Ákvarðanir ríkisskattstjóra

Ákvörðun 6/2023 um sátt

21.6.2023

Þann 21. júní 2023 gerðu ríkisskattstjóri og BL ehf., kt. 630211-0500, (hér eftir félagið) með sér samkomulag um að ljúka máli félagsins með sátt vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér eftir oftast pþl.).

Meginatriði samkomulagsins eru sem hér segir:

Félagið viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laganna:

  • Áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum voru ekki framkvæmdar í samræmi við 8. og 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 3. og 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  • Fullnægjandi upplýsinga um raunverulegan eiganda var ekki aflað í samræmi við 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  • Afrit af gögnum og upplýsingum vegna áreiðanleikakannana, þ. á m. könnun á stjórnmálalegum tengslum viðskiptamanna, sbr. 1. mgr. 17. gr. pþl., voru ekki varðveitt í samræmi við a-lið 1. mgr. 28. gr. pþl., sem telst brot gegn 16. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.

Með samkomulagi þessu fellst félagið á að greiða sekt að fjárhæð 5.500.000 krónur.

Þá skal félagið framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra í viðauka I við sáttargerðina.

Málavextir, málsástæður og lagarök

Með bréfi óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu á grundvelli 2. mgr. 38. gr. pþl., sbr. n-lið 1. mgr. 2. gr. pþl., og 2. mgr. 16. gr. laga nr. 64/2019, um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna.

Félagið varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn.

Í framhaldinu boðaði ríkisskattstjóri til vettvangsathugunar á starfsstöð félagsins.

Í samskiptum við félagið og við framkvæmd vettvangsathugunar varð meðal annars ljóst að félagið hafði framkvæmt áreiðanleikakannanir með einfaldari hætti þar til stuttu fyrir vettvangsheimsókn ríkisskattstjóra og að upplýsingar hafi einungis verið skráðar af sölumönnum félagsins en hinar eiginlegu áreiðanleikakannanir hafi ekki verið skjalaðar. Af þeim sökum höfðu áreiðanleikakannanir ekki verið framkvæmdar með fullnægjandi hætti, fullnægjandi upplýsinga um raunverulega eigendur lögaðila hafði ekki verið aflað, afrit af gögnum og upplýsingum vegna áreiðanleikakannana, þ. á m. könnun á stjórnmálalegum tengslum viðskiptamanna, voru ekki varðveitt. Félagið starfaði því ekki samkvæmt skilyrðum peningaþvættislaga og teljast framangreind brot varða stjórnvaldssekt samkvæmt 46. gr. pþl.

Sektarfjárhæð

Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við reglur ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018. Samkvæmt reglunum er miðað við að sektarfjárhæð sé hlutfallslega lægri en sem ætla má að fjárhæð stjórnvaldssektar gæti numið að teknu tilliti til mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða auk þess sem litið er til þess á hvaða stigi meðferð máls er þegar því er lokið með sátt.

Samkvæmt 1. mgr. 44. gr. a pþl. skal, við ákvörðun um tegund og umfang viðurlaga, tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftir því sem við á alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið yfir lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða.

Við mat á fjárhæð sektar hefur ríkisskattstjóri litið til þess að félagið framkvæmdi ekki áreiðanleikakannanir með fullnægjandi hætti fyrr en stuttu fyrir vettvangsathugun ríkisskattstjóra og félagið starfaði því ekki í samræmi við kröfur sem gerðar eru samkvæmt lögunum fram að því. Þá hefur félagið sýnt samstarfsvilja og veitt ríkisskattstjóra greiðan aðgang að öllum umbeðnum upplýsingum. Sérstaklega er litið þess að við vettvangsathugun ríkisskattstjóra varð ekki annað séð en að eftir að félagið hóf að framkvæma áreiðanleikakannanir hafi almenn framkvæmd þeirra og skjölun gagna verið í góðu horfi. Auk framangreinds hefur ríkisskattstjóri einnig litið til fjárhagsstöðu félagsins eins og hún birtist í ársreikningum félagsins og tekið til greina sterka stöðu félagsins, þar sem það er einn af stærstu aðilum á bifreiðamarkaði á Íslandi. Í bréfi ríkisskattstjóra til félagsins var því tilkynnt að ríkisskattstjóri hygðist leggja á félagið stjórnvaldssekt og að sektarfjárhæð, að öllu framangreindu virtu, teldist hæfilega ákveðin 11.000.000 kr. Í svarbréfi félagsins gerði það athugasemdir við tiltekin atriði sem fram komu í sektarboðun ríkisskattstjóra en lýsti sig jafnframt tilbúið að gera sátt í málinu á grundvelli þeirra meginreglna sem m.a. koma fram í reglum ríkisskattstjóra nr. 1132/2020. Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020 nemur fjárhæð sáttar 50% af sektarfjárhæð, eða alls að fjárhæð 5.500.000 kr.

Réttaráhrif

Samkomulag þetta er gert á grundvelli 47. gr. laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

Félagið telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á að úrbótum sé lokið.

Félagið brýtur gegn samkomulaginu ef það greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðauka I við samkomulagið, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að félagið teljist hafa brotið gegn sátt þessari. Verði félagið uppvíst að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.

Með vísan til 53. gr. pþl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020, um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög sem ákveðin eru í samræmi við 46.–47. og 50.–51. gr. pþl.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum