2019

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur 31. janúar 2019 í máli nr. S-614/2018

27.2.2019

Mál nr. S-614/2018:

Ákæruvaldið

(Sigríður Dagmar Jóhannsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

A

(Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður)

Dómur 31. janúar 2019

Árið 2019, fimmtudaginn 31. janúar, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara, kveðinn upp dómur í málinu nr. S-614/2018: Ákæruvaldið gegn A en málið var dómtekið 24. þ.m. á grundvelli 164. gr. laga nr. 88/2008.

Málið er höfðað með ákæru héraðssaksóknara, dagsettri 11. október 2018, á hendur:

„A, kt. [...],

[...], Noregur

fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og lögum um bókhald sem stjórnarmanni, daglegum stjórnanda og prókúruhafa einkahlutafélagsins X, kt. [...], með því að hafa:

1. Staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum félagsins uppgjörstímabilin mars – apríl, júlí – ágúst, september – október og nóvember - desember rekstrarárið 2015, með því að oftelja innskatt í rekstri félagsins um samtals 1.630.417 krónur, sem sundurliðast sem hér greinir:

Árið 2015
Mars - apríl 78.953
Júlí - ágúst -153.434
Sept. - október 745.322
Nóv.- desember 959.576
Samtals kr. 1.630.417

2. Fyrir bókhaldsbrot með því að færa tilhæfulausa kostnaðarreikninga í bókhald einkahlutafélagsins yfir rekstrartímabilið mars til og með desember rekstrarárið 2015, og fyrir að rangfæra bókhald þess með því að tví- og þrífæra kostnaðarreikninga félagsins í bókhaldið, yfir framangreint rekstrartímabil.

Framangreind brot ákærða teljast varða við:

  1. 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig 1. og 4. mgr. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005, að því er varðar 1. tölulið ákæru.

  2. 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig 1. og 3. töluliður 1. mgr. 37. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995, að því er varðar 2. tölulið ákæru.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Verjandi ákærða krefst aðallega sýknu en til vara vægustu refsingar sem lög leyfa. Málsvarnarlauna er krafist að mati dómsins. Þá er krafist þóknunar til handa Sigmundi Hannessyni lögmanni sem var verjandi ákærða á fyrri stigum málsins.

Sýknukrafan byggist á því að brot ákærða verði ekki talin meiri háttar í skilningi laga. Vikið verður að þessari málsástæðu hér að neðan.

Sannað er með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi og með öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um brot þau sem hann er ákærður fyrir. Ákærði skilaði efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum og rangfærði bókhald félagsins eins og lýst er í ákærunni. Með vísan til þessa og dómaframkvæmdar í sambærilegum málum verða brot ákærða talin meiri háttar í skilningi laga, svo sem í ákæru greinir, og eru brot hans því rétt færð til refsiákvæða í ákærunni.

Skírskotað er til ákærunnar um lýsingu málavaxta.

Ákærði hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. Hann hefur játað brot sín hreinskilnislega og er það virt til refsilækkunar. Að þessu virtu og með vísan til 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákvörðuð fangelsi í 3 mánuði sem rétt þykir að skilorðsbinda svo sem í dómsorði greinir. Auk refsivistarinnar ber að dæma ákærða til greiðslu sektar í ríkissjóð, sem að teknu tilliti til dómaframkvæmdar þykir hæfilega ákvörðuð 4.900.000 krónur og komi 90 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppsögu dómsins að telja.

Ákærði greiði 210.800 króna málsvarnarlaun Kristjáns Gunnars Valdimarssonar lögmanns og 421.600 króna málsvarnarlaun Sigmundar Hannessonar lögmanns vegna vinnu hans á fyrri stigum málsins, í báðum tilvikum að meðtöldum virðisaukaskatti.

Sigríður Dagmar Jóhannsdóttir saksóknarfulltrúi flutti málið fyrir ákæruvaldið.

Guðjón St. Marteinsson héraðsdómari kveður upp dóminn.

Dómsorð:

Ákærði, A, sæti fangelsi í 3 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið í 2 ár frá birtingu dómsins að telja og falli refsing hans niður að þeim tíma liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr.22/1955.

Ákærði greiði 4.900.000 króna sekt í ríkissjóð og komi 90 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppsögu dómsins að telja.

Ákærði greiði 210.800 króna málsvarnarlaun Kristjáns Gunnars Valdimarssonar lögmanns og 421.600 króna málsvarnarlaun Sigmundar Hannessonar lögmanns, í báðum tilvikum að meðtöldum virðisaukaskatti.

Guðjón St. Marteinsson

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum