Kynning á áhersluatriðum ársreikningaskrár og Verðbréfaeftirlits Evrópu
Verðbréfaeftirlit Evrópu (ESMA) birti þann 13. október síðastliðinn áhersluatriði í eftirliti með reikningsskilum og sjálfbærniupplýsingagjöf félaga sem skráð eru á skipulegan verðbréfamarkað á Evrópska efnahagssvæðinu vegna reikningsársins 2026.
Áhersluatriðin taka til fjárhagslegra reikningsskila samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS), sjálfbærniupplýsingagjafar samkvæmt evrópskum stöðlum um sjálfbærniupplýsingar (ESRS) og flokkunarreglugerðar ESB og rafrænnar upplýsingagjafar á sameiginlegu rafrænu skýrslusniði (ESEF).
Stefnt er að kynningu á áhersluatriðum ESMA og áherslum ársreikningaskrár í eftirliti með félögum sem beita ársreikningalögum við gerð reikningsskila sinna þann 12. nóvember næstkomandi. Nánari upplýsingar um fundinn og fyrirkomulag hans verða kynntar síðar.
Áhersluatriði ESMA og áherslur ársreikningaskrár eru ætluð stjórnendum, fjármálastjórum og þeim aðilum sem koma að gerð og framsetningu reikningsskila ásamt endurskoðendum þeirra.
Ársreikningaskrá hvetur þessa aðila til að kynna sér efni áhersluatriða ESMA.
Lesa um áhersluatriði ESMA - European common enforcement priorities for 2026 corporate reporting
