Verðbréfaeftirlit Evrópu hefur gefið út 31. úrdrátt úr gagnagrunni um ákvarðanir evrópska eftirlitsaðila
Úrdrátturinn inniheldur sjö ákvarðanir sem varða meðal annars tekjuskráningu, eignfærslu fjármagnskostnaðar, upplýsingar um frestaða skattinneign, mat á gangvirði og samræmi milli fjárhagslegra og ófjárhagslegra upplýsinga.
Tvær ákvarðanir fjalla jafnframt um beitingu leiðbeinandi reglna ESMA um aðra árangursmælikvarða (APM).
Markmiðið með birtingu valinna ákvarðana eftirlitsaðila er að stuðla að samræmdri beitingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS) og leiðbeinandi reglna ESMA um APM. Ársreikningaskrá vill vekja athygli stjórnenda, annarra aðila sem koma að gerð reikningsskila og endurskoðenda á birtingu framangreindra ákvarðana og hvetur viðkomandi til að kynna sér efni þeirra.
