Reglugerð framkvæmdastjórnar ESB nr. 183/2013
Hinn 23. október 2013 tóku gildi breytingar á alþjóðlegum reikningsskilastaðli.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 183/2013 varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal IFRS 1 um innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla.
Ársreikningaskrá hvetur þá sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) við gerð og framsetningu reikningsskila sinna að kynna sér reglugerð iðnaðar- og viðskiptaráðherra nr. 942/2013, reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 183/2013 og breytingar á staðlinum IFRS 1.