Skattþrep í staðgreiðslu 2025

Staðgreiðsluskattur sem dregin er af launum er í þrem skattþrepum. Einstaklingar með greiðslur frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa að gera ráðstafanir til þess að rétt hlutfall skatts sé dregið af launum þeirra og forðast þannig skattskuld við álagningu.

Information in English

Staðgreiðsluhlutfallið er eftirfarandi:

Skattþrep Tekjubil Hlutfall
Skattþrep 1 Af tekjum 0 – 472.005 kr. 31,49%
Skattþrep 2 Af tekjum 472.006 - 1.325.127 kr. 37,99%
Skattþrep 3 Af tekjum yfir 1.325.127 kr. 46,29%

Ábyrgð

Það er ábyrgð hvers og eins að gefa sínum launagreiðanda réttar upplýsingar til að tryggja að rétt staðgreiðsluhlutfall sé dregið af laununum og að nýting persónuafsláttar sé með réttum hætti.

Fari mánaðarlaun yfir 472.005 kr. hjá einum launagreiðanda þarf að reikna staðgreiðslu af launum hjá öðrum launagreiðendum í næsta skattþrepi fyrir ofan. Fari mánaðarlaun yfir 1.325.127 kr. þarf að reikna staðgreiðslu af þeim hluta sem fer yfir það mark í þrepi þrjú.

Tökum dæmi:

Dæmi 1: Ellilífeyrir

Dæmi 2: Sumarvinna

Dæmi 3: Sérfræðingur með há laun

Dæmi 4: Fæðingarorlof

Dæmi 5: Tímabundin dvöl á Íslandi

Dæmi 6: Erlendar og innlendar tekjur


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum