2008
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 291/2008
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum til skattstjórans í Reykjavík vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárin 2003, 2004 og 2005, vegna tekjuáranna 2002, 2003 og 2004. Vanframtaldar tekjur A námu samtals kr. 4.380.000.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Ekki þóttu forsendur til að gera gjaldanda sekt vegna gjaldársins 2003, vegna tekjuársins 2002, á þeim grundvelli sem greindi í kröfugerð skattrannsóknarstjóra ríkisins.
Brotin varða við: 1. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 1.250.000 til ríkissjóðs og kr. 600.000 til borgarsjóðs Reykjavíkur.