2008

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 290/2008

10.12.2008

 Skattaðili A

 Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti á lögmæltum tíma vegna uppgjörstímabilanna janúar-febrúar rekstrarárið 2003 til og með nóvember-desember rekstrarárið 2004. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil, á lögmæltum tíma, á virðisaukaskattsskýrslum fyrir uppgjörstímabilin janúar-febrúar rekstrarárið 2003 til og með nóvember-desember rekstrarárið 2004. Nam vangoldinn innheimtur virðisaukaskattur vegna framangreindra uppgjörstímabila samtals kr. 3.650.702.

Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Skuldajöfnun barnabóta og vaxtabóta úr ríkissjóði upp í skattskuldir gjaldanda ekki talið sem greiðsla. Undantekning frá fésektarlágmarki, sem mælt er fyrir um í lögum nr. 134/2005, þótti eiga við að hluta

Brotin varða við: 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

Úrskurðuð sekt: A gert að greiða kr. 4.200.000 til ríkissjóðs.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum