Ákvörðun nr. 10/2024 um sátt
Þann 9. desember 2024 gerðu ríkisskattstjóri og i8 Gallerí ehf. (hér eftir félagið), kt. 431195-2599, með sér samkomulag um að ljúka máli félagsins með sátt vegna brota þess á ákvæðum laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér eftir oftast pþl.) og brota á ákvæðum laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna (hér eftir oftast þfl.).
Sáttin var gerð á grundvelli 1. mgr. 47. gr. pþl., 1. mgr. 31. gr. þfl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.
Samkvæmt p-lið 1. mgr. 2. gr. pþl. fellur starfsemi félagsins undir gildissvið laganna þegar um er að ræða viðskipti í einni greiðslu eða fleiri sem virðast tengjast hver annarri, að fjárhæð 10.000 evrur eða meira miðað við opinbert viðmiðunargengi eins og það er skráð hverju sinni.
Samkvæmt 11. tölul. 1. mgr. 3. gr. þfl. er tilkynningarskyldur aðili samkvæmt lögunum skilgreindur sem aðili sem fellur undir 2. gr. pþl.
Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með því að tilkynningarskyldir aðilar sem falla undir l–u-liði 1. mgr. 2. gr. pþl. fari að ákvæðum laganna og reglum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra, sbr. 2. mgr. 38. gr. pþl. Þá hefur ríkisskattstjóri eftirlit með því að sömu tilkynningarskyldir aðilar fari að ákvæðum 10. og 13. gr. þfl., sbr. 2. mgr. 26. gr. laganna.
Meginatriði samkomulagsins eru sem hér segir:
1. Félagið viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023:
- Hafa ekki gert áhættumat á starfsemi sinni, samningssamböndum og einstökum viðskiptum í samræmi við 5. gr. pþl. fyrr en við fyrirspurn embættisins, sem telst brot gegn 1. tölul. 1 mgr. 46. gr. pþl.
- Áreiðanleikakannanir voru ekki framkvæmdar í þeim tilvikum sem mælt er fyrir um í 8. gr. pþl., sem telst brot gegn 3. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Hafa ekki séð til þess að starfsmenn hljóti sérstaka þjálfun í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og öðlist þekkingu á ákvæðum laganna, reglugerðum og reglum sem settar eru á grundvelli þeirra í samræmi við 33. gr. pþl., sem telst brot gegn 19. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Hafa ekki innleitt ferla eða aðferðir til að sinna eftirliti með því hvort viðskiptamenn og raunverulegur eigendur séu á listum yfir þvingunaraðgerðir í samræmi við 2. mgr. 13. gr. þfl. eða skimað viðskiptamenn eða raunverulega eigendur gagnvart listum yfir þvingunaraðgerðir í upphafi viðskipta í samræmi við 3. mgr. 13. gr. þfl., sem telst brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. og 3. mgr. 7. gr. laga nr. 64/2019, sem taldist brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. sömu laga.
2. Félagið féllst á að greiða sekt að fjárhæð 1.125.000 kr.
3. Félagið skal framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra í viðauka við sáttargerðina.
Málavextir, málsástæður og lagarök
Með bréfi óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu á grundvelli 3. mgr. 38. gr. pþl. og 3. og 4. mgr. 26. gr. þfl. Félagið varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn.
Sektarfjárhæð
Samkvæmt 1. mgr. 44. gr. a pþl. skal, við ákvörðun um tegund og umfang viðurlaga, tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftir því sem við á alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið yfir lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða. Líta skal til sömu atriða við ákvörðun stjórnvaldssektar samkvæmt lögum nr. 68/2023, sbr. 2. mgr. 30. gr. þfl. og áður 2. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019.
Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við reglur ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. reglnanna er miðað við að sektarfjárhæð sé hlutfallslega lægri en sem ætla má að fjárhæð stjórnvaldssektar gæti numið að teknu tilliti til mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða, auk þess sem litið er til þess á hvaða stigi meðferð máls er þegar því er lokið með sátt.
Í samskiptum félagsins og ríkisskattstjóra lýsti félagið yfir vilja til að ljúka málinu með sátt.
Við mat á fjárhæð sektar leit ríkisskattstjóri til þess að félagið var ekki meðvitað um skyldur sínar samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023 fyrr en við fyrirspurn ríkisskattstjóra. Hafði félagið ekki starfað í samræmi við ákvæði laganna, þó svo að það hafi ekki átt í nafnlausum viðskiptum í þeim tilvikum sem viðskipti hafa fallið undir gildissvið laganna, og töldust því brot félagsins alvarleg. Þá var einnig litið til þess að starfsemi félagsins fellur ekki að öllu leyti undir gildissvið laganna vegna fjárhæðarmarka sem mælt er fyrir um í p-lið 1. mgr. 2. gr. pþl. Einnig var litið til fjárhagsstöðu félagsins miðað við ársreikninga fyrir árin 2022 og 2023. Ríkisskattstjóri tók einnig tillit til samstarfsvilja og þeirra breytinga sem félagið hafði gert á framkvæmd sinni er varðaði framfylgni þeirra laga sem til umfjöllunar eru. Að lokum leit ríkisskattstjóri til fyrri framkvæmdar embættisins í málum sem varða aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og alþjóðlegar þvingunaraðgerðir, bæði hjá aðilum sem heyra undir p-lið 1. mgr. 2. gr. pþl. sem og heildarframkvæmdar í málaflokknum.
Að mati ríkisskattstjóra leiddi framangreint til þess að ætluð sektarfjárhæð yrði alls að fjárhæð 2.250.000 kr.
Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020 nam fjárhæð sáttar 50% af ætlaðri sektarfjárhæð þar sem málinu taldist lokið á fyrri stigum, eða alls að fjárhæð 1.125.000 kr. (2.250.000 kr. * 50%).
Réttaráhrif, opinber birting viðurlaga og frestur
Samkomulagið er gert á grundvelli 1. mgr. 47. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, 1. mgr. 31. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.
Félagið telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á að úrbótum sé lokið.
Félagið brýtur gegn samkomulaginu ef það greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðauka við samkomulagið, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að félagið teljist hafa brotið gegn sátt þessari. Verði félagið uppvíst að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.
Með vísan til 53. gr. pþl., 36. gr. þfl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020, um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög sem ákveðin eru í samræmi við 46.–47. og 50.–51. gr. pþl. og 30. og 31. gr. þfl.