Ákvarðanir ríkisskattstjóra

Ákvörðun 8/2023 um sátt (uppfært)

8.12.2023

Uppfært 18. júlí 2024.
Í málinu féllst ríkisskattstjóri á að skilyrði væru fyrir hendi þannig að fresta mætti nafngreiningu tímabundið þar til úttekt á úrbótakröfu hafði farið fram. Að mati ríkisskattstjóra varð ekki annað séð við úttekt á úrbótakröfunni en að framkvæmd félagsins hafi verið í góðu horfi og að félagið hafi innleitt fullnægjandi úrbætur í samræmi við úrbótakröfu embættisins og innan frests sem var veittur. Af hálfu ríkisskattstjóra telst málinu því vera lokið án frekari athugasemda. Ákvörðunin hefur nú verið uppfærð með nafni félagsins og öðrum auðkennandi upplýsingum.


Þann 7. desember 2023 gerðu ríkisskattstjóri og Deloitte ehf., kt. 521098-2449, (hér eftir félagið) með sér samkomulag um að ljúka máli félagsins með sátt vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér eftir oftast pþl.).

Sáttin er gerð á grundvelli 47. gr. pþl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

Samkvæmt l-lið 1. mgr. 2. gr. pþl. falla endurskoðunarfyrirtæki, endurskoðendur, skattaráðgjafar og aðilar sem færa bókhald eða sinna bókhaldsþjónustu fyrir þriðja aðila gegn endurgjaldi undir gildissvið laganna. Sem endurskoðunarfyrirtæki fellur starfsemi félagsins því öll undir gildissvið laganna.

Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með því að tilkynningarskyldir aðilar sem falla undir l–u-liði 1. mgr. 2. gr. pþl. fari að ákvæðum laganna og reglum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra, sbr. 2. mgr. 38. gr. pþl. Þá hefur ríkisskattstjóri eftirlit með því að sömu tilkynningarskyldir aðilar fari að ákvæðum 10. og 13. gr. laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, sbr. 2. mgr. 26. gr. laganna.

Meginatriði samkomulagsins eru sem hér segir:

 1. Félagið viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laga nr. 140/2018:

  1. Áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum voru ekki framkvæmdar í samræmi við 8. og 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 3. og 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  2. Ekki var gerð krafa um að viðskiptamaður sannaði á sér deili í samræmi við 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  3. Fullnægjandi upplýsinga um raunverulegan eiganda var ekki aflað í samræmi við 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  4. Aukin áreiðanleikakönnun var ekki framkvæmd í samræmi við 13. gr. pþl., sem telst brot gegn 7. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  5. Ekki var framkvæmd athugun á því hvort viðskiptamaður hafi stjórnmálaleg tengsl samkvæmt 1. mgr. 17. gr. pþl., sem telst brot gegn 11. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  6. Afrit af gögnum og upplýsingum vegna áreiðanleikakannana voru ekki varðveitt í samræmi við a-lið 1. mgr. 28. gr. pþl., sem telst brot gegn 16. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.

  2. Með samkomulaginu fellst félagið á að greiða sekt að fjárhæð 23.250.000 kr.

  3. Þá skal félagið framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra í viðauka við sáttargerðina.

Málavextir, málsástæður og lagarök

Með bréfi óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu á grundvelli 2. mgr. 38. gr. pþl. og 2. mgr. og 3. mgr. 26. gr. laga nr. 68/2023. Félagið varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn. Í framhaldinu boðaði ríkisskattstjóri til vettvangsathugunar á starfsstöð félagsins.

Í samskiptum við félagið og við framkvæmd vettvangsathugunar varð meðal annars ljóst að félagið hafði ýmist ekki framkvæmt áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum eða ekki framkvæmt áreiðanleikakannanir með fullnægjandi hætti. Dæmi voru um að upplýsinga um raunverulega eigendur hafði ekki verið aflað og þær ekki sannreyndar, að ekki hafði verið framkvæmd athugun á því hvort viðskiptamaður og raunverulegir eigendur væru í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla og að aukin áreiðanleikakönnun hafði ekki verið framkvæmd í tilviki þar sem viðskiptamaður sagðist vera í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Þá var varðveisla gagna ábótavant og ekki í samræmi við fyrirmæli 28. gr. pþl. Félagið hafði því ekki starfað samkvæmt skilyrðum laganna og töldust framangreind brot varða stjórnvaldssekt samkvæmt 3., 4., 7., 11. og 16. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.

Sektarfjárhæð

Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við reglur ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018. Samkvæmt reglunum er miðað við að sektarfjárhæð sé hlutfallslega lægri en sem ætla má að fjárhæð stjórnvaldssektar gæti numið að teknu tilliti til mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða auk þess sem litið er til þess á hvaða stigi meðferð máls er þegar því er lokið með sátt.

Samkvæmt 1. mgr. 44. gr. a pþl. skal, við ákvörðun um tegund og umfang viðurlaga, tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftir því sem við á alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið yfir lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða. Líta skal til sömu atriða við ákvörðun stjórnvaldssektar samkvæmt lögum nr. 68/2023, sbr. 2. mgr. 30. gr. þfl.

Að mati ríkisskattstjóra mátti ætla að sektarfjárhæð myndi nema um 46.500.000 kr. Við mat á fjárhæð sektar leit ríkisskattstjóri til fyrri framkvæmdar í viðurlagamálum embættisins vegna aðgerða tilkynningarskyldra aðila gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þá var litið til þess að af þeim 14 tilvikum sem skoðuð voru við vettvangsathugun embættisins, og féllu undir gildissvið laganna, taldist engin áreiðanleikakönnun framkvæmd með fullnægjandi hætti, en félaginu hefur borið að starfa í samræmi við kröfur laga nr. 140/2018 frá gildistöku þeirra 1. janúar 2019. Einnig var litið til samstarfsvilja sem félagið sýndi. Að lokum var litið til sterkrar fjárhagsstöðu félagsins og þess að það er á meðal stærstu endurskoðunarfyrirtækja landsins.

Í svari félagsins óskaði félagið eftir að ljúka málinu með sátt. Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020 nemur fjárhæð sáttar 50% af ætlaðri sektarfjárhæð þar sem málinu telst lokið á fyrri stigum, eða alls að fjárhæð 23.250.000 kr.

Réttaráhrif

Samkomulag þetta er gert á grundvelli 47. gr. laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

Félagið telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á að úrbótum sé lokið.

Félagið brýtur gegn samkomulaginu ef það greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðauka við samkomulagið, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að félagið teljist hafa brotið gegn sátt þessari. Verði félagið uppvíst að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.

Opinber birting viðurlaga

Með vísan til 53. gr. pþl., 36. gr. þfl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020, um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög sem ákveðin eru í samræmi við 46.–47. og 50.–51. gr. pþl. og 30. og 31. gr. þfl.

Í svari félagsins óskaði það eftir því að félagið yrði ekki nafngreint í birtri ákvörðun með nánar tilteknum sjónarmiðum.

Í nýlegri framkvæmd ríkisskattstjóra í viðurlagamálum vegna aðgerða tilkynningarskyldra aðila gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hefur almennt ekki verið fallist á að sleppa eða fresta nafngreiningu aðila nema að sérstakar aðstæður mæli með því. Í máli þessu þótti ríkisskattstjóra mega fallast á röksemdir félagsins um að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi. Samkvæmt framansögðu taldi ríkisskattstjóri skilyrði b-liðar 2. mgr. 5. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020 vera uppfyllt þannig að fresta mætti nafngreiningu aðila þar til úttekt á úrbótakröfu hefði farið fram.

Úttekt á úrbótakröfu hefur nú farið fram og töldust öll atriði hennar uppfyllt. Af þeim sökum hefur ákvörðunin verið uppfærð með nafni félagsins og öðrum auðkennandi upplýsingum.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum