Kynning á áhersluatriðum ársreikningaskrár og Verðbréfaeftirlits Evrópu

1.12.2025

Kynning á áhersluatriðum ársreikningaskrár og Verðbréfaeftirlits Evrópu verður þann 16. desember næstkomandi í húsnæði Skattsins að Katrínartúni 6 kl. 09:15 til 10:00. Kynningin verður einnig aðgengileg í streymi. 

Skráning á fund

Upptaka af kynningunni verður gerð aðgengileg að henni lokinni. 

Verðbréfaeftirlit Evrópu hefur birt áhersluatriði í eftirliti með reikningsskilum útgefenda í kauphöllum fyrir næsta ár. Ársreikningaskrá mun birta þann 16. desember áhersluatriði í eftirliti fyrir þau félög sem fara eftir ársreikningalögum við samningu ársreiknings síns.

Áhersluatriðin eru hugsuð fyrir þá aðila sem koma að gerð ársreikninga ásamt endurskoðendum þeirra. Ársreikningaskrá hvetur stjórnendur og þá sérstaklega fjármálastjóra og forstöðumenn reikningshaldssviða ásamt endurskoðendum til að kynna sér efni áhersluatriðanna.

Áhersluatriðin ná yfir þau svið reikningsskilanna þar sem talið er að mestra úrbóta sé þörf og eru birt til upplýsinga fyrir stjórnendur, endurskoðendur og aðra sem að gerð reikningsskila koma. Ársreikningaskrá hvetur þá aðila sem að gerð og staðfestingu reikningsskila koma til að kynna sér efni þeirra.

Áhersluatriði

ESMA - European common enforcement priorities for 2025 corporate reporting

ESMA - Results of a fact-finding exercise on 2024 corporate reporting practices


Áskrift að IFRS tilkynningum

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum