Ákvarðanir ríkisskattstjóra

Ákvörðun 5/2024 um sátt

31.10.2024

Þann 24. október 2024 gerðu ríkisskattstjóri og málsaðili (hér eftir félagið) með sér samkomulag um að ljúka máli félagsins með sátt vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér eftir oftast pþl.).

Sáttin er gerð á grundvelli 1. mgr. 47. gr. pþl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. pþl. fellur félagið undir gildissvið laganna og telst því vera tilkynningarskyldur aðili, sbr. 17. tölul. 1. mgr. 3. gr. pþl.

Athugun ríkisskattstjóra varðaði einnig framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða af hálfu félagsins en samkvæmt 11. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna (hér eftir oftast þfl.) er tilkynningarskyldur aðili samkvæmt lögunum skilgreindur sem aðili sem fellur undir 2. gr. pþl.

Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með því að tilkynningarskyldir aðilar sem falla undir l–u-liði 1. mgr. 2. gr. pþl. fari að ákvæðum laganna og reglum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra, sbr. 2. mgr. 38. gr. pþl. Þá hefur ríkisskattstjóri eftirlit með því að sömu tilkynningarskyldir aðilar fari að ákvæðum 10. og 13. gr. laga nr. 68/2023, sbr. 2. mgr. 26. gr. laganna.

Meginatriði samkomulagsins eru sem hér segir:

 

1. Félagið viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laga nr. 140/2018:

  1. Áreiðanleikakannanir voru ekki framkvæmdar á viðskiptamönnum í samræmi ákvæði III. kafla laganna í þeim tilvikum sem mælt er fyrir um í 8. gr. pþl. fyrr en á árinu 2023, sem telst brot gegn 3. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  2. Aukin áreiðanleikakönnun vegna viðskipta sem tengist áhættusömu eða ósamvinnuþýðu ríki var ekki framkvæmd í samræmi við 13. og 14. gr. pþl., sem telst brot gegn 7. og 8. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  3. Ekki var framkvæmd athugun á því hvort viðskiptamenn hafi stjórnmálaleg tengsl samkvæmt 1. mgr. 17. gr. pþl. fyrr en á árinu 2023, sem telst brot gegn 11. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  4. Aukin áreiðanleikakönnun var ekki framkvæmd á viðskiptamanni sem telst til nánustu fjölskyldu einstaklings í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla í samræmi við 13. gr. og b-lið 2. mgr. 17. gr. pþl., sem telst brot gegn 7. og 11. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  5. Afrit af gögnum og upplýsingum vegna áreiðanleikakannana, þ. á m. upplýsingar um raunverulegan eiganda, voru ekki varðveitt í samræmi við a-lið 1. mgr. 28. gr. pþl., sem telst brot gegn 16. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
2. Með samkomulaginu féllst félagið á að greiða sekt að fjárhæð 3.575.000 kr.

3. Þá skal félagið framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra í viðauka við sáttargerðina.

 

Málavextir, málsástæður og lagarök

Með bréfi óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu á grundvelli 3. mgr. 38. gr. pþl. og 3. og 4. mgr. 26. gr. þfl. Félagið varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn.

Í samskiptum við félagið og við framkvæmd vettvangsathugunar kom í ljós að félagið hafði ekki í öllum tilvikum framkvæmt áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum með fullnægjandi hætti. Þá kom í ljós að félagið hafði ekki framkvæmt áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum fyrr en á árinu 2023. Annmarkar voru á framkvæmd í þeim tilvikum sem lögin mæla fyrir um að framkvæma skuli auknar áreiðanleikakannanir, þ.e. bæði í tilviki viðskiptamanna með tengsl við áhættusamt ríki og viðskiptamanns í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Einnig voru afrit af gögnum og upplýsingum vegna áreiðanleikakannana, þ. á m. upplýsingar um raunverulegan eiganda, ekki varðveitt með fullnægjandi hætti. Félagið hefur því ekki starfað að öllu leyti samkvæmt skilyrðum laga nr. 140/2018 og teljast framangreind brot varða stjórnvaldssekt samkvæmt 3., 7., 8., 11. og 16. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.

Sektarfjárhæð

Samkvæmt 1. mgr. 44. gr. a pþl. skal, við ákvörðun um tegund og umfang viðurlaga, tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftir því sem við á alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið yfir lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða. Líta skal til sömu atriða við ákvörðun stjórnvaldssektar samkvæmt lögum nr. 68/2023, sbr. 2. mgr. 30. gr. þfl. og áður 2. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019.

Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við reglur ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. reglnanna er miðað við að sektarfjárhæð sé hlutfallslega lægri en sem ætla má að fjárhæð stjórnvaldssektar gæti numið að teknu tilliti til mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða, auk þess sem litið er til þess á hvaða stigi meðferð máls er þegar því er lokið með sátt.

Í bréfi ríkisskattstjóra var félaginu tilkynnt um frumniðurstöður úr athugun ríkisskattstjóra og að mati ríkisskattstjóra væru brot félagsins þess eðlis að varða stjórnvaldssekt samkvæmt 1. mgr. 46. gr. pþl. og 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 1. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019. Að teknu tilliti til frumniðurstaðna embættisins var félaginu tilkynnt um fjárhæð sem stjórnvaldssekt kynni að nema að teknu tilliti mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 44. gr. a pþl. og 2. mgr. 30. gr. þfl.

Í samskiptum félagsins og ríkisskattstjóra lýsti félagið yfir vilja til að ljúka málinu með sátt. Í svarbréfi félagsins voru gerðar athugasemdir við nánar tiltekin atriði í málinu. Ríkisskattstjóra þótti rétt að fallast á athugasemdir félagsins að hluta, þ.e. að félagið hafi framkvæmt skimanir á því hvort viðskiptamenn sættu alþjóðlegum þvingunaraðgerðum. Af því leiddi að heimfærsla til brota gegn 2. og 3. mgr. 13. gr. þfl. var felld á brott og sektarfjárhæð lækkuð í samræmi við það.

Við mat á fjárhæð sektar leit ríkisskattstjóri til þess að félagið hafði ekki framkvæmt áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum fyrr en árinu 2023 og ekki starfað í samræmi við kröfur sem gerðar eru samkvæmt lögunum fram að því. Þá var einnig litið til þess að við vettvangsathugun varð ekki annað séð en að almenn framkvæmd áreiðanleikakannana hvaða varðar einstaklinga hafi verið í góðu horfi. Sérstaklega var litið til þess að annmarkar voru á framkvæmd í þeim tilvikum sem lögin mæla fyrir um að framkvæma skuli auknar áreiðanleikakannanir, þ.e. bæði í tilviki viðskiptamanna með tengsl við áhættusamt ríki og viðskiptamanns í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Að mati ríkisskattstjóra hafa annmarkar við framkvæmd aukinna áreiðanleikakannana umtalsvert vægi þar sem almennt er um að ræða áhættusamari viðskiptamenn en ella samkvæmt skilgreiningu laga. Af þeim sökum gera lög og reglur auknar kröfur til gæða og umfangs upplýsinga við framkvæmd aukinna áreiðanleikakannana. Einnig var litið til þess að félagið sýndi samstarfsvilja og veitti ríkisskattstjóra greiðan aðgang að öllum umbeðnum upplýsingum. Auk framangreinds leit ríkisskattstjóri til fjárhagsstöðu félagsins. Að lokum leit ríkisskattstjóri til fyrri framkvæmdar embættisins í málum sem varða aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og alþjóðlegar þvingunaraðgerðir, bæði hjá aðilum á sama markaði sem og heildarframkvæmdar í málaflokknum. Að mati ríkisskattstjóra leiddi framangreint til þess að ætluð sektarfjárhæð yrði alls að fjárhæð 7.150.000 kr.

Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020 nemur fjárhæð sáttar 50% af ætlaðri sektarfjárhæð þar sem málinu telst lokið á fyrri stigum, eða alls að fjárhæð 3.575.000 kr. (7.150.000 kr. * 50%).

Réttaráhrif, opinber birting viðurlaga og frestur

Samkomulagið er gert á grundvelli 1. mgr. 47. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

Félagið telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á að úrbótum sé lokið. Félagið brýtur gegn samkomulaginu ef það greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðauka við samkomulagið, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að félagið teljist hafa brotið gegn sáttinni. Verði félagið uppvíst að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.

Með vísan til 53. gr. pþl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020, um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög sem ákveðin eru í samræmi við 46.–47. og 50.–51. gr. pþl.

Í svarbréfum félagsins óskaði það eftir því, með nánar tilteknum sjónarmiðum, að birt ákvörðun verði nafnlaus þar til úttekt á úrbótakröfu hefur farið fram.

Í framkvæmd ríkisskattstjóra í viðurlagamálum vegna aðgerða tilkynningarskyldra aðila gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hefur almennt ekki verið fallist á að sleppa eða fresta nafngreiningu aðila nema að sérstakar aðstæður mæli með því. Í máli þessu þótti ríkisskattstjóra mega fallast á að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi. Samkvæmt framansögðu telur ríkisskattstjóri skilyrði b-liðar 2. mgr. 5. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020 vera uppfyllt þannig að fresta megi nafngreiningu aðila þar til úttekt á úrbótakröfu hefur farið fram.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum