Samráðsskjal um afmarkaðar breytingar á tilteknum kröfum um upplýsingagjöf skv. flokkunarreglugerð ESB

2.7.2026

Öllum hagsmunaaðilum er boðið að senda inn svör við samráðsskjali frá Verðbréfaeftirliti Evrópu (ESMA) um afmarkaðar breytingar á tilteknum kröfum um upplýsingagjöf skv. flokkunarreglugerð ESB (EU Taxonomy).

ESMA setur fram framangreint samráðsskjal að beiðni Framkvæmdastjórnar ESB um ráðgjöf og leiðir til þess að gera kröfur um upplýsingar gagnlegri og auðveldari í framkvæmd. Sér í lagi yfirferð yfir lykilmælikvarða um rekstrargjöld (OpEX) og einföldun á sniðmátum og tengdri upplýsingagjöf.

Samráðið beinist fyrst og fremst að útgefendum, fjármálafyrirtækjum, fagfjárfestum, endurskoðendum og öðrum markaðsaðilum eða viðeigandi hagsmunaaðilum, þar með töldum samtökum fyrirtækja í atvinnulífinu, almennum fjárfestum, ráðgjöfum, háskólasamfélaginu og öðrum samtökum.

ESMA stefnir að því að skila endanlegri tæknilegri ráðgjöf til Framkvæmdastjórnar ESB fyrir lok október 2026. ESMA mun taka til skoðunar allar athugasemdir sem berast eigi síðar en 12. ágúst 2026.

Frekari upplýsingar frá ESMA

Consultation Paper
Consultation page
Public hearing page

Frétt ESMA um breytingar á flokkunarreglugerð ESB

 


Áskrift að IFRS tilkynningum

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum