Ákvarðanir ríkisskattstjóra

Ákvörðun 1/2024 um sátt

4.1.2024

Þann 4. janúar 2024 gerðu ríkisskattstjóri og málsaðili (hér eftir félagið) með sér samkomulag um að ljúka máli félagsins með sátt vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér eftir oftast pþl.) og laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna (hér eftir oftast þfl.).

Sáttin er gerð á grundvelli 47. gr. pþl., 31. gr. þfl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. pþl. fellur félagið undir gildissvið laganna og telst því vera tilkynningarskyldur aðili, sbr. 17. tölul. 1. mgr. 3. gr. pþl. Samkvæmt 11. tölul. 1. mgr. 3. gr. þfl. er tilkynningarskyldur aðili samkvæmt lögunum skilgreindur sem aðili sem fellur undir 2. gr. pþl.

Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með því að tilkynningarskyldir aðilar sem falla undir l–u-liði 1. mgr. 2. gr. pþl. fari að ákvæðum laganna og reglum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra, sbr. 2. mgr. 38. gr. pþl. Þá hefur ríkisskattstjóri eftirlit með því að sömu tilkynningarskyldir aðilar fari að ákvæðum 10. og 13. gr. þfl., sbr. 2. mgr. 26. gr. laganna.

Meginatriði samkomulagsins eru sem hér segir:

1. Félagið viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023:

  1. Áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum voru ekki framkvæmdar í samræmi við 8. og 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 3. og 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  2. Ekki var gerð krafa um að viðskiptamaður sannaði á sér deili í samræmi við 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  3. Aukin áreiðanleikakönnun, sbr. 13. og 17. gr. pþl., var ekki framkvæmd á viðskiptamanni sem er í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla, sem telst brot gegn 7. og 11. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  4. Ekki var framkvæmd athugun á því hvort viðskiptamenn hafi stjórnmálaleg tengsl samkvæmt 1. mgr. 17. gr. pþl., sem telst brot gegn 11. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  5. Afrit af gögnum og upplýsingum vegna áreiðanleikakannana voru ekki varðveitt í samræmi við a-lið 1. mgr. 28. gr. pþl., sem telst brot gegn 16. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  6. Ekki var framkvæmd athugun á því hvort viðskiptamaður sæti alþjóðlegum þvingunaraðgerðum, sbr. 2. og 3. mgr. 13. gr. þfl., sem telst brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. og 3. mgr. 7. gr. laga nr. 64/2019, sem taldist brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. sömu laga.

2. Með samkomulaginu fellst félagið á að greiða sekt að fjárhæð 23.200.000 kr.

3. Þá skal félagið framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra í viðauka við sáttargerðina.

Málavextir, málsástæður og lagarök

Með bréfi óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu á grundvelli 2. mgr. 38. gr. pþl. og 2. mgr. og 3. mgr. 26. gr. laga nr. 68/2023. Félagið varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn. Í framhaldinu boðaði ríkisskattstjóri til vettvangsathugunar á starfsstöð félagsins.

Í samskiptum við félagið og við framkvæmd vettvangsathugunar varð meðal annars ljóst að í þeim tilvikum þar sem annmarkar voru á framkvæmd áreiðanleikakannana hafði félagið ýmist ekki framkvæmt áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum eða ekki framkvæmt áreiðanleikakannanir með fullnægjandi hætti. Dæmi voru um að ekki hafi verið framkvæmd athugun á því hvort viðskiptamaður og raunverulegir eigendur væru í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla og að aukin áreiðanleikakönnun hafi ekki verið framkvæmd í tilviki þar sem viðskiptamaður er í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Þá var varðveisla gagna ábótavant og ekki í samræmi við fyrirmæli 28. gr. pþl. Einnig var dæmi um að ekki hafði verið framkvæmd athugun á því hvort viðskiptamaður sæti alþjóðlegum þvingunaraðgerðum. Félagið hefur því ekki starfað samkvæmt skilyrðum laganna og teljast framangreind brot varða stjórnvaldssekt samkvæmt 3., 4., 7., 11. og 16. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl. og 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019.

Sektarfjárhæð

Samkvæmt 1. mgr. 44. gr. a pþl. skal, við ákvörðun um tegund og umfang viðurlaga, tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftir því sem við á; alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið yfir lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða. Líta skal til sömu atriða við ákvörðun stjórnvaldssektar samkvæmt lögum nr. 68/2023, sbr. 2. mgr. 30. gr. þfl. og áður 2. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019.

Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við reglur ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018. Samkvæmt reglunum er miðað við að sektarfjárhæð sé hlutfallslega lægri en sem ætla má að fjárhæð stjórnvaldssektar gæti numið að teknu tilliti til mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða auk þess sem litið er til þess á hvaða stigi meðferð máls er þegar því er lokið með sátt.

Við mat á fjárhæð sektar leit ríkisskattstjóri til fyrri framkvæmdar í viðurlagamálum embættisins vegna aðgerða tilkynningarskyldra aðila gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þá var litið til þess að af þeim 15 tilvikum sem skoðuð voru við vettvangsathugun embættisins, og féllu undir gildissvið laganna, töldust aðeins fjórar áreiðanleikakannanir framkvæmdar með fullnægjandi hætti, en félaginu hefur borið að starfa í samræmi við kröfur laga nr. 140/2018 frá gildistöku þeirra 1. janúar 2019. Einnig var litið til samstarfsvilja sem félagið sýndi, sterkrar fjárhagsstöðu félagsins, þess að það er á meðal stærstu fyrirtækja landsins á sínum markaði o.fl.

Í samskiptum félagsins og ríkisskattstjóra hafði félagið lýst yfir vilja til að ljúka málinu með sátt. Ríkisskattstjóri sendi félaginu drög að sátt þar sem fram kom að ætluð sektarfjárhæð myndi nema um 58.000.000 kr. og að með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020 myndi fjárhæð sáttar nema 50% af ætlaðri sektarfjárhæð þar sem málinu teldist lokið á fyrri stigum, eða alls að fjárhæð 29.000.000 kr. Í svarbréfi félagsins voru gerðar athugasemdir við nánar tiltekin atriði í málinu. Ríkisskattstjóra þótti mega fallast á hluta af athugasemdum félagsins þannig að ætluð sektarfjárhæð myndi lækka um 20% og yrði því alls að fjárhæð 46.400.000 kr.

Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020 nemur fjárhæð sáttar 50% af ætlaðri sektarfjárhæð þar sem málinu telst lokið á fyrri stigum, eða alls að fjárhæð 23.200.000 kr. (46.400.000 kr. * 50%).

Réttaráhrif

Samkomulag þetta er gert á grundvelli 47. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, 31. gr. laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

Félagið telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á að úrbótum sé lokið.

Félagið brýtur gegn samkomulaginu ef það greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðauka við samkomulagið, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að félagið teljist hafa brotið gegn sátt þessari. Verði félagið uppvíst að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.

Opinber birting viðurlaga

Með vísan til 53. gr. pþl., 36. gr. þfl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020, um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög sem ákveðin eru í samræmi við 46.–47. og 50.–51. gr. pþl. og 30. og 31. gr. þfl.

Í svarbréfi félagsins óskaði það eftir því að félagið yrði ekki nafngreint í birtri ákvörðun með nánar tilteknum sjónarmiðum.

Í nýlegri framkvæmd ríkisskattstjóra í viðurlagamálum vegna aðgerða tilkynningarskyldra aðila gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hefur almennt ekki verið fallist á að sleppa eða fresta nafngreiningu aðila nema að sérstakar aðstæður mæli með því. Í máli þessu þykir ríkisskattstjóra mega fallast á að sérstakar aðstæður séu fyrir hendi. Samkvæmt framansögðu telur ríkisskattstjóri skilyrði b-liðar 2. mgr. 5. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020 vera uppfyllt þannig að fresta megi nafngreiningu aðila þar til úttekt á úrbótakröfu hefur farið fram.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum