Leiðbeiningar með eyðublaðinu TS-E9
Yfirlýsing um tímabundinn innflutning á ökutæki með erlend skráningarmerki (E9)
- Hlaðið niður eyðublaðinu og vistið á tölvu.
- Fyllið út eyðublaðið í samræmi við leiðbeiningar neðar á síðunni.
- Prentið útfyllt eyðublað, geymið í bílnum og sendið afrit á farmflytjanda Sjá lista yfir netföng hér að neðan.
Farmflytjandi: | Netfang: |
---|---|
Smyril line | e9@smyrilline.fo |
Eimskip | gjaldkeri@eimskip.is / ccs@eimskip.is |
Samskip | tourist@samskip.com |
Innflytjanda ökutækis með erlent skráningarmerki ber að kynna sér skilyrði fyrir tollfrjálsum innflutningi og útfylla yfirlýsingu E9.
- Innflytjandi þarf að fylla eyðublaðið út í pdf formi og senda til tollmiðlara fyrir brottför á leið til Íslands. Tollmiðlari sér um að koma eyðublaði til Tollstjóra.
- Fylla þarf út eitt eyðublað fyrir hvert ökutæki sem er skráningarskylt skv. umferðarlögum nr. 50/1987.
- Ef tengivagn fylgir ökutæki meðan á dvöl stendur er nægilegt að skrá tengivagn í þar til gerða dálka á sama eyðublaði og ökutæki.
- Innflytjanda ber að fylla út í alla rauðmerkta reiti.
- Afrit yfirlýsingar (E9) skal ávallt vera aðgengilegt í ökutæki vegna reglubundins eftirlits löggæsluaðila.
- Ökutæki einstaklinga eru eingöngu ætluð til persónulegra nota fyrir innflytjanda, fjölskyldu hans eða samferðafólk, sem öll hafa skráða búsetu erlendis.
- Komi ökutæki með farmflytjanda á farmskrá, þarf sama nafn að vera skráð á farmskrá og yfirlýsingu (E9).
- Komi ökutæki með Norröna, þarf sama nafn að vera skráð í bókunarkerfi ferjunnar og yfirlýsingu (E9).
- Ef nota á ökutæki í atvinnuskyni skal innflytjandi setja sig í samband við tollmiðlara eða Tollstjóra fyrir komu til landsins vegna bráðabirgðaafgreiðslu.
- Ef nota á ökutæki til farþega- og farmflutninga eða útleigu skal innflytjandi kynna sér lög um farþega- og farmflutninga á landi nr. 28/2018 og lög um leigu skráningarskyldra ökutækja nr. 65/2015. Samgöngustofa sér um leyfisveitingar.
- Við útflutning á ökutæki sem hefur verið notað í atvinnuskyni er lögð fram beiðni um skoðun á vöru með eyðublaðinu E14. Einnig skal ökutækið tollafgreitt úr landi með því að skila útflutningsskýrslu.
- Ef innflytjandi tekur upp fasta búsetu á Íslandi skal hann tollafgreiða ökutæki um leið eða senda það úr landi. Þetta á einnig við þó að 12 mánuðir séu ekki liðnir frá komu ökutækis til landsins.
Tollstjóri getur farið fram á að innflytjandi ökutækis sýni fram á það með skjalfestum hætti að hann hyggist dvelja tímabundið á landinu og eigi lengur en 12 mánuði, t.d. með því að framvísa tímabundnum starfssamningi eða leigusamningi.
Fyrir nánari upplýsingar um tímabundinn innflutning á ökutækjum er innflytjendum bent á 7. gr. tollalaga nr. 88/2005 og reglugerð 630/2008 um ýmis tollfríðindi.
TS-E9 - Tímabundinn tollfrjáls innflutningur á ökutæki (Hægrismellið til að vista eyðublaðið á disk)
Nota verður Adobe Reader til að fylla eyðublaðið út ekki má nota annan hugbúnað.
Forritið er frítt og hægt að sækja hér: https://get.adobe.com/reader/