Breyting á skráningu ehf./hf.

Tilkynna skal til fyrirtækjaskrár breytingar er verða á skráningarskyldum atriðum innan mánaðar frá því að ákvörðun var tekin um breytingu. Önnur tímamörk eiga þó við um breytingu á hlutafé.

Afgreiðslutími tilkynninga er um tíu til tólf virkir dagar frá því að gögn eru lögð inn til fyrirtækjaskrár séu þau fullnægjandi og greiðsla (eða greiðslukvittun) fylgir með gögnunum. Hægt er að senda skannað afrit af tilkynningum á netfangið fyrirtaekjaskra@skatturinn.is Ekki er nauðsynlegt að skila inn frumritum af gögnum.

Leiðbeiningar vegna breytinga á skráningu ehf. í rafrænni fyrirtækjaskrá

Skráningarskyld atriði eru:

Stjórn

  • Hluthafafundur kýs stjórn. Sé hluthafi einn er kosning stjórnar skráð í gerðabók.
  • Stjórn skal kosin í samræmi við samþykktir félagsins.
  • Tilkynna þarf um breytingu á stjórn innan mánaðar frá því að hluthafafundur fór fram.
  • Allir nýir stjórnarmenn þurfa að skrifa undir tilkynningu um nýja stjórn og staðfesta þannig að þeir taki að sér að vera í stjórn.
  • Tilkynning skal einnig vera undirrituð af meirihluta stjórnar eða prókúruhafa.
  • Séu allir stjórnarmenn nýir er nauðsynlegt að meirihluti fyrri stjórnar skrifi einnig undir tilkynninguna.
  • Hér má nálgast tilkynningu um breytingu á stjórn, nr. 17.42. Vakin er athygli á því að greiða þarf skráningargjald. Sjá gjaldskrá.

Hlutafé - hækkun

  • Hluthafafundur samþykkir hækkun á hlutafé, nema ákvæði sé í samþykktum félags er heimilar stjórn félagsins að hækka hlutafé.
  • Tilkynningu um hækkun hlutafjár skal send fyrirtækjaskrár innan árs frá því að ákvörðun var tekin. Berist tilkynning ekki innan árs frá ákvörðun telst hækkunin niður fallin.
  • Þegar hlutafé í einkahlutafélagi er hækkað skal vera búið að greiða allt hlutafé er tilkynning er send fyrirtækjaskrá. Sé hlutafé í hlutafélagi hækkað er fullnægjandi að aðeins sé búið að greiða fjórðung af hlutafjárhækkun er tilkynning er send fyrirtækjaskrár en þá þarf að senda aftur tilkynningu til fyrirtækjaskrá þegar hlutafjárhækkun hefur verið greidd að fullu innan árs frá ákvörðun um hlutafjárhækkun.
  • Löggiltur endurskoðandi, lögmaður eða skoðunarmenn félags þurfa að staðfesta að greiðsla hlutafjár hafi átti sér stað.
  • Sé hlutafé greitt í öðru en reiðufé í einkahlutafélögum skal fylgja með skýrsla stjórnar um endurgjaldið í samræmi við 5.-6. gr. ehfl. staðfest af löggiltum endurskoðanda eða lögmanni.
  • Sé hlutafé greitt í öðru en reiðufé í hlutafélögum skal fylgja með sérfræðiskýrsla í samræmi við 6.-7. gr. hfl.
  • Tilkynningu skal fylgja nýtt eintak af samþykktum félagsins þar sem fram kemur hið nýja hlutafé. Samþykktir skulu vera dagsettar þann dag er hluthafafundur samþykkti hlutafjárhækkun og undirritaðar af meirihluta stjórnar eða skráðum prókúruhafa.
  • Meirihluti stjórnar eða skráður prókúruhafi þarf að skrifa undir tilkynningu um hækkun hlutafjár og samþykktir félagsins.
  • Hér má nálgast tilkynningu um hækkun hlutafjár, nr. 17.44. Vakin er athygli á því að greiða þarf skráningargjald. Sjá gjaldskrá.

Hlutafé - lækkun

  • Hluthafafundur samþykkir lækkun á hlutafé.
  • Aðeins er heimilt að ráðstafa lækkunarfénu á eftirfarandi hátt:
  1. til jöfnunar taps sem verður ekki jafnað á annan hátt;
  2. til greiðslu til hluthafa;
  3. til afskriftar á greiðsluskyldu hluthafa eða
  4. til að leggja í sérstakan sjóð sem aðeins má nota samkvæmt ákvörðun hluthafafundar.
  • Tilkynna skal um hlutafjárlækkun innan mánaðar. Sé allri lækkunarfjárhæðinni ráðstafar til jöfnunar á tapi skal strax tilkynnt að hlutafjárlækkun hafi farið fram.
  • Með tilkynningu um lækkun hlutafjár skal auk nauðsynlegra sönnunargagna fylgja yfirlýsing, undirrituð af öllum aðalmönnum stjórnar félags og eftir atvikum einstökum varamönnum í þeirra stað, svo og endurskoðanda, um að skuldir við lánardrottna félagsins séu því ekki til fyrirstöðu að hlutafjárlækkun geti farið fram.
  • Sé lækkunarfjárhæð ráðstafað í samræmi við liði 2-4 hér að ofan þarf að sækja um undanþágu frá innköllunarskyldu.
  • Tilkynningu skal fylgja nýtt eintak af samþykktum félagsins þar sem fram kemur hið nýja hlutafé. Samþykktir skulu vera dagsettar þann dag er hluthafafundur samþykkti hlutafjárlækkun og undirritaðar af meirihluta stjórnar eða skráðum prókúruhafa.
  • Meirihluti stjórnar eða skráður prókúruhafi þarf að skrifa undir tilkynningu um lækkun hlutafjár og samþykktir félagsins.
  • Hér má nálgast tilkynningu um lækkun hlutafjár, nr. 17.48. Vakin er athygli á því að greiða þarf skráningargjald. Sjá gjaldskrá.

Framkvæmdastjóri (framkvæmdastjórn)

  • Stjórn ræður framkvæmdastjóra.
  • Tilkynna þarf um breytingu á framkvæmdastjóra innan mánaðar frá stjórnarfundi er samþykkti breytingu á framkvæmdastjórn.
  • Nýr framkvæmdastjóri þarf að undirrita tilkynninguna og staðfesta þannig að hann taki að sér að vera framkvæmdastjóri.
  • Meirihluti stjórnar eða skráður prókúruhafi þarf einnig að undirrita tilkynninguna.
  • Vinsamlegast hafið í huga að ef eyðublað fyrirtækjaskrár er notað er nauðsynlegt að skrá inn alla framkvæmdastjóra og prókúruhafa, ekki eingöngu þau atriði sem verið er að breyta.
  • Hér má nálgast tilkynningu um breytingu á framkvæmdastjórn, nr. 17.43 ásamt. Vakin er athygli á því að greiða þarf skráningargjald. Sjá gjaldskrá.

Prókúruhafi

  • Stjórn veitir prókúru.
  • Tilkynna þarf um breytingu á prókúruhafa innan mánaðar frá stjórnarfundi er samþykkti breytingu á prókúru.
  • Nýr prókúruhafi þarf að undirrita tilkynninguna og staðfesta þannig að hann taki að sér að vera með prókúru.
  • Meirihluti stjórnar eða skráður prókúruhafi þarf einnig að undirrita tilkynninguna.
  • Vinsamlegast hafið í huga að ef eyðublað fyrirtækjaskrár er notað er nauðsynlegt að skrá inn alla framkvæmdastjóra og prókúruhafa, ekki eingöngu þau atriði sem verið er að breyta.
  • Hér má nálgast tilkynningu um breytingu á prókúru, nr.17.43. Vakin er athygli á því að greiða þarf skráningargjald. Sjá gjaldskrá.

Endurskoðandi/skoðunarmaður

  • Hluthafafundur kýs endurskoðanda/skoðunarmann. Sé hluthafi einn er kosning skráð í gerðabók.
  • Kosning endurskoðanda/skoðunarmanns skal vera í samræmi við samþykktir félagsins.
  • Tilkynna þarf um breytingu á endurskoðanda/skoðunarmanni innan mánaðar frá því að hluthafafundur fór fram.
  • Nýr endurskoðandi/skoðunarmaður þarf að skrifa undir tilkynninguna og staðfesta þannig að hann taki að sér endurskoðun/skoðun félagsins.
  • Tilkynning skal einnig vera undirrituð af meirihluta stjórnar eða prókúruhafa.
  • Hér má nálgast tilkynningu um breytingu á endurskoðun, nr. 17.45. Vakin er athygli á því að greiða þarf skráningargjald. Sjá gjaldskrá.

Nafn félags

  • Hluthafafundur þarf að samþykkja breytingu á nafni félags. Sé hluthafi einn er breyting á nafni skráð í gerðabók.
  • Þegar nafni félags er breytt er nauðsynlegt að breyta samþykktum félagsins í samræmi við það.
  • Nauðsynlegt er að skila til fyrirtækjaskrár tilkynningu um breytingu á nafni þar sem skrifað er undir sérstakan nafnafyrirvara.
  • Einnig er nauðsynlegt að skila inn nýjum samþykktum þar sem hið nýja nafn kemur fram. Samþykktir skulu vera dagsettar þann dag er hluthafafundur samþykkti nafnabreytingu og undirritaðar af meirihluta stjórnar eða skráðum prókúruhafa.
  • Meirihluti stjórnar eða skráður prókúruhafi þarf að skrifa undir tilkynningu um nafnabreytingu.
  • Tilkynna þarf um nafnabreytingu innan mánaðar frá því að hluthafafundur fór fram.
  • Gott er að lesa yfir viðmiðunarreglur um firmaheiti áður en nýtt nafn á félag er valið.
  • Hér má nálgast tilkynningu um breytingu á nafni, nr. 17.41. Vakin er athygli á því að greiða þarf skráningargjald. Sjá gjaldskrá.

Heimilisfang félags

  • Sé verið að flytja lögheimili innan sveitarfélags er nóg að tilkynna um lögheimilisflutning á þar til gerðu eyðublaði.
  • Sé verið að flytja lögheimili milli sveitarfélaga þarf að samþykki hluthafafundar. Sé hluthafi einn er flutningur á heimili skráð í gerðabók.
  • Meirihluti stjórnar eða skráður prókúruhafi þarf að skrifa undir tilkynningu um breytingu á heimilisfangi.
  • Tilkynna þarf um flutning á heimilisfangi innan mánaðar frá því að ákvörðun um flutning átti sér stað.
  • Hér má nálgast tilkynningu um breytingu á heimilisfangi, nr. 17.40. Vakin er athygli á því að greiða þarf skráningargjald. Sjá gjaldskrá.

Tilgangur félags

  • Hluthafafundur breytir tilgangi félags. Sé hluthafi einn er breyting á tilgangi skráð í gerðabók.
  • Tilkynna þarf um breytingu á tilgangi innan mánaðar frá því að hluthafafundur fór fram.
  • Breyta skal samþykktum félagsins í samræmi við breyttan tilgang.
  • Samþykktir skulu vera dagsettar þann dag er hluthafafundur samþykkti breytingu á tilgangi og skal nýr tilgangur koma fram í samþykktum þess.
  • Meirihluti stjórnar eða skráður prókúruhafi þarf að skrifa undir tilkynningu um breytingu á tilgangi og samþykktir félagsins.
  • Hér má nálgast tilkynningu um breytingu á tilgangi, nr. 17.47. Vakin er athygli á því að greiða þarf skráningargjald. Sjá gjaldskrá.

Breytingar á samþykktum

  • Aðeins hluthafafundur getur breytt samþykktum.
  • Samþykki hluthafafundur breytingar á samþykktum skal afriti af þeim skilað til fyrirtækjaskrár innan mánaðar frá því að hluthafafundur samþykkti breytingarnar.
  • Samþykktirnar skulu vera dagsettar þann dag er hluthafafundur samþykkti breytinguna og undirritaðar af meirihluta stjórnar eða skráðum prókúruhafa.
  • Meirihluti stjórnar eða skráður prókúruhafi þarf að skrifa undir tilkynningu um breyttar samþykktir.

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum