2007

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 215/2007

12.9.2007

 

Skattaðili: A.

Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem hann innheimti í sjálfstæðri starfsemi sinni, vegna uppgjörstímabilanna frá janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2002, janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2003 og janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2004. Þá var A gefið að sök, vegna fyrrgreindra uppgjörstímabila, að undanskildu uppgjörstímabilinu mars-apríl rekstrarárið 2004, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 2.862.037.

Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 42/1995 þóttu eiga við að hluta.

Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Úrskurðurð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 4.300.000 til ríkissjóðs.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum