Skýrsla Verðbréfaeftirlits Evrópu (ESMA) um tæknilega ráðgjöf varðandi einföldun upplýsingagjafar skv. flokkunarreglugerð ESB

30.10.2026

Þann 29. október birti ESMA skýrslu um frekari einföldun upplýsingagjafar samkvæmt flokkunarreglugerð ESB fyrir sjálfbærar fjárfestingar (EU Taxonomy). 

Skýrslan inniheldur tæknilega ráðgjöf til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins fyrir frekari einföldun upplýsingagjafar skv. flokkunarreglugerðinni og er liður í áframhaldandi endurskoðun á kröfum um upplýsingagjöf samkvæmt framseldri reglugerð (ESB) 2021/2178 (Taxonomy Disclosures Delegated Act) og kemur í framhaldi af þeim einföldunum sem þegar hafa verið innleiddar með framseldri reglugerð (ESB) 2026/73, samanber reglugerð nr. 1014/2026. Tillögur ESMA miða að því að draga úr skýrslugjafabyrði fyrirtækja auk þess að einfalda útreikning og framsetningu lykilmælikvarða (KPI) og tryggja samræmi við evrópska staðla um sjálfbærniupplýsingar (ESRS).

Helstu tillögur lúta að eftirfarandi atriðum:

  • Einföldun á lykilmælikvörðum fyrir rekstrargjöld (OpEX), þannig að þeir taki einkum til útgjalda vegna rannsóknar- og þróunar (R&D).
  • Einföldun upplýsingagjafar samstæðna með ólíka starfsemi.
  • Auknu samræmi við ESRS og heimild til að vísa til upplýsinga sem þegar hafa verið birtar.
  • Frekari undanþágum og frestum vegna aðlögunar vegna upplýsingagjafar, meðal annars vegna breytinga á tæknilegum matsviðmiðum.
  • Einföldun upplýsinga í skýringum með aukinni áherslu á fjárhagslegt mikilvægi og upplýsingagildi.

Tillögurnar fela ekki í sér breytingar á gildandi reglum heldur er aðeins um tillögur sem verða teknar til skoðunar hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins við frekari einföldun sjálfbærniregluverks ESB. Forráðamenn þeirra félaga sem falla undir gildissvið flokkunarreglugerðarinnar, ásamt öðrum sem vilja birta slíkar upplýsingar, er bent á að kynna sér skýrslu ESMA og þær tillögur sem þar koma fram.

Lesa skýrslu - ESMA proposes simpler EU Taxonomy reporting


Áskrift að IFRS tilkynningum

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum