Tilkynningar og yfirlýsingar FATF

Yfirlýsing FATF vegna ósamvinnuþýðra ríkja frá febrúar 2021

6.4.2021

Áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki skv. FATF

Ríkisskattstjóri vekur athygli á yfirlýsingu Financial Action Task Force (FATF) sem samþykkt var í kjölfar fundar hins alþjóðlega framkvæmdahóps í febrúar sl. Þá var ákveðið að yfirlýsing FATF frá því í febrúar 2020 myndi gilda áfram vegna aðstæðna af völdum COVID-19.

Í yfirlýsingu FATF kemur fram að ríki skuli grípa til sérstakra fyrirbyggjandi varúðarráðstafana gagnvart Norður-Kóreu og Íran, enda steðji viðvarandi ógn að hinum alþjóðlega fjármálamarkaði vegna aðgerðarleysis ríkjanna í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Í kjölfar nefnds fundar FATF í október var einnig gefin út skýrsla um úrbætur í málefnum tengdum aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka á alþjóðlegum vettvangi. Í skýrslunni frá febrúar 2021 er að finna lista yfir ríki sem hafa lýst yfir vilja til að framfylgja aðgerðaáætlun, sem unnin hefur verið í samstarfi við FATF, til að taka á þeim annmörkum sem eru til staðar á þessu sviði.

Þá er einnig vísað til ríkja sem Evrópusambandið hefur tilgreint sem áhættusöm þriðju lönd, sbr. reglugerð nr. 956/2020, um breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 105/2020.

Þau ríki sem eru talin áhættusöm og með annmarka í framangreindum skilningi eru eftirfarandi:

  • Afganistan
  • Albanía
  • Alþýðulýðveldið Kórea
  • Bahamaeyjar
  • Barbados
  • Botsvana
  • Búrkína Fasó
  • Cayman eyjar
  • Ghana
  • Írak
  • Íran
  • Jamaíka
  • Jemen
  • Kambódía
  • Marakkó
  • Máritíus
  • Mjanmar/Búrma
  • Mongólía
  • Níkaragva
  • Pakistan
  • Panama
  • Senegal
  • Simbabve
  • Sýrland
  • Trinidad og Tóbagó
  • Úganda
  • Vanúatú

Í samræmi við 6. gr. laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka skulu tilkynningarskyldir aðilar gefa aðilum frá nefndum ríkjum sérstakan gaum, m.t.t. aukinnar hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og framkvæma aukna áreiðanleikakönnun í samræmi við 13. og 14. gr. laga nr. 140/2018. 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum