Ákvarðanir ríkisskattstjóra

Ákvörðun 5/2025 um sátt

21.8.2025

Þann 14. ágúst 2025 gerðu ríkisskattstjóri og Fasteignasalan Stuðlaberg ehf. (hér eftir félagið) með sér samkomulag um að ljúka máli félagsins með sátt vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér oftast pþl.) og brota á ákvæðum laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna (hér eftir oftast þfl.)

Sáttin er gerð á grundvelli 1. mgr. 47. gr. pþl., 1. mgr. 31. gr. þfl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2025, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023.

Samkvæmt n-lið 1. mgr. 2. gr. pþl. falla fasteignasölur, bifreiðaumboð, fasteigna-, fyrirtækja-, skipa- og bifreiðasalar og fasteignafélög, hvort sem starfsemi snýst um beina leigu eða sölu þessara félaga á fasteignum undir gildissvið laganna.

Samkvæmt 12. tölul. 1. mgr. 3. gr. þfl. er tilkynningarskyldur aðili samkvæmt lögunum skilgreindur sem aðili sem fellur undir 2. gr. pþl.

Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með því að tilkynningarskyldir aðilar sem falla undir l–u-liði 1. mgr. 2. gr. pþl. fari að ákvæðum laganna og reglum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra, sbr. 2. mgr. 38. gr. pþl. Þá hefur ríkisskattstjóri eftirlit með því að sömu tilkynningarskyldir aðilar fari að ákvæðum 10. og 13. gr. laga nr. 68/2023, sbr. 2. mgr. 26. gr. laganna.

Meginatriði samkomulagsins eru sem hér segir:

1. Félagið viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023.

  1. Áreiðanleikakönnun var ekki framkvæmd í öllum þeim tilvikum sem mælt er fyrir um í 8. gr. pþl., sem telst brot gegn 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  2. Ekki var gerð krafa um að viðskiptamaður sannaði á sér deili í samræmi við a-lið 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 5. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  3. Ekki var gerð krafa um að lögaðili sannaði á sér deili í samræmi við b-lið 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 5. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  4. Fullnægjandi upplýsinga um raunverulegan eiganda var ekki aflað og/eða þær ekki sannreyndar í samræmi við e-lið 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 5. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  5. Aukin áreiðanleikakönnun vegna viðskipta sem tengist áhættusömu eða ósamvinnuþýðu ríki var ekki framkvæmd í samræmi við 13. og 14. gr. pþl., sem telst brot gegn 8. og 9. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  6. Ekki voru framkvæmdar viðeigandi athuganir á því hvort raunverulegur eigandi væri í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla í samræmi við 1. mgr. 17. gr. pþl., sem telst brot gegn 12. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  7. Aukin áreiðanleikakönnun var ekki framkvæmd í tilviki þar sem viðskiptamaður er í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla í samræmi við 13. og 17. gr. pþl., sem telst brot gegn 8. og 12. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  8. Afrit af gögnum og upplýsingum vegna áreiðanleikakannana voru ekki varðveitt í samræmi við a-lið 1. mgr. 28. gr. pþl., sem telst brot gegn 17. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  9. Ekki voru framkvæmdar skimanir á því hvort viðskiptamenn eða raunverulegir eigendur sæti alþjóðlegum þvingunaraðgerðum í upphafi viðskipta, sbr. 2. og 3. mgr. 13. gr. þfl., sem telst brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. og 3. mgr. 7. gr. laga nr. 64/2019, sem taldist brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. sömu laga.

2. Með samkomulagi þessu fellst félagið á að greiða sekt að fjárhæð 1.075.000 kr.

3. Þá skal félagið framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra í viðauka við sáttagerðina.

Málavextir, málsástæður og lagarök

Með bréfi óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu á grundvelli 3. mgr. 38. gr. pþl. og 3. og 4. mgr. 26. gr. þfl. Félagið varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn.

Við athugun ríkisskattstjóra kom í ljós að félagið hafði ekki starfað í samræmi við ákvæði laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023. Gerðar voru athugasemdir í ákveðnum tilvikum. Áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum höfðu ekki verið framkvæmdar í samræmi við ákvæði laganna. Í einu tilviki hafði félagið ekki gert kröfu um að viðskiptamenn sönnuðu á sér deili. Ekki voru framkvæmdar auknar áreiðanleikakannanir í tilvikum þar sem einstaklingur var með tengsl við áhættusamt ríki eða þegar einstaklingur var í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Félagið kannaði ekki hvort allir raunverulegir eigendur lögaðila væru áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Eignarhald var ekki kannað með fullnægjandi hætti fyrir viðskipti í nokkrum tilvikum. Auk þess var varðveisla gagna að hluta til ófullnægjandi. Þá var áreiðanleikakönnun í einhverjum tilvikum framkvæmd eftir að viðskipti áttu sér stað. Að lokum var framkvæmd félagsins ekki í samræmi við ákvæði laga nr. 68/2023.

Félagið hefur því ekki starfað í samræmi við skilyrði laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023 og teljast brot félagsins varða stjórnvaldssekt samkvæmt 4., 5., 8., 9., 12. og 17. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl. og 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019.

Sektarfjárhæð

Samkvæmt 1. mgr. 44. gr. a pþl. skal, við ákvörðun um tegund og umfang viðurlaga, tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftir því sem við á alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið yfir lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða. Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. þfl. skal líta til sömu atriða við ákvörðun stjórnvaldssektar samkvæmt lögum nr. 68/2023, sbr. áður 2. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019.

Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við 1. mgr. 44. gr. a pþl., 2. mgr. 30. gr. þfl. og reglur ríkisskattstjóra nr. 33/2025 um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023. Samkvæmt 3. gr. reglnanna skal ríkisskattstjóri ákvarða hver yrði ætluð fjárhæð stjórnvaldssektar að teknu tilliti til 44. gr. a laga nr. 140/2018 og/eða 2. mgr. 30. gr. laga nr. 68/2023. Ríkisskattstjóri metur á hvaða stigi mál er við gerð sáttar. Sé máli lokið með sátt á fyrri stigum getur lækkun sektarfjárhæðar numið allt að 50% af ætlaðri fjárhæð stjórnvaldssektar. Sé máli lokið með sátt á síðari stigum getur lækkun sektarfjárhæðar numið allt að 30% af ætlaðri fjárhæð stjórnvaldssektar. Mál telst ávallt vera á síðari stigum ef aðila hefur verið tilkynnt um fyrirhugaða beitingu þvingunarúrræða og/eða viðurlaga.

Í bréfi ríkisskattstjóra var félaginu tilkynnt um frumniðurstöður úr athugun ríkisskattstjóra og að mati ríkisskattstjóra væru brot félagsins þess eðlis að varða stjórnvaldssekt samkvæmt 1. mgr. 46. gr. pþl. og 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019. Að teknu tilliti til frumniðurstaðna embættisins var félaginu tilkynnt um fjárhæð sem stjórnvaldssektar kynni að nema að teknu tilliti mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 44. gr. a pþl. og 2. mgr. 30 gr. þfl.

Í samskiptum ríkisskattstjóra og félagsins lýsti félagið yfir vilja til að ljúka málinu með sátt. Í svarbréfum félagsins voru gerðar athugasemdir við nánar tiltekin atriði. Ríkisskattstjóra þótti rétt að fallast á að fyrir hefðu legið gögn í einu tilviki, en í ljósi heildarumfangs athugsemda á framkvæmd félagsins og í ljósi þeirra skýringa sem lagðar voru fram að hálfu félagsins, þóttu þær ekki leiða til þess að önnur brot yrðu felld á brott, hvorki að hluta né heild, eða leiða til þess að sektarfjárhæð yrði lækkuð.

Við mat á fjárhæð sektar leit ríkisskattstjóri til þess að félagið hafði ekki framkvæmt áreiðanleikakannanir með fullnægjandi hætti. Einnig var litið til þess að félagið hafði ekki með fullnægjandi hætti látið viðskiptamenn eða lögaðila sanna á sér deili með viðurkenndum persónuskilríkjum eða vottorði úr fyrirtækjaskrá. Félagið kannaði ekki með fullnægjandi hætti hvort allir raunverulegir eigendur væru í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla eða verið á listum yfir alþjóðlegar þvingunaraðgerðir. Sérstaklega var litið til þess að annmarkar voru á framkvæmd í þeim tilvikum sem lögin mæla fyrir um að framkvæma skal aukna áreiðanleikakönnun, þ.e. í tilvikum viðskiptamanna með tengsl við áhættusamt ríki og í tilviki viðskiptamanna í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Að mati ríkisskattstjóra hafa annmarkar við framkvæmd aukinna áreiðanleikakannana umtalsvert vægi þar sem almennt er um að ræða áhættusamari viðskiptamenn en ella samkvæmt skilgreiningu laga. Af þeim sökum gera lög og reglur auknar kröfur til gæða og umfangs upplýsinga við framkvæmd aukinna áreiðanleikakannana. Auk framangreinds var litið til fjárhagsstöðu félagsins. Ríkisskattstjóri tók einnig tillit til samstarfsvilja félagsins og að það hafi veitt embættinu greiðan og óskoraðan aðgang að öllum gögnum sem málið varða. Að lokum leit ríkisskattstjóri til fyrri framkvæmdar embættisins í málum sem varða aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og alþjóðlegar þvingunaraðgerðir, bæði hjá aðilum á sama markaði sem og heildarframkvæmdar í málaflokknum.

Að mati ríkisskattstjóra leiddi framangreint til þess að sektarfjárhæð yrði alls að fjárhæð 2.150.000 kr.

Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2025 nemur fjárhæð sáttar 50% af ætlaðri sektarfjárhæð þar sem málinu telst lokið á fyrri stigum, eða alls að fjárhæð 1.075.000 kr. (2.150.000 kr. * 50%).

Réttaráhrif, opinber birting viðurlaga og frestur

Samkomulagið er gert á grundvelli 1. mgr. 47. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, 1. mgr. 31. gr. laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna og reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2025 um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023.

Félagið telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á að úrbótum sé lokið. Félagið brýtur gegn samkomulaginu ef það greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðauka við samkomulagið, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að félagið teljist hafa brotið gegn sáttinni. Verði félagið uppvíst að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.

Með vísan til 53. gr. pþl., 36. gr. þfl. og viðmiðunarreglna ríkisskattstjóra um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023 er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög sem ákveðin eru í samræmi við 46.–47. og 50.–51. gr. pþl. og 30. og 31 gr. þfl.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum