Ákvarðanir ríkisskattstjóra

Ákvörðun 7/2026 um sátt

29.10.2026

Þann 9. október 2026 undirrituðu ríkisskattstjóri og NBS ehf. (hér eftir „félagið“), kt. 560719-0860, sátt vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér eftir „pþl.“) og laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna (hér eftir „þfl.“).

Meginatriði sáttar:

Sáttin var gerð á grundvelli 1. mgr. 47. gr. pþl., 1. mgr. 31. gr. þfl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2025 um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023. Meginatriði sáttarinnar eru sem hér segir:

1. Félagið viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023:

  1. Áhættumat félagsins var ekki í samræmi við 5. gr. pþl. sem telst brot gegn 1. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  2. Áreiðanleikakönnun var ekki framkvæmd í öllum þeim tilvikum sem félaginu bar að framkvæma áreiðanleikakönnun líkt og mælt er fyrir um í 8. gr. pþl., sem telst brot gegn 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  3. Ekki var gerð krafa um að viðskiptamaður sannaði á sér deili í samræmi við a-lið 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 5. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  4. Ekki var gerð krafa um að lögaðili sannaði á sér deili í samræmi við b-lið 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 5. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  5. Ekki var gerð krafa um að fyrirsvarsmaður lögaðila sannaði á sér deili í og sýndi fram á heimild til að koma fram fyrir hönd viðskiptamanns samræmi við b-lið 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 5. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  6. Fullnægjandi upplýsinga um raunverulegan eiganda var ekki aflað og þær ekki sannreyndar í samræmi við e-lið 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 5. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  7. Aukin áreiðanleikakönnun var ekki framkvæmd vegna viðskipta sem tengist áhættusömu eða ósamvinnuþýðu ríki í samræmi við 13. og 14. gr. pþl., sem telst brot gegn 8. og 9. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  8. Ekki voru framkvæmdar viðeigandi athuganir á því hvort viðskiptamaður eða raunverulegur eigandi væri í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla og gripið til viðeigandi ráðstafana þegar slíkt átti við í samræmi við 1. mgr. 17. gr. pþl., sem telst brot gegn 12. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  9. Ekki voru framkvæmdar skimanir á því hvort viðskiptamenn eða raunverulegir eigendur sæti alþjóðlegum þvingunaraðgerðum, sbr. 2. og 3. mgr. 13. gr. þfl., sem telst brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. og 3. mgr. 7. gr. laga nr. 64/2019, sem taldist brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. sömu laga.

2. Félagið fellst á upphæð sektarfjárhæðar sem nemur 950.000 kr.

3. Félagið fellst á að ljúka máli þessu með greiðslu að fjárhæð 475.000 kr., sem samsvarar 50% af ætlaðri sektarfjárhæð (950.000 kr. * 50%).

4. Félagið skal framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra í viðauka við sáttargerðina.

Málavextir, málsástæður og lagarök

Samkvæmt n-lið 1. mgr. 2. gr. pþl. falla fasteignasölur, bifreiðaumboð, fasteigna-, fyrirtækja-, skipa- og bifreiðasalar og fasteignafélög, hvort sem starfsemi snýst um beina leigu eða sölu þessara félaga á fasteignum undir gildissvið laganna.

Samkvæmt 12. tölul. 1. mgr. 3. gr. þfl. er tilkynningarskyldur aðili samkvæmt lögunum skilgreindur sem aðili sem fellur undir 2. gr. pþl.

Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með því að tilkynningarskyldir aðilar sem falla undir l–u-liði 1. mgr. 2. gr. pþl. fari að ákvæðum laganna og reglum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra, sbr. 2. mgr. 38. gr. pþl. Þá hefur ríkisskattstjóri eftirlit með því að sömu tilkynningarskyldir aðilar fari að ákvæðum 10. og 13. gr. laga nr. 68/2023, sbr. 2. mgr. 26. gr. laganna.

Með bréfi óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu vegna athugunar ríkisskattstjóra á grundvelli 3. mgr. 38. gr. pþl. og 3. og 4. mgr. 26. gr. þfl. Félagið varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn. Í framhaldinu framkvæmdi ríkisskattstjóri vettvangsathugun hjá félaginu og óskaði eftir frekari gögnum.

Við athugun ríkisskattstjóra kom í ljós að félagið hafði ekki starfað að öllu leyti í samræmi við skyldur sínar samkvæmt ákvæðum laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023.

Við skoðun á fyrirliggjandi gögnum kom í ljós að áhættumat félagsins hafði ekki verið gert með fullnægjandi hætti í samræmi við 5. gr. pþl. Þá var framkvæmd áreiðanleikakannana ábótavant. Annmarkar voru meðal annars þeir að félagið hafði ekki framkvæmt áreiðanleikakannanir í öllum þeim tilvikum sem bar að framkvæma áreiðanleikakönnun skv. 8. gr. pþl. Að auki hafði framkvæmd félagsins í einhverjum tilfellum ekki samræmst 10. gr. pþl., þ.e. ekki var gerð krafa um að einstaklingur eða lögaðili sannaði á sér deili. Ekki hafði verið gerð krafa um að fyrirsvarsmaður lögaðila sannaði á sér deili og sýndi fram á heimild til þess að koma fram fyrir hönd lögaðila. Auk þess hafði könnun á raunverulegum eigendum lögaðila ekki verið framkvæmd. Einnig hafði félagið ekki kannað eða ekki kannað með fullnægjandi hætti hvort viðskiptamaður eða raunverulegur eigandi væri í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla eða væri á listum yfir þvingunaraðgerðir. Að auki hafði félagið ekki kannað hvort að viðskiptamaður tengdist áhættusömu eða ósamvinnuþýðu ríki. Félagið hafði ekki gripið til viðeigandi ráðstafana og framkvæmt aukna áreiðanleikakönnun þegar það átti við sbr. 13., 14. og 17. gr. pþl. Í tilfelli seljenda framkvæmdi félagið ekkert af ofangreindu.

Sektarfjárhæð

Samkvæmt 1. mgr. 44. gr. a pþl. skal, við ákvörðun um tegund og umfang viðurlaga, tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftir því sem við á alvarleika brots, þess hve lengi brotið hefur staðið yfir, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða. Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. þfl. skal líta til sömu atriða við ákvörðun stjórnvaldssektar samkvæmt lögum nr. 68/2023, sbr. áður 2. mgr. 20 gr. laga nr. 64/2019.

Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við 1. mgr. 44. gr. a pþl., 2. mgr. 30. gr. þfl. og reglur ríkisskattstjóra nr. 33/2025 um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023.

Samkvæmt 3. gr. reglnanna skal ríkisskattstjóri ákvarða hver yrði ætluð fjárhæð stjórnvaldssektar að teknu tilliti til 44. gr. a laga nr. 140/2018 og/eða 2. mgr. 30. gr. laga nr. 68/2023. Þá metur ríkisskattstjóri á hvaða stigi mál er við gerð sáttar. Sé máli lokið með sátt á fyrri stigum getur lækkun sektarfjárhæðar numið allt að 50% af ætlaðri fjárhæð stjórnvaldssektar. Sé máli lokið með sátt á síðari stigum getur lækkun sektarfjárhæðar numið allt að 30% af ætlaðri fjárhæð stjórnvaldssektar. Mál telst ávallt vera á síðari stigum ef aðila hefur verið tilkynnt um fyrirhugaða beitingu þvingunarúrræða og/eða viðurlaga.

Í bréfi ríkisskattstjóra var félaginu tilkynnt um frumniðurstöður úr athugun ríkisskattstjóra. Þar kom fram að það væri mat ríkisskattstjóra að brot félagsins væru þess eðlis að varða stjórnvaldssekt samkvæmt 1. mgr. 46. gr. pþl. og 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019. Að teknu tilliti til frumniðurstaðna embættisins var félaginu tilkynnt um að fjárhæð stjórnvaldssektar kynni að nema 950.000 kr. að teknu tilliti mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 44. gr. a pþl. og 2. mgr. 30. gr. þfl.

Við mat á fjárhæð sektarinnar leit ríkisskattstjóri til þeirra veikleika í aðgerðum félagsins gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sem komu í ljós við athugun embættisins. Að mati ríkisskattstjóra vörðuðu brot félagsins áhættumat á starfsemi þess vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka, áhættumat á samningssamböndum og einstökum viðskiptum, framkvæmd áreiðanleikakannana og aukinna áreiðanleikakannana sem og eftirlit með aðilum á þvingunarlistum. Í þeim tilvikum þar sem áreiðanleikakönnun fór fram, einskorðaðist hún við kaupendur en náði ekki til seljenda. Að mati ríkisskattstjóra töldust brot félagsins alvarleg, sérstaklega að því er varðaði framkvæmd aukinna áreiðanleikakannana, þ.e. í tilviki viðskiptamanna með tengsl við áhættusamt eða ósamvinnuþýtt ríki. Slík brot hafa umtalsvert vægi þar, enda er almennt um að ræða áhættusamari viðskiptamenn en ella samkvæmt skilgreiningu laga. Af þeim sökum gera lög og reglur auknar kröfur til gæða og umfangs upplýsinga við framkvæmd aukinna áreiðanleikakannana. Þá var litið til þess að brot félagsins hefðu staðið yfir frá gildistöku laga nr. 96/2020 um breytingu á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023, sbr. áður lög nr. 64/2019. Auk þess var litið til fjárhagsstöðu félagsins á því tímabili sem skoðun ríkisskattstjóra náði til. Að lokum tók ríkisskattstjóri tillit til fyrri framkvæmdar embættisins í málum sem vörðuðu aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og alþjóðlegar þvingunaraðgerðir, bæði gagnvart aðilum á sama markaði sem og með hliðsjón af heildarframkvæmd í málaflokknum.

Í kjölfarið óskaði félagið eftir að ljúka málinu með sátt og hefur ríkisskattstjóri fallist á þau málalok. Málinu er því lokið með sátt á fyrri stigum í skilningi reglna nr. 33/2025.

Í samræmi við 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2025 nam fjárhæð sáttargreiðslu því 50% af ætlaðri sektarfjárhæð þar sem málinu telst lokið á fyrri stigum, eða alls að fjárhæð 475.000 kr. (950.000 kr. * 50%).

Réttaráhrif, opinber birting viðurlaga og frestur

Sáttin er gerð á grundvelli 1. mgr. 47. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, 1. mgr. 31. gr. laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna og reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2025 um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023.

Félagið telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á úrbótum sé lokið sbr. viðauka við samkomulagið. Félagið brýtur gegn samkomulaginu ef það greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðaukann, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að félagið teljist hafa brotið gegn sátt þessari. Verði félagið uppvíst að því að brjóta gegn sáttinni getur ríkisskattstjóri fellt hana úr gildi og tekið málið til meðferðar að nýju.

Með vísan til 53. gr. pþl., 36. gr. þfl. og viðmiðunarreglna ríkisskattstjóra um opinbera birtingu viðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018 oglögum nr. 68/2023, skal birta opinberlega stjórnsýsluviðurlög sem ákveðin eru í samræmi við 46.–47. og 50.–51. gr. pþl. og 30. og 31. gr. þfl.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum