Ákvörðun 9/2025 um sátt
Þann 9. október 2025 gerðu ríkisskattstjóri og Rýni endurskoðun ehf. (hér eftir félagið) með sér samkomulag um að ljúka máli félagsins með sátt vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér oftast pþl.) og brota á ákvæðum laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna (hér eftir oftast þfl.).
Sáttin er gerð á grundvelli 1. mgr. 47. gr. pþl., 1. mgr. 31. gr. þfl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023.
Samkvæmt l-lið 1. mgr. 2. gr. pþl. falla endurskoðunarfyrirtæki, endurskoðendur, skattaráðgjafar og aðilar sem færa bókhald eða sinna bókhaldsþjónustu fyrir þriðja aðila gegn endurgjaldi undir gildissvið laganna.
Samkvæmt 12. tölul. 1. mgr. 3. gr. þfl. er tilkynningarskyldur aðili samkvæmt lögunum skilgreindur sem aðili sem fellur undir 2. gr. pþl.
Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með því að tilkynningarskyldir aðilar sem falla undir l–u-liði 1. mgr. 2. gr. pþl. fari að ákvæðum laganna og reglum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra, sbr. 2. mgr. 38. gr. pþl. Þá hefur ríkisskattstjóri eftirlit með því að sömu tilkynningarskyldir aðilar fari að ákvæðum 10. og 13. gr. laga nr. 68/2023, sbr. 2. mgr. 26. gr. laganna.
Meginatriði samkomulagsins eru sem hér segir:
1. Félagið viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023:
- Áreiðanleikakönnun var ekki framkvæmd í öllum þeim tilvikum sem mælt er fyrir um í 8. gr. pþl., sem telst brot gegn 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Ekki var gerð krafa um að lögaðili sannaði á sér deili áður en samningssambandi var komið á eða viðskipti áttu sér stað í samræmi við b-lið 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 5. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Ekki var gerð krafa um að fyrirsvarsmaður lögaðila sannaði á sér deili eða sýndi fram á heimild til að koma fram fyrir hönd viðskiptamanns áður en samningssambandi var komið á eða áður en viðskipti áttu sér stað í samræmi við b-lið 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 5. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Ekki voru framkvæmdar viðeigandi athuganir á því hvort viðskiptamaður eða raunverulegur eigandi væri í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla í samræmi við 1. mgr. 17. gr. pþl., sem telst brot gegn 12. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Afrit af gögnum og upplýsingum vegna áreiðanleikakannana voru ekki varðveitt í samræmi við a-lið 1. mgr. 28. gr. pþl., sem telst brot gegn 17. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Ekki voru framkvæmdar skimanir á því hvort viðskiptamenn eða raunverulegir eigendur sæti alþjóðlegum þvingunaraðgerðum í upphafi viðskipta, sbr. 2. og 3. mgr. 13. gr. þfl., sem telst brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. og 3. mgr. 7. gr. laga nr. 64/2019, sem taldist brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. sömu laga.
- Afrit af gögnum og upplýsingum vegna uppflettingar á þvingunaraðgerðum voru ekki varðveitt í samræmi við 4. mgr. 13. gr. þfl., sem telst brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl.
2. Með samkomulaginu féllst félagið á að greiða sekt að fjárhæð 1.625.000 kr.
3. Þá skal félagið framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra í viðauka við sáttagerðina.
Málavextir, málsástæður og lagarök
Með bréfi óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu á grundvelli 3. mgr. 38. gr. laga nr. 140/2018 og 3. og 4. mgr. 26. gr. laga nr. 68/2023. Félagið varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn.
Við athugun ríkisskattstjóra kom í ljós að félagið hafði ekki starfað í samræmi við ákvæði laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023. Við athugun ríkisskattstjóra voru athugasemdir gerðar við framkvæmd áreiðanleikakannana í öllum tilvikum sem komu til skoðunar. Við vettvangsskoðun varð ekki annað séð en að félagið hefði ekki framkvæmt áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum sínum fyrr en eftir fyrirspurn ríkisskattstjóra. Félaginu var veittur frestur til þess að afhenda eldri gögn vegna nánar tiltekinna áreiðanleikakannana. Félagið afhenti gögn vegna einnar eldri áreiðanleikakönnunar en vísaði að öðru leyti til þess að gögnum vegna annarra tilvika hefði verið eytt eftir fimm ára geymslutíma. Þá var könnun á því hvort viðskiptamenn eða raunverulegir eigendur væru í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla ekki framkvæmd.
Sektarfjárhæð
Samkvæmt 1. mgr. 44. gr. a pþl. skal, við ákvörðun um tegund og umfang viðurlaga, tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftir því sem við á alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið yfir lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða. Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. þfl. skal líta til sömu atriða við ákvörðun stjórnvaldssektar samkvæmt lögum nr. 68/2023, sbr. áður 2. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019.
Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við 1. mgr. 44. gr. a pþl., 2. mgr. 30. gr. þfl. og reglur ríkisskattstjóra nr. 33/2025 um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023. Samkvæmt 3. gr. reglnanna skal ríkisskattstjóri ákvarða hver yrði ætluð fjárhæð stjórnvaldssektar að teknu tilliti til 44. gr. a laga nr. 140/2018 og/eða 2. mgr. 30. gr. laga nr. 68/2023. Ríkisskattstjóri metur á hvaða stigi mál er við gerð sáttar. Sé máli lokið með sátt á fyrri stigum getur lækkun sektarfjárhæðar numið allt að 50% af ætlaðri fjárhæð stjórnvaldssektar. Sé máli lokið með sátt á síðari stigum getur lækkun sektarfjárhæðar numið allt að 30% af ætlaðri fjárhæð stjórnvaldssektar. Mál telst ávallt vera á síðari stigum ef aðila hefur verið tilkynnt um fyrirhugaða beitingu þvingunarúrræða og/eða viðurlaga.
Í bréfi ríkisskattstjóra var félaginu tilkynnt um frumniðurstöður úr athugun ríkisskattstjóra og að mati ríkisskattstjóra væru brot félagsins þess eðlis að varða stjórnvaldssekt samkvæmt 1. mgr. 46. gr. pþl. og 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019. Að teknu tilliti til frumniðurstaðna embættisins var félaginu tilkynnt um fjárhæð sem stjórnvaldssekt kynni að nema að teknu tilliti mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 44. gr. a pþl. og 2. mgr. 30. gr. þfl.
Í samskiptum ríkisskattstjóra og félagsins lýsti félagið yfir vilja til að ljúka málinu með sátt.
Við mat á fjárhæð sektar leit ríkisskattstjóri til þess að brot félagsins teljist alvarleg, en félagið hafði ekki framkvæmt áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum sínum nema að litlu leyti áður en athugun ríkisskattstjóra hófst og hafði því ekki starfað í samræmi við kröfur sem gerðar eru í lögum nr. 140/2018 frá gildistöku þeirra. Einnig var framkvæmd félagsins ekki í samræmi við ákvæði laga nr. 68/2023, sbr. áður ákvæði laga nr. 64/2019. Þá var litið til fjárhagsstöðu félagsins á því tímabili sem skoðun ríkisskattstjóra náði til. Ríkisskattstjóri tók einnig tillit til samstarfsvilja félagsins og að það hafi veitt embættinu greiðan og óskoraðan aðgang að öllum gögnum sem málið varða. Að lokum leit ríkisskattstjóri til fyrri framkvæmdar embættisins í málum sem varða aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og alþjóðlegar þvingunaraðgerðir, bæði hjá aðilum á sama markaði sem og heildarframkvæmdar í málaflokknum.
Að mati ríkisskattstjóra leiddi framangreint til þess að sektarfjárhæð yrði alls að fjárhæð 3.250.000 kr.
Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2025 nemur fjárhæð sáttar 50% af ætlaðri sektarfjárhæð þar sem málinu telst lokið á fyrri stigum, eða alls að fjárhæð 1.625.000 kr. (3.250.000 kr. * 50%).
Réttaráhrif, opinber birting viðurlaga og frestur
Samkomulagið er gert á grundvelli 1. mgr. 47. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, 1. mgr. 31. gr. laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna og reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2025 um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023.
Félagið telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á að úrbótum sé lokið. Félagið brýtur gegn samkomulaginu ef það greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðauka við samkomulagið, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að félagið teljist hafa brotið gegn sáttinni. Verði félagið uppvíst að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.
Með vísan til 53. gr. pþl., 36. gr. þfl. og viðmiðunarreglna ríkisskattstjóra um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023 er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög sem ákveðin eru í samræmi við 46.–47. og 50.–51. gr. pþl. og 30. og 31. gr. þfl.
