Kynning á skýrslu verðbréfaeftirlits Evrópu um niðurstöður eftirlitsaðila

10.6.2024

Ársreikningaskrá Skattsins boðar til kynningarfundar miðvikudaginn 12. júní kl. 9:15 um niðurstöður eftirlitsaðila á evrópska efnahagssvæðinu með reikningsskilum útgefenda. Auk þess farið verður yfir eftirlit á Íslandi ásamt væntanlegu eftirliti með sjálfbærniskýrslum.

Hvar: Hjá Skattinum, Katrínartúni 6 og í streymi á Teams
Hvenær: 12. júní kl. 09:15. Húsið opnar kl. 9.

Halldór I. Pálsson, sérfræðingur hjá Ársreikningaskrá, fór yfir helstu niðurstöður skýrslunnar auk þess sem hann sagði frá hvernig eftirliti er háttað hér á landi og fjallaði lauslega um væntanlegt eftirlit með sjálfbærniskýrslum.

Fundurinn er til upplýsingar fyrir stjórnendur, endurskoðendur og aðra sem að gerð reikningsskila koma.

Upptaka af fundinum:  Kynning Halldórs I. Pálssonar sérfræðings í Ársreikningaskrá (Opnast á youtube)
Glærur: Niðurstöður eftirlitsaðila á evrópska efnahagssvæðinu með reikningsskilum útgefenda

Ítarefni

Skýrsla verðbréfaeftirlits Evrópu

EFRAG IG 1 - Materiality Assessment

EFRAG IG 2 - Value Chain

EFRAG IG 3 List of ESRS Data Points - Explanatory Note

EFRAG IG 3 List of ESRS Data Points

Facebook viðburður

LinkedIn viðburður



Áskrift að IFRS tilkynningum

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum