2007

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 110/2007

2.5.2007

 

Skattaðili: A.

 Verknaðarlýsing: A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í sjálfstæðri starfsemi hans vegna uppgjörstímabilanna júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember tekjuárið 2002, janúar-febrúar, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember tekjuárið 2003 og janúar-febrúar, mars apríl, maí-júní og september-október tekjuárið 2004. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs á lögmæltum tíma skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna júlí-ágúst tekjuárið 2002, janúar-febrúar, júlí-ágúst og nóvember-desember tekjuárið 2003 og janúar-febrúar, mars-apríl, maí-júní og september-október tekjuárið 2004. Nam fjárhæðin samtals kr. 2.598.152.

Niðurstaða: Málinu vísað frá þar sem afstaða A til meðferðar málsins fyrir yfirskattanefnd lá ekki fyrir, sbr. 2. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum