiningur í fyrirliggjandi máli snýst um hvort skilyrði laganna til endurgreiðslu séu uppfyllt.

Samkvæmt fyrrgreindum ákvæðum til bráðabirgða er skilyrði endurgreiðslu að ökutækið hafi verið afskráð og flutt úr landi, sbr. einnig 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Í 2. tl. 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um að skilyrði fyrir endurgreiðslu sé að skráningarnúmer ökutækis skuli hafa verið afhent Umferðarstofu, ökutækið afskráð til nota hér á landi og fyrir liggi upplýsingar þar að lútandi við afgreiðslu umsóknar um endurgreiðslu hjá Tollstjóra. Reglan er því sú að bifreiðar skulu hafa verið afskráðar áður en þær voru sendar úr landi.

Í því máli sem hér liggur fyrir var bifreiðin flutt úr landi þann 23. september 2009. Með bréfi, dags. 7. janúar 2010, hafnaði embætti Tollstjóra umsókn kæranda um endurgreiðslu virðisaukaskatts og vörugjalds. Bifreiðin var afskráð hjá Umferðarstofu þann 15. febrúar 2010, eða ríflega fjórum og hálfum mánuði eftir að hún hafði verið flutt úr landi. Skilyrði fyrir endurgreiðslu skv. fyrrgreindum ákvæðum til bráðabirgða og ákvæðum reglugerðar nr. 1144/2008 voru því ekki uppfyllt.

Ekki er hægt að fallast á það með kæranda að fella beri ofangreinda ákvörðun úr gildi þar sem upplýsingagjöf embættisins hafi verið ábótavant. Kærandi heldur því fram að honum hafi ekki verið tilkynnt um að það væri skilyrði fyrir endurgreiðslu að bifreiðin væri seld fyrir áramót. Ekkert slíkt ákvæði liggur fyrir, hins vegar er skilyrði endurgreiðslu að bifreiðin hafi verið afskráð hjá Umferðarstofu áður en hægt er að heimila endurgreiðslu. Ofangreind skilyrði kveða á um að ökutæki skuli hafa verið afskráð til nota hér á landi áður en það er sent úr landi. Þar fyrir utan fyllti kærandi út rafrænt eyðublað E-30, sem er umsókn um endurgreiðslu gjalda samkvæmt ofangreindum skilyrðum, en á eyðublaðinu og leiðbeiningum með því er að finna þau skilyrði sem uppfylla þarf til þess að njóta endurgreiðslunnar. Í ákveðnum tilfellum var undanþága veitt frá þessari reglu, til að gera eigendum kleift að flytja ökutæki sín erlendis með ferju, að því tilskyldu að gengið yrði frá skráningu bifreiðarinnar erlendis og afskráningu hérlendis svo fljótt sem auðið var. Ljóst er samkvæmt framangreindum röksemdum að kærandi getur ekki borið fyrir sig að hafa ekki vitað að afskráning ökutækisins væri skilyrði fyrir endurgreiðslu gjalda.

Ofangreindri umsókn um endurgreiðslu vörugjalds og virðisaukaskatts var því með réttu hafnað með vísan til ákvæðis nr. XI í lögum nr. 29/1993 um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. og ákvæði til bráðabirgða nr. XIII í lögum nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Embætti Tollstjóra úrskurðar samkvæmt 117. gr. tollalaga nr. 88/2005 með síðari breytingum, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 1144/2008 um endurgreiðslu vörugjalds og virðisaukaskatts af vélknúnum ökutækjum, að ákvörðun Tollstjóra, dags. 11. janúar 2010, um synjun umsóknar um endurgreiðslu vörugjalds og virðisaukaskatts af bifreið með fastnúmer X sem flutt var úr landi þann 23. september 2009 með sendingu nr. U NOR 23 09 9 IS SEY T001, er staðfest.

Kæruréttur

Úrskurðinum er heimilt að skjóta til Ríkistollanefndar, Skúlagötu 57, Reykjavík, innan 60 daga frá póstlagningardegi bréfs þessa, sbr. 1. mgr. 118. gr. tollalaga, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 1144/2008.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum