Ákvarðanir ríkisskattstjóra

Ákvörðun 5/2026 um sátt

10.9.2026

Þann 8. september 2026 undirrituðu ríkisskattstjóri og Fasteignasala Hákot ehf. (hér eftir félagið), kt. 660276-0689 sátt vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér eftir oftast pþl.) og brota á ákvæðum laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna (hér eftir oftast þfl.).

Sáttin var gerð á grundvelli 1. mgr. 47. gr. pþl., 1. mgr. 31. gr. þfl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2025 um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023.

Meginatriði sáttarinnar eru sem hér segir:

1. Félagið viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023.

  1. Fullnægjandi upplýsinga um raunverulegan eiganda var ekki aflað og þær ekki sannreyndar í samræmi við e-lið 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 5. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  2. Ekki voru framkvæmdar viðeigandi athuganir á því hvort viðskiptamaður eða raunverulegur eigandi væri í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla í samræmi við 1. mgr. 17. gr. pþl., sem telst brot gegn 12. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  3. Varðveisla gagna var ófullnægjandi og ekki í samræmi við 1. mgr. 28. gr. pþl., sem telst brot gegn 17. tölul. 1 mgr. 46 gr. pþl.
  4. Ekki voru framkvæmdar skimanir á því hvort viðskiptamenn eða raunverulegir eigendur sæti alþjóðlegum þvingunaraðgerðum, sbr. 3. mgr. 13. gr. þfl., sem telst brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 3. mgr. 7. gr. laga nr. 64/2019, sem taldist brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. sömu laga.

2. Með sáttargerðinni fellst félagið á upphæð ætlaðrar sektarfjárhæðar sem nemur 500.000 kr.

3. Með sáttargerðinni fellst félagið á að ljúka málinu með greiðslu að fjárhæð 250.000 kr. sem samsvarar 50% af ætlaðri sektarfjárhæð (500.000 kr. x 50%).

4. Þá skal félagið framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra í viðauka við sáttargerðina.

Málavextir, málsástæður og lagarök

Samkvæmt n-lið 1. mgr. 2. gr. pþl. falla fasteignasölur, bifreiðaumboð, fasteigna-, fyrirtækja-, skipa- og bifreiðasalar og fasteignafélög, hvort sem starfsemi snýst um beina leigu eða sölu þessara félaga á fasteignum undir gildissvið laganna.

Samkvæmt 12. tölul. 1. mgr. 3. gr. þfl. er tilkynningarskyldur aðili samkvæmt lögunum skilgreindur sem aðili sem fellur undir 2. gr. pþl.

Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með því að tilkynningarskyldir aðilar sem falla undir l–u-liði 1. mgr. 2. gr. pþl. fari að ákvæðum laganna og reglum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra, sbr. 2. mgr. 38. gr. pþl. Þá hefur ríkisskattstjóri eftirlit með því að sömu tilkynningarskyldir aðilar fari að ákvæðum 10. og 13. gr. laga nr. 68/2023, sbr. 2. mgr. 26. gr. laganna.

Með bréfi óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu vegna athugunar á grundvelli 3. mgr. 38. gr. pþl. og 3. og 4. mgr. 26. gr. þfl. Félagið varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn. Í framhaldinu framkvæmdi ríkisskattstjóri vettvangsathugun hjá félaginu, auk þess sem óskað var eftir frekari gögnum.

Við athugun ríkisskattstjóra kom í ljós að framkvæmd félagsins var ekki að öllu leyti í samræmi við skyldur þess samkvæmt ákvæðum laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023.

Við skoðun á úrtaki kom í ljós að áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum voru í ákveðnum tilvikum ekki framkvæmdar með fullnægjandi hætti í samræmi við ákvæði laganna. Annmarkar voru meðal annars á könnun upplýsinga um raunverulega eigendur lögaðila og á könnun þess hvort viðskiptamenn eða raunverulegir eigendur væru í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Þá kom fram tilvik þar sem varðveisla gagna var ábótavant. Jafnframt var framkvæmd félagsins ekki að öllu leyti í samræmi við ákvæði laga nr. 68/2023. Í þeim tilvikum sem skoðuð voru höfðu viðskiptamenn og/eða raunverulegir eigendur ýmist ekki verið skimaðir gagnvart listum yfir þvingunaraðgerðir, eða, þegar um lögaðila var að ræða, hafði skimun einungis tekið til þess einstaklings sem kom fram fyrir hönd lögaðilans en ekki til allra raunverulegra eigenda þess.

Sektarfjárhæð

Samkvæmt 1. mgr. 44. gr. a pþl. skal, við ákvörðun um tegund og umfang viðurlaga, tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftir því sem við á alvarleika brots, þess hve lengi brotið hefur staðið yfir, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða. Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. þfl. skal líta til sömu atriða við ákvörðun stjórnvaldssektar samkvæmt lögum nr. 68/2023, sbr. áður 2. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019.

Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við 1. mgr. 44. gr. a pþl., 2. mgr. 30. gr. þfl. og reglur ríkisskattstjóra nr. 33/2025 um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023.

Samkvæmt 3. gr. reglnanna skal ríkisskattstjóri ákvarða hver yrði ætluð fjárhæð stjórnvaldssektar að teknu tilliti til 44. gr. a laga nr. 140/2018 og/eða 2. mgr. 30. gr. laga nr. 68/2023. Ríkisskattstjóri metur á hvaða stigi mál er við gerð sáttar. Sé máli lokið með sátt á fyrri stigum getur lækkun sektarfjárhæðar numið allt að 50% af ætlaðri fjárhæð stjórnvaldssektar. Sé máli lokið með sátt á síðari stigum getur lækkun sektarfjárhæðar numið allt að 30% af ætlaðri fjárhæð stjórnvaldssektar. Mál telst ávallt vera á síðari stigum ef aðila hefur verið tilkynnt um fyrirhugaða beitingu þvingunarúrræða og/eða viðurlaga.

Í bréfi ríkisskattstjóra var félaginu tilkynnt um niðurstöður úr athugun ríkisskattstjóra og að mati ríkisskattstjóra væru brot félagsins þess eðlis að varði stjórnvaldssekt samkvæmt 1. mgr. 46. gr. pþl. og 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019. Að teknu tilliti til frumniðurstaðna embættisins var félaginu tilkynnt um að fjárhæð stjórnvaldssektar kynni að nema 500.000 kr. að teknu tilliti mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 44. gr. a pþl. og 2. mgr. 30. gr. þfl. Við mat á fjárhæð sektar leit ríkisskattstjóri þess að félagið hafði ekki uppfyllt grunnskyldur sínar samkvæmt lögunum. Í kjölfar athugunar ríkisskattstjóra voru gerðar athugasemdir vegna ófullnægjandi framkvæmdar áreiðanleikakannana. Auk framangreinds var litið til fjárhagsstöðu félagsins. Þá tók ríkisskattstjóri einnig tillit til samstarfsvilja félagsins. Að lokum leit ríkisskattstjóri til fyrri framkvæmdar embættisins í málum sem varða aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og alþjóðlegar þvingunaraðgerðir, bæði hjá aðilum á sama markaði sem og heildarframkvæmdar í málaflokknum.

Í kjölfarið óskaði félagið eftir að ljúka málinu með sátt og hefur ríkisskattstjóri fallist á þau málalok. Málinu er því lokið með sátt á fyrri stigum í skilningi reglna nr. 33/2025.

Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2025 nam fjárhæð sáttar 50% af ætlaðri sektarfjárhæð, þar sem málinu telst lokið með sátt á fyrri stigum, eða samtals að fjárhæð 250.000kr. (500.000 kr. * 50%).

Réttaráhrif, opinber birting viðurlaga og frestur

Sátt þessi er gerð á grundvelli 1. mgr. 47. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, 1. mgr. 31. gr. laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna og reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2025 um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023.

Félagið telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á að úrbótum sé lokið sbr. viðauka við sáttina. Félagið brýtur gegn samkomulaginu ef það greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðaukann, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að félagið teljist hafa brotið gegn sátt þessari. Verði félagið uppvíst að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.

Með vísan til 53. gr. pþl., 36. gr. þfl. og viðmiðunarreglna ríkisskattstjóra um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023 er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög sem ákveðin eru í samræmi við 46.–47. og 50.–51. gr. pþl. og 30. og 31. gr. þfl.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum