Dómur Héraðsdóms Reykjaness 12. desember 2019 í máli nr. S-735/2019
Dómur Héraðsdóms Reykjaness fimmtudaginn 12. desember 2019 í máli nr. S-735/2019:
Ákæruvaldið
(Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari)
gegn
Guðmundi Karli Snæbjörnssyni
(Guðmundur Skúli Hartvigsson lögmaður)
I
Mál þetta, sem dómtekið var 4. desember s.l., höfðaði héraðssaksóknari með svohljóðandi ákæru 26. júní 2019 á hendur Guðmundi Karli Snæbjörnssyni, 000000-0000, Lundi 8-12, Kópavogi;
A.
„Á hendur ákærða sem framkvæmdastjóra og stjórnarmanni einkahlutafélagsins A, kt. 0000000000, nú afskráð, fyrir meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum með því að hafa:
1. Eigi staðið skil á skattframtölum einkahlutafélagsins á lögmæltum tíma gjaldárin 2010 til og með 2014 vegna rekstraráranna 2009 til og með 2013. Með framangreindu taldi ákærði fyrir hönd félagsins ekki fram til skatts tekjur sem skattskyldar eru samkvæmt B-lið 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, og með því komið félaginu undan greiðslu tekjuskatts, samtals að fjárhæð kr. 12.334.522, sem sundurliðast sem hér greinir:
Rekstrarárið 2009
Rekstrartekjur: kr. 135.043.272
Rekstrargjöld: kr. 107.771.189
Tekjuskattsstofn: kr. 27.272.083
Áætlaður tekjuskattsstofn ásamt álagi: kr. 2.300.000
Vanframtalinn tekjuskattsstofn: kr. 24.972.083
Vanframtalinn tekjuskattur, tekjuskattsprósenta 15% kr. 3.745.812
Rekstrarárið 2010
Rekstrartekjur: kr. 238.470.031
Rekstrargjöld: kr. 218.444.839
Tekjuskattsstofn: kr. 20.025.192
Áætlaður tekjuskattsstofn ásamt álagi: kr. 1.150.000
Vanframtalinn tekjuskattsstofn: kr. 18.875.192
Vanframtalinn tekjuskattur, tekjuskattsprósenta 18% kr. 3.397.535
Rekstrarárið 2011
Rekstrartekjur: kr. 345.932.395
Rekstrargjöld: kr. 336.957.423
Tekjuskattsstofn: kr. 8.974.972
Áætlaður tekjuskattsstofn ásamt álagi: kr. 0
Vanframtalinn tekjuskattsstofn: kr. 8.974.972
Vanframtalinn tekjuskattur, tekjuskattsprósenta 20% kr. 1.794.994
Rekstrarárið 2012
Rekstrartekjur: kr. 443.127.534
Rekstrargjöld: kr. 427.051.963
Tekjuskattsstofn: kr. 16.075.571
Áætlaður tekjuskattsstofn ásamt álagi: kr. 575.000
Vanframtalinn tekjuskattsstofn: kr. 15.500.571
Vanframtalinn tekjuskattur, tekjuskattsprósenta 20% kr. 3.100.114
Rekstrarárið 2013
Rekstrartekjur: kr. 351.722.091
Rekstrargjöld: kr. 349.091.760
Tekjuskattsstofn: kr. 2.630.331
Áætlaður tekjuskattsstofn ásamt álagi: kr. 1.150.000
Vanframtalinn tekjuskattsstofn: kr. 1.480.331
Vanframtalinn tekjuskattur, tekjuskattsprósenta 20% kr. 296.066
Vanframtalinn tekjuskattsstofn samtals öll árin: kr. 69.803.149
Vanframtalinn tekjuskattur samtals öll árin: kr. 12.334.522
2. Látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald fyrir einkahlutafélagið á lögmæltum tíma rekstrarárin 2009 til og með 2014 og vanrækt að varðveita fylgiskjöl og önnur bókhaldsgögn með fullnægjandi hætti.
B.
Á hendur ákærða fyrir meiriháttar skattalagabrot með því að hafa vanrækt að standa skil á skattframtölum sínum á lögmæltum tíma gjaldárin 2010 til og með 2014, vegna tekjuáranna 2009 til og með 2013. Með framangreindu taldi ákærði ekki fram til skatts tekjur sem skattskyldar eru samkvæmt 1. tl. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. einnig 19. og 21. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, en með því komst ákærði hjá að greiða tekjuskatt og útsvar tekjuárin 2010 og 2011 að fjárhæð kr. 4.618.830, sem sundurliðast sem hér greinir:
Tekjuárið 2010:
Tekju- og útskattur:
Vanframtalið reiknað endurgjald kr. 7.140.000
Úttektir kr. 15.790.500
kr. 22.930.500
Áætlaður tekjuskattsstofn ásamt álagi kr. 14.950.000
Vanframtalinn tekjuskattsstofn kr. 7.980.500
Tekjuskattur, skattprósenta 33,0% kr. 2.633.565
Útsvar, útsvarsprósenta 13,28% kr. 1.059.810
(Tekjur af stofni yfir 7.800.000 kr.)
Ónýttur persónuafsláttur kr. 0
Vangreiddur tekjuskattur og útsvar samtals: kr. 3.693.375
Tekjuárið 2011:
Tekju- og útskattur:
Vanframframtalið reiknað endurgjald kr. 7.140.000
Úttektir kr. 12.109.685
kr. 19.249.685
Áætlaður tekjuskattsstofn ásamt álagi kr. 17.250.000
Vanframtalinn tekjuskattsstofn kr. 1.999.685
Tekjuskattur, skattprósenta 31,8% kr. 635.900
Útsvar, útsvarsprósenta 14,48% kr. 289.554
(Tekjur af stofni yfir 8.166.600 kr.)
Ónýttur persónuafsláttur kr. 0
Vangreiddur tekjuskattur og útsvar samtals: kr. 925.454
Samtals vangreiddur tekjuskattur og útsvar: kr. 4.618.830
Framangreind brot ákærða samkvæmt 1. tl. A hluta og B hluta ákæru teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig 2. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að því er varðar 1. tl. A liðar og B liðar ákæru og 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaganna að því er varðar B lið ákæru.
Framangreind brot ákærða samkvæmt 2. tl. A hluta ákæru teljast varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig 1. og 2. tölulið 1. mgr. 37. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995, að því er varðar 2. tl. A liðar ákæru.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
II
Við fyrirtöku málsins á dómþingi 4. desember 2019 féll ákæruvaldið frá ákærulið B hér að framan, en sá liður varðar persónuleg skattskil ákærða. Að þeirri yfirlýsingu fenginni játaði ákærði skýlaust sakargiftir samkvæmt ákærulið A. Þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var ákveðið að fara með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 eftir að sækjanda og verjanda hafði verið gefinn kostur á tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Samkvæmt því telst sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákærulið A, og varða brot hans samkvæmt 1. tl. þess ákæruliðar við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig 2. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, en brot hans samkvæmt 2. tl. sama ákæruliðar varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig 1. og 2. tölulið 1. mgr. 37. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995. Hefur ákærði unnið sér til refsingar fyrir þá háttsemi sem þar greinir. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög framast leyfa og að málskostnaður verði greiddur úr ríkissjóði að öllu leyti eða að hluta.
Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði gekkst hann undir sáttargreiðslu að fjárhæð 93.300 krónur hjá Tollgæslu Íslands 10. desember 2012 fyrir brot gegn tollalögum, en það brot hefur ekki áhrif á ákvörðun viðurlaga í máli þessu. Við ákvörðun refsingar verður tekið tillit til þess að ákærði játaði skýlaust sök og leitaðist við að upplýsa málið við rannsókn þess. Þegar litið er hins vegar til fjárhæðar vanskila ákærða teljast brot hans meiri háttar í skilningi 1. og 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í átta mánuði, sem að framanrituðu virtu þykir þó rétt að binda skilorði eins og nánar greinir í dómsorði. Samhliða skilorðsbundinni refsivist verður ákærði samkvæmt fyrirmælum 2. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og 1. og 2. tl. 1. mgr. 37. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald, dæmdur til greiðslu fésektar. Í samræmi við dómaframkvæmd verður hún ákveðin þreföld sú fjárhæð sem vangoldin var, eða samtals 37.004.000 krónur. Skal sektin greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins, ella sæti ákærði fangelsi í 360 daga. Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærða gert að greiða allan sakarkostnað málsins, en þar er um ræða kostnað vegna verjandastarfa á rannsóknarstigi, 1.054.620 krónur, auk þóknunar til skipaðs verjanda ákærða fyrir dómi, Guðmundar Skúla Hartvigssonar lögmanns, sem ákveðst 527.000 krónur, að virðisaukaskatti meðtöldum.
Ingimundur Einarsson héraðsdómari kvað upp dóminn.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Guðmundur Karl Snæbjörnsson, sæti fangelsi í átta mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum að tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá greiði ákærði 37.004.000 krónur í fésekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins að telja, en sæti ella fangelsi í 360 daga. Ákærði greiði samtals 1.581.620 krónur í sakarkostnað, þar af 527.000 krónur í þóknun til skipaðs verjanda síns fyrir dómi, Guðmundar Skúla Hartvigssonar lögmanns.
Ingimundur Einarsson