Ákvarðanir ríkisskattstjóra

Ákvörðun nr. 10/2025 um sátt

30.10.2025

Þann 21. október 2025 gerðu ríkisskattstjóri og Brimborg ehf. (hér eftir félagið) með sér samkomulag um að ljúka máli félagsins með sátt vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér oftast pþl.) og brota á ákvæðum laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna (hér eftir oftast þfl.).

Sáttin var gerð á grundvelli 1. mgr. 47. gr. pþl., 1. mgr. 31. gr. þfl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2025 um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023.

Samkvæmt n-lið 1. mgr. 2. gr. pþl. falla fasteignasölur, bifreiðaumboð, fasteigna-, fyrirtækja-, skipa- og bifreiðasalar og fasteignafélög, hvort sem starfsemi snýst um beina leigu eða sölu þessara félaga á fasteignum.

Samkvæmt 12. tölul. 1. mgr. 3. gr. þfl. er tilkynningarskyldur aðili samkvæmt lögunum skilgreindur sem aðili sem fellur undir 2. gr. pþl.

Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með því að tilkynningarskyldir aðilar sem falla undir l–u-liði 1. mgr. 2. gr. pþl. fari að ákvæðum laganna og reglum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra, sbr. 2. mgr. 38. gr. pþl. Þá hefur ríkisskattstjóri eftirlit með því að sömu tilkynningarskyldir aðilar fari að ákvæðum 10. og 13. gr. laga nr. 68/2023, sbr. 2. mgr. 26. gr. laganna.

Meginatriði samkomulagsins eru sem hér segir:

1. Félagið viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023.

  1. Aukin áreiðanleikakönnun vegna viðskipta sem tengjast áhættusömum eða ósamvinnuþýðum ríkjum var ekki framkvæmd í ákveðnum tilvikum með fullnægjandi hætti í samræmi við 13. og 14. gr. pþl., sem telst brot gegn 8. og 9. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  2. Aukin áreiðanleikakönnun var ekki framkvæmd á viðskiptamanni í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla í samræmi við 13. gr. og b-lið 2. mgr. 17. gr. pþl., sem telst brot gegn 8. og 12. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  3. Aukin áreiðanleikakönnun var ekki framkvæmd þar sem raunverulegur eigandi telst til nánustu fjölskyldu einstaklings í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla í samræmi við 13. gr. og b-lið 2. mgr. 17. gr. pþl., sem telst brot gegn 8. og 12. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  4. Ekki hafi verið framkvæmdar skimanir á því hvort viðskiptamenn sæti alþjóðlegum þvingunaraðgerðum í upphafi viðskipta, sbr. 2. og 3. mgr. 13. gr. þfl., sem telst brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. og 3. mgr. 7. gr. laga nr. 64/2019, sem taldist brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. sömu laga.

2. Með samkomulaginu féllst félagið á að greiða sekt að fjárhæð 6.790.000 kr.

3. Þá skal félagið framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra í viðauka við sáttagerðina.

Málavextir, málsástæður og lagarök

Með bréfi óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu á grundvelli 3. mgr. 38. gr. laga nr. 140/2018 og 3. og 4. mgr. 26. gr. laga nr. 68/2023. Félagið varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn.

Við athugun ríkisskattstjóra kom í ljós að félagið hafði ekki starfað í samræmi við ákvæði laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023. Dæmi voru um tilvik þar sem auknar áreiðanleikakannanir höfðu ekki verið framkvæmdar með fullnægjandi hætti í tilviki viðskiptamanna með tengsl við áhættusöm eða ósamvinnuþýð ríki og í tilviki viðskiptamanna og raunverulegra eiganda í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Þá voru ekki framkvæmdar skimanir á því hvort viðskiptamaður eða raunverulegur eigandi væri á alþjóðlegum þvingunarlistum.

Félagið hefur því ekki starfað í samræmi við skilyrði laga nr. 140/2018 og laga nr. 68/2023 og teljast brot félagsins varða stjórnvaldssekt samkvæmt 8., 9. og 12. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl og 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019.

Sektarfjárhæð

Samkvæmt 1. mgr. 44. gr. a pþl. skal, við ákvörðun um tegund og umfang viðurlaga, tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftir því sem við á alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið yfir lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða. Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. þfl. skal líta til sömu atriða við ákvörðun stjórnvaldssektar samkvæmt lögum nr. 68/2023, sbr. áður 2. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019.

Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við 1. mgr. 44. gr. a pþl., 2. mgr. 30. gr. þfl. og reglur ríkisskattstjóra nr. 33/2025 um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023. Samkvæmt 3. gr. reglnanna skal ríkisskattstjóri ákvarða hver yrði ætluð fjárhæð stjórnvaldssektar að teknu tilliti til 44. gr. a laga nr. 140/2018 og/eða 2. mgr. 30. gr. laga nr. 68/2023. Ríkisskattstjóri metur á hvaða stigi mál er við gerð sáttar. Sé máli lokið með sátt á fyrri stigum getur lækkun sektarfjárhæðar numið allt að 50% af ætlaðri fjárhæð stjórnvaldssektar. Sé máli lokið með sátt á síðari stigum getur lækkun sektarfjárhæðar numið allt að 30% af ætlaðri fjárhæð stjórnvaldssektar. Mál telst ávallt vera á síðari stigum ef aðila hefur verið tilkynnt um fyrirhugaða beitingu þvingunarúrræða og/eða viðurlaga.

Í bréfi ríkisskattstjóra var félaginu tilkynnt um fyrirhugaða beitingu stjórnvaldssektar á grundvelli 1. mgr. 46. gr. pþl. og 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019, að teknu tilliti til mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 44. gr. a pþl. og 2. mgr. 30. gr. þfl.

Í samskiptum ríkisskattstjóra og félagsins lýsti félagið yfir vilja til að ljúka málinu með sátt á síðari stigum. Í svarbréfi félagsins, sem og í síðari samskiptum, voru gerðar athugasemdir við nánar tiltekin atriði í málinu.

Við mat á fjárhæð sektar leit ríkisskattstjóri til fyrri brota félagsins gegn ákvæðum laga nr. 140/2018, sbr. sátt félagsins og ríkisskattstjóra, dags. 29. júní 2022. Samhliða sátt var félaginu, með úrbótakröfu ríkisskattstjóra, gert að framkvæma úrbætur á starfsemi sinni. Við vettvangsathugun varð ekki annað séð en að félagið hafði innleitt umtalsverðar úrbætur og að almenn framkvæmd áreiðanleikakannana hvað varðar bæði einstaklinga og lögaðila hafi verið í góðu horfi. Í þeim tilvikum sem athugasemdir voru gerðar við framkvæmd félagsins hafi úrbætur þó ekki verið fullnægjandi. Sérstaklega var litið til þess að annmarkar voru á framkvæmd í þeim tilvikum sem lögin mæla fyrir um að framkvæma skal auknar áreiðanleikakannanir, þ.e. bæði í tilviki viðskiptamanna með tengsl við áhættusöm eða ósamvinnuþýð ríki og viðskiptamanna í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Að mati ríkisskattstjóra hafa annmarkar við framkvæmd aukinna áreiðanleikakannana umtalsvert vægi þar sem almennt er um að ræða áhættusamari viðskiptamenn en ella samkvæmt skilgreiningu laga. Af þeim sökum gera lög og reglur auknar kröfur til gæða og umfangs upplýsinga við framkvæmd aukinna áreiðanleikakannana. Einnig var þó litið til þess að í þeim tilvikum sem komu til skoðunar í úrtaki ríkisskattstjóra þar sem viðskiptamenn voru ríkisborgarar áhættusamra eða ósamvinnuþýðra ríkja var uppruni fjármuna kannaður að hluta, en ekki öllu leyti, og að í umræddum viðskiptum var auk þess um lágar fjárhæðir að ræða. Einnig var litið til þess að félagið hefur sýnt samstarfsvilja og veitt ríkisskattstjóra greiðan aðgang að öllum umbeðnum upplýsingum. Auk framangreinds leit ríkisskattstjóri til fjárhagsstöðu félagsins. Að lokum leit ríkisskattstjóri til fyrri framkvæmdar embættisins í málum sem varða aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og alþjóðlegar þvingunaraðgerðir, bæði hjá aðilum á bifreiðamarkaði sem og heildarframkvæmdar í málaflokknum.

Að mati ríkisskattstjóra leiddi framangreint til þess að ætluð sektarfjárhæð yrði alls að fjárhæð 9.700.000 kr.

Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2025 nam fjárhæð sáttar 70% af ætlaðri sektarfjárhæð þar sem málinu taldist lokið á síðari stigum, eða alls að fjárhæð 6.790.000 kr. (9.700.000 kr. * 70%).

Réttaráhrif, opinber birting viðurlaga og frestur

Samkomulagið er gert á grundvelli 1. mgr. 47. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, 1. mgr. 31. gr. laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna og reglna ríkisskattstjóra nr. 33/2025 um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023.

Félagið telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á að úrbótum sé lokið. Félagið brýtur gegn samkomulaginu ef það greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðauka við samkomulagið, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að félagið teljist hafa brotið gegn sáttinni. Verði félagið uppvíst að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.

Með vísan til 53. gr. pþl., 36. gr. þfl. og viðmiðunarreglna ríkisskattstjóra um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018 og lögum nr. 68/2023 er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög sem ákveðin eru í samræmi við 46.–47. og 50.–51. gr. pþl. og 30. og 31 gr. þfl.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum