Áhersluatriði í eftirliti með félögum sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS)

24.1.2023

Eftirlit ársreikningaskrár með félögum sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) við gerð reikningsskila sinna mun í samráði við Verðbréfaeftirlit Evrópu (European Securities and Markets Authority) beinast að eftirfarandi þáttum:

  • Áhersluatriði sem beinast að IFRS reikningsskilum
  • Áhersluatriði sem beinast að ófjárhagslegri upplýsingagjöf
  • Áhersluatriði sem beinast að árangursmælikvörðum utan IFRS (APM) og sameiginlegu rafrænu skýrslusniði (ESEF)

Ársreikningaskrá hvetur forsvarsmenn félaga sem beita IFRS við gerð reikningsskila sinna og endurskoðendur þeirra til að kynna sér meðfylgjandi yfirlýsingu frá Verðbréfaeftirliti Evrópu.

Ársreikningaskrá hvetur forsvarsmenn félaga sem beita IFRS við gerð reikningsskila sinna til að kynna sér einnig áhersluatriði ársreikningaskrár um eftirlit vegna reikningsársins 2022, svo sem vegna skýrslu stjórnar.

Yfirlýsing frá Verðbréfaeftirliti Evrópu


Áskrift að IFRS tilkynningum

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum