Tilkynningar og yfirlýsingar FATF

Yfirlýsing FATF vegna ósamvinnuþýðra ríkja frá 30.06.2020

26.8.2020

Ríkisskattstjóri vekur athygli á yfirlýsingu Financial Action Task Force (FATF) sem samþykkt var í kjölfar fundar hins alþjóðlega framkvæmdahóps hinn 21. febrúar sl. Þann 30. júní sl. var ákveðið að yfirlýsing FATF frá því í febrúar myndi gilda áfram vegna aðstæðna af völdum COVID-19. 

Í yfirlýsingu FATF kemur fram að ríki skuli grípa til sérstakra fyrirbyggjandi varúðarráðstafana gagnvart Norður-Kóreu og Íran, enda steðji viðvarandi ógn að hinum alþjóðlega fjármálamarkaði vegna aðgerðarleysis ríkjanna í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Í kjölfar nefnds fundar FATF í júní var einnig gefin út skýrsla um úrbætur í málefnum tengdum aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka á alþjóðlegum vettvangi. Í skýrslunni er að finna lista yfir ríki sem hafa lýst yfir vilja til að framfylgja aðgerðaáætlun, sem unnin hefur verið í samstarfi við FATF, til að taka á þeim annmörkum sem eru til staðar á þessu sviði.

Þau ríki sem eru talin með annmarka eru eftirfarandi:

  • Albanía
  • Bahamaeyjar
  • Barbados
  • Botsvana
  • Gana
  • Ísland
  • Jamaíka
  • Jemen
  • Kambódía
  • Máritíus
  • Mjanmar
  • Mongólía
  • Níkaragva
  • Pakistan
  • Panama
  • Simbabve
  • Sýrland
  • Úganda

Í samræmi við 6. gr. laga nr. 140/2018, skulu tilkynningarskyldir aðilar gefa aðilum frá nefndum ríkjum sérstakan gaum, m.t.t. aukinnar hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og framkvæma aukna áreiðanleikakönnun í samræmi við 13. og 14. gr. laga nr. 140/2018, að undanskildum aðilum frá Íslandi.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum