2007

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 253/2007

24.10.2007

 

Skattaðili: A.

Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á skattframtali og fylgigögnum þess vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárið 2003, vegna rekstrarársins 2002, og með því vanrækt að gera grein fyrir rekstrartekjum samtals að fjárhæð kr. 15.604.435.

Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa á lögmæltum tíma skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna mars-apríl, maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2002. Nam vanframtalinn útskattur samtals kr. 3.823.087 og vanframtalin skattskyld velta kr. 15.604.435.

Niðurstaða: Málinu vísað frá yfirskattanefnd þar sem afstaða A til meðferðar málsins fyrir yfirskattanefnd lá ekki fyrir, sbr. 2. mgr. 110. gr. laga nr. 90/2003 og 2. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum