Ákvarðanir ríkisskattstjóra

Ákvörðun 6/2022 um sátt

30.6.2022

Samkomulag um sátt vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Þann 29. júní 2022 gerðu ríkisskattstjóri og Brimborg ehf. sátt í máli félagsins vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér eftir pþl.).

Meginatriði samkomulagsins eru sem hér segir:

Brimborg ehf. viðurkennir að hafa brotið gegn ákvæðum laga nr. 140/2018 með eftirfarandi hætti:

  • Hafa ekki uppfært áhættumat til samræmis við gildandi lagareglur og telst það brot varða við 1. tl. 1. mgr. 46. gr.
  • Hafa ekki framkvæmt áreiðanleikakannanir í samræmi við 8. og 10. gr. pþl. og teljast þau brot varða við 3. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  • Hafa ekki séð til þess með nægjanlegum hætti að starfsmenn hljóti viðeigandi þjálfun og þekkingu á ákvæðum peningaþvættislaga í samræmi við 33. gr. pþl. og teljast þau brot varða við 19. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  • Hafa ekki með nægjanlegum hætti innleitt stefnur reglur og verkferla sem stuðla að samræmdum starfsaðferðum og góðri framkvæmd peningaþvættislaganna og teljast þau brot varða við 20. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl.

Með samkomulagi þessu fellst Brimborg ehf. á að greiða sáttargreiðslu að fjárhæð 4.250.000 krónur.

Þá fellst Brimborg ehf. á að framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra, sbr. viðauka I. Viðaukinn telst ófrávíkjanlegur hluti af sátt þessari.

Málavextir, málsástæður og lagarök

Í september 2019 óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu á grundvelli 2. mgr. 38. gr. pþl. og 2. mgr. 16. gr. frystingarlaga. Málsaðili varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn.

Í nóvember 2020 óskaði ríkisskattstjóri aftur eftir gögnum og upplýsingum frá félaginu á grundvelli 2. mgr. 38. gr. pþl. og 2. mgr. 16. gr. frystingarlaga. Málsaðili varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn.

Í desember 2021 boðaði ríkisskattstjóri til vettvangsathugunar sem fór fram þann 17. febrúar 2022 á starfsstöð málsaðila.

Við framkvæmd vettvangsathugunar varð ljóst, þrátt fyrir að félagið hafi innleitt ákveðna ferla til að milda áhættu og staðið fyrir fræðslu til starfsmanna, að málsaðili hafði ekki aðlagað varnir og stýringar félagsins, m.a. varðandi skyldu félagsins til að framkvæma áreiðanleikakönnun á viðskiptamönnum, til samræmis við þær breytingar sem urðu á lögum nr. 140/2018 árið 2020. Gerði ríkisskattstjóri því athugasemdir við heildarframkvæmd félagsins í aðgerðum sínum samkvæmt peningaþvættislögum. Telst framangreint alvarlegt brot sem varðar stjórnvaldssekt í samræmi við 46. gr. pþl.

Sektarfjárhæð

Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við reglur ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018. Samkvæmt reglunum er miðað við að sektarfjárhæð sé hlutfallslega lægri en sem ætla má að fjárhæð stjórnvaldssektar gæti numið að teknu tilliti til mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða auk þess sem litið er til þess á hvaða stigi meðferð máls er þegar því er lokið með sátt.

Samkvæmt 2. mgr. 46. gr. pþl. og 1. mgr. 20. gr. frystingarlaga skal, við ákvörðun stjórnvaldssekta tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið yfir lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða.

Við mat á sektarfjárhæð var litið til þess að félaginu hafi ekki verið nægjanlega kunnugt um gildandi lagareglur og því ekki starfað með viðeigandi hætti í samræmi við ákvæði peningaþvættislaga. Ríkisskattstjóri er upplýstur um að félagið hefur uppfært verkferla í samræmi við gildandi lagareglur og hafið undirbúning að breyttu vinnulagi. Þá er litið til fjárhagsstöðu félagsins eins og hún birtist í ársreikningum félagsins. Ríkisskattstjóri tekur tillit til samstarfsvilja félagsins og telst það félaginu til bóta. Telst sektarfjárhæð, að öllu framangreindu virtu, hæfilega ákveðin 8.500.000 krónur. Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020 nemur fjárhæð sáttar 50% af boðaðri sektarfjárhæð, eða 4.250.000 krónur.

Réttaráhrif

Samkomulag þetta er gert á grundvelli 47. gr. laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, 21. gr. laga nr. 64/2019, um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna, og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

Samkomulagið er bindandi fyrir málsaðila og ríkisskattstjóra þegar báðir aðilar hafa samþykkt og staðfest efni þess með undirskrift sinni. Málsaðili telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á að úrbótum sé lokið, sbr. nánar viðauka I við samkomulag þetta.

Málsaðili brýtur gegn samkomulaginu ef hann greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðauka I við samkomulagið, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Verði málsaðili uppvís að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.

Með vísan til 53. gr. pþl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020, um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lögum nr. 64/2019, um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna, er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög. Þrátt fyrir framangreint hefur ríkisskattstjóri, á grundvelli b. liðar 2. mgr. 53. gr. laga nr. 140/2018 og 2. mgr. 5. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020 um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lögum nr. 64/2019 um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna, tekið tillit til andmæla félagsins og fallist á að fresta birtingu auðkennis málsaðila út úr sáttargerð í sex mánuði frá undirritun hennar eða þar til ákvörðun eða sáttargerð er birt vegna tilkynningarskylds aðila innan sömu starfsgreinar, hvort heldur sem fyrr verður.

Ríkisskattstjóri sendir málsaðila rafrænt eintak af sáttargerð. Málsaðili skal undir­rita og senda rafrænt eintak á netfangið pt@skatturinn.is innan 10 daga frá móttöku. Ríkis­skatt­stjóri undirritar því næst sáttargerðina og sendir málsaðila rafrænt. Krafa verður í kjölfarið birt í netbanka félagsins þar sem veittur er 30 daga greiðslufrestur, sbr. 5. mgr. 4. gr. reglna nr. 1132/2020 um sáttargerðir samkvæmt peningaþvættislögum. 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum