Ákvörðun 6/2024 um sátt
Þann 1. nóvember 2024 gerðu ríkisskattstjóri og Bílasala Suðurlands ehf. (hér eftir félagið), kt. 611294-2639, með sér samkomulag um að ljúka máli félagsins með sátt vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér eftir oftast pþl.) og á ákvæðum laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna (hér eftir oftast þfl.).
Sáttin er gerð á grundvelli 1. mgr. 47. gr. pþl., 1.mgr. 31. gr. þfl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.
Samkvæmt n-lið 1. mgr. 2. gr. pþl. falla fasteignasölur, bifreiðaumboð, fasteigna-, fyrirtækja-, skipa- og bifreiðasalar og fasteignafélög, hvort sem starfsemi snýst um um beina leigu eða sölu þessara félaga á fasteignum, undir gildissvið laganna.
Samkvæmt 11. tölul. 1. mgr. 3. gr. þfl. er tilkynningarskyldur aðili samkvæmt lögunum skilgreindur sem aðili sem fellur undir 2. gr. pþl.
Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með því að tilkynningarskyldir aðilar sem falla undir l–u-liði 1. mgr. 2. gr. pþl. fari að ákvæðum laganna og reglum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra, sbr. 2. mgr. 38. gr. pþl. Þá hefur ríkisskattstjóri eftirlit með því að sömu tilkynningarskyldir aðilar fari að ákvæðum 10. og 13. gr. laga nr. 68/2023, sbr. 2. mgr. 26. gr. laganna.
Meginatriði samkomulagsins eru sem hér segir:
1. Félagið viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023:
- Áreiðanleikakannanir voru ekki framkvæmdar á lögaðilum í samræmi við ákvæði III. kafla laganna í þeim tilvikum sem mælt er fyrir um í 8. gr. pþl., sem telst brot gegn 3. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Ekki var gerð krafa um að lögaðili sannaði á sér deili og að einstaklingur sem kom fram fyrir hönd viðskiptamanns sannaði á sér deili og sýndi fram á heimild, í samræmi við b-lið 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Fullnægjandi upplýsinga um raunverulegan eiganda var ekki aflað í samræmi við e-lið 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Aukin áreiðanleikakönnun vegna viðskipta sem tengist áhættusömu eða ósamvinnuþýðu ríki var ekki framkvæmd í samræmi við 13. og 14. gr. pþl., sem telst brot gegn 7. og 8. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Ekki var framkvæmd viðeigandi athugun á því hvort viðskiptavinur væri í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla samkvæmt 1. mgr. 17. gr. pþl., sem telst brot gegn 11. tölul. 1 mgr. 46 gr. pþl.
- Ekki var framkvæmd skimun á því hvort viðskiptamaður sætti alþjóðlegum þvingunaraðgerðum, sbr. 2. og 3. mgr. 13. gr. þfl., sem telst brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. og 3. mgr. 7. gr. laga nr. 64/2019, sem taldist brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. sömu laga.
2. Með samkomulaginu féllst félagið á að greiða sekt að fjárhæð 1.800.000 kr.
3. Þá skal félagið framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra í viðauka við sáttagerðina.
Málavextir, málsástæður og lagarök
Með bréfi óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu á grundvelli 3. mgr. 38. gr. pþl. og 3. og 4. mgr. 26. gr. þfl. Félagið varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn.
Við framkvæmd vettvangsathugunar kom í ljós að félagið hafði ekki í öllum tilvikum framkvæmt áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum með fullnægjandi hætti. Þá kom í ljós að áreiðanleikakannanir höfðu ekki verið framkvæmdar á aðilum í samræmi við ákvæði III. kafla laga nr. 140/2018 í öllum þeim tilvikum sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 8. gr. laganna. Dæmi voru um tilvik þar sem ekki hafði verið gerð krafa um að lögaðili sannaði á sér deili eða að einstaklingur sem kom fram fyrir hönd lögaðila sannaði á sér deili og sýndi fram á heimild. Einnig kom í ljós að fullnægjandi upplýsinga um raunverulegan eiganda hafði ekki verið aflað í samræmi við e-lið 1. mgr. 10. gr. pþl. Aukin áreiðanleikakönnun var ekki framkvæmd vegna viðskipta sem tengjast áhættusömu eða ósamvinnuþýðu ríki. Ekki var framkvæmd viðeigandi athugun á því hvort viðskiptavinur væri í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Að lokum var ekki framkvæmd skimun á því hvort viðskiptamaður sætti alþjóðlegum þvingunaraðgerðum. Félagið hefur því ekki starfað að öllu leyti samkvæmt skilyrðum laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023 og teljast framangreind brot varða stjórnvaldssekt samkvæmt 3., 4., 7., 8. og 11. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl. og 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 1. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019.
Sektarfjárhæð
Samkvæmt 1. mgr. 44. gr. a pþl. skal, við ákvörðun um tegund og umfang viðurlaga, tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftir því sem við á alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið yfir lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða. Líta skal til sömu atriða við ákvörðun stjórnvaldssektar samkvæmt lögum nr. 68/2023, sbr. 2. mgr. 30. gr. þfl. og áður 2. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019.
Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við reglur ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. reglnanna er miðað við að sektarfjárhæð sé hlutfallslega lægri en sem ætla má að fjárhæð stjórnvaldssektar gæti numið að teknu tilliti til mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða, auk þess sem litið er til þess á hvaða stigi meðferð máls er þegar því er lokið með sátt.
Í bréfi ríkisskattstjóra, var félaginu tilkynnt um frumniðurstöður úr athugun ríkisskattstjóra og að mati ríkisskattstjóra væru brot félagsins þess eðlis að varða stjórnvaldssekt samkvæmt 1. mgr. 46. gr. pþl. og 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 1. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019. Að teknu tilliti til frumniðurstaðna embættisins var félaginu tilkynnt um fjárhæð sem stjórnvaldssekt kynni að nema að teknu tilliti mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 44. gr. a pþl. og 2. mgr. 30. gr. þfl.
Í samskiptum félagsins og ríkisskattstjóra lýsti félagið yfir vilja til að ljúka málinu með sátt.
Við mat á fjárhæð sektar leit ríkisskattstjóri til þess að félagið hefur einungis framkvæmt áreiðanleikakannanir í tilviki kaupenda þar sem viðskipti hafa numið hærri fjárhæð en 10.000 evrum eða hærra, en áreiðanleikakannanir höfðu ekki verið framkvæmdar á seljendum bifreiða eða í öðrum tilvikum sem mælt er fyrir um í 8. gr. pþl. Félagið hefur því ekki starfað í samræmi við kröfur sem gerðar eru samkvæmt lögunum, en bifreiðaumboð og bifreiðasalar voru felld alfarið undir gildissvið laganna á árinu 2020. Annmarkar voru á framkvæmd í tilviki sem lögin mæla fyrir um að framkvæma skuli aukna áreiðanleikakönnun, þ.e. í tilviki viðskiptamanns með tengsl við áhættusamt ríki þar sem áhætta taldist einnig vera meiri að öðru leyti. Að mati ríkisskattstjóra hafa annmarkar við framkvæmd aukinna áreiðanleikakannana umtalsvert vægi þar sem almennt er um að ræða áhættusamari viðskiptamenn en ella samkvæmt skilgreiningu laga. Af þeim sökum gera lög og reglur auknar kröfur til gæða og umfangs upplýsinga við framkvæmd aukinna áreiðanleikakannana. Einnig var litið til þess að félagið sýndi samstarfsvilja og veitti ríkisskattstjóra greiðan aðgang að öllum umbeðnum upplýsingum. Auk framangreinds leit ríkisskattstjóri til fjárhagsstöðu félagsins. Að lokum leit ríkisskattstjóri til fyrri framkvæmdar embættisins í málum sem varða aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og alþjóðlegar þvingunaraðgerðir, bæði hjá aðilum á bifreiðamarkaði sem og heildarframkvæmdar í málaflokknum. Að mati ríkisskattstjóra leiddi framangreint til þess að ætluð sektarfjárhæð yrði alls að fjárhæð 3.600.000 kr.
Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020 nemur fjárhæð sáttar 50% af ætlaðri sektarfjárhæð þar sem málinu telst lokið á fyrri stigum, eða alls að fjárhæð 1.800.000 kr. (3.600.000 kr. * 50%).
Réttaráhrif, opinber birting viðurlaga
Samkomulag þetta er gert á grundvelli 1. mgr. 47. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, 1. mgr. 31. gr. laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018
Félagið telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á að úrbótum sé lokið. Félagið brýtur gegn samkomulaginu ef það greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðauka við samkomulagið, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að félagið teljist hafa brotið gegn sáttinni. Verði félagið uppvíst að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.
Með vísan til 53. gr. pþl., 36. gr. þfl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020, um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög sem ákveðin eru í samræmi við 46.–47. og 50.–51. gr. pþl. og 30. og 31. gr. þfl.